Stækkun "sjóndeildar" hringsins

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Stækkun "sjóndeildar" hringsins

Post by Atli »

Hvað segiði öll um að fara setja svolitlar breytingar af stað hér á Fiskaspjall.is? Mér datt í hug, fyrst að það eru margir þarna úti sem eru með Gullfiska, gúbba og svo eru það botnfiska"loverarnir" líka, hehe. Mér finnst að þessi síða ætti að vera með há markmið, því að samfélagið okkar er mikið að stækka.

Sjálfur finnst mér þetta allger nauðsyn svo að þetta blandist ekki mikið saman við til dæmis "siklíður" þráðinn, jafnvel þó svo það verði lítið skrifað í þessa, svipað og er að gerast með 'Saltvatnið'

Sjálfur verð ég að segja að ég er mjög hreyinn af þessu 'batterý' hér, því þetta er það eina sem heldur fiskafólki saman, en svo vill ég líka hvetja alla sem hafa áhuga á fiskadellunni til að taka þátt í nýju samfélagi sem er að verða til í þessum geira, Félag Skrautfiskaeigenda ("FSFE"). Það gerir okkur öllum kleyft að víkka "sjóndeildar" hringinn.

Nú er bara að standa saman og snúa bökum saman og allir sem 1!
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Þetta er alls ekki vitlaus hugmynd :D
Þetta er nú einu sinni sérhæft fiskaspjall og
því minna mál að gera sérhæfða flokka
eins og á erlendum spjöllum heldur en
hjá þeim spjöllum sem bjóða upp á öll gæludýr :mrgreen:

Meina þó að það verði lítið skrifað í þessa flokka held ég
að maður lifi það alveg af er það ekki?

Væri bara gaman að bæta við þrem flokkum
Kaldvatnsfiskar
Kattfiskar & Skrímsli :lol:
Gotfiskar


Hvað finnst ykkur hinum?
Og háttvirtur eigandi spjallsins, hvað finnst þér :mrgreen: ?
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

Já! ég er mjög til í þetta!. Þar sem ég er þessi botnfiska "lover"
finnst mér vantar sér þráð um Botnfiska og öll hin fallegu skrímslin.

Háttvirtur forseti Fiskaspjall.is.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Persónulega myndi ég ekki nenna að halda úti þræði fyrir mína botnfiska, vil bara hafa búrin ásamt því sem er í þeim (myndi kannski setja myndir af þeim og búið).
Ég hugsa þó að ég læsi þessa þræði, kæmi eflaust margt fróðlegt fram.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Ég les alla pósta hérna inni hvaða flokki sem þeir tilheyra - þó svo að fiskaflóran í búrinu mínu samanstandi af 2 botnfiskum í augnablikinu.
Mikill fróðleikur sem kemur fram og rosalega gaman að sjá myndir af fiskabúrum og íbúunum.
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Ég er sammála Rúnari. Ég les alla þræði hér sama í hvaða flokk það er.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gott að vita að Skúli forseti er til í þetta. :)

Það er eimitt kominn tími á að setja upp monster þráð hér á spjallinu og svo vonandi hitt í fyllingu tímans, mér finnst nú þurfa að vera komnar af stað nokkrar umræður sem ættu heima í hinum flokkunum áður en við förum að setja upp sér flokk fyrir þær. Mér finnst hálf sorglegt að vera með hálftóman og lítt virkan flokk eins og er með saltspjallið hér.
Post Reply