Er lítið mál að fá brúskana til að hryggna ?.. Hvað þyrfti ég helst að vera með marga af hvoru kyni ?
Annars bilað flottur rekki hjá þér væri gaman að prófa að smíða mér svona þegar manni gefst smá pláss
Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Lítið mál að fá þá til að hrygna ef maður er með pör.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Er eitthvað á sölu hjá þér af anicistrum?
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Þær eru enn of litlar til að ég láti þær frá mér. Væri líklega ekki að gera neinum greiða með því
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Ancistrurnar voru orðnar voða fínar, um 2ja mánaða gamlar þegar ég ákvað að sleppa þeim úr flotbúrunum í búr sem var með vel af brúnum þörungi. Á nokkrum vikum fækkaði þeim úr 1-200 í 5-10stk. Ég hef ekki hugmynd um af hverju.
Það gengur ekki að hafa þær endalaust í flotbúrunum, en ég reyni etv að hafa þær enn lengur næst. Ég er með um 100 seiði í flotbúri núna sem eru orðin 2ja vikna gömul.
Svo var ég að taka eftir því að apistogramma macmasteri parið mitt er búið að hrygna í 32mm pvc rör sem ég er með hjá þeim. Skemmtilegt. Þau eru ein með gömlum brúsknefjakalli, ég hugsa að ég leyfi honum að vera hjá þeim til að byrja með, en ef hrognin hverfa strax þá tek ég hann líklega frá.
Það gengur ekki að hafa þær endalaust í flotbúrunum, en ég reyni etv að hafa þær enn lengur næst. Ég er með um 100 seiði í flotbúri núna sem eru orðin 2ja vikna gömul.
Svo var ég að taka eftir því að apistogramma macmasteri parið mitt er búið að hrygna í 32mm pvc rör sem ég er með hjá þeim. Skemmtilegt. Þau eru ein með gömlum brúsknefjakalli, ég hugsa að ég leyfi honum að vera hjá þeim til að byrja með, en ef hrognin hverfa strax þá tek ég hann líklega frá.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
varstu með rót í þessu búri sem þú sleftir Ancistrunum í ?
ég er að lenda svoldið í þessu , ætla að prufa að setja rót í búrið hjá þeim.
ég er með seiðin hjá foreldrunum í 4-6 vikur og það eru mjög lítil afföll í því búri (er með rætur í því ) en það hafa ekki verið rætur í rekkanum þar sem ég geimi seiðin síðar.
kv
ellixx

180 lítra juwel.
54 lítra mp. til sölu
30 lítra tetra. gaf brósa
1200 lítra rekki. hættur ....... selt ,hent
Canon EOS 500D
Sigma 18-200.
54 lítra mp. til sölu
30 lítra tetra. gaf brósa
1200 lítra rekki. hættur ....... selt ,hent
Canon EOS 500D
Sigma 18-200.
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Ég er með rætur í flestum búrum - seiðin eru ekki einusinni að fara á milli búra, þau fara í sama vatnið.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Vegna tímaleysis þá er ég að íhuga að selja rekkann með öllu.
Í þeim pakka er:
* 4x ~130 lítra búr, með ljósum, pípulögnum og dælu
* 4x Síhrygnandi ancistrupör, þám eitt sem koma albino seiði undan
* Hellingur af ancistrum
* 4x L134
* Góður slatti af Endler
* Hillur fyrir búrinu frá ísold geta fylgt með.
* Slatti af rótum, plöntum, hrygningahellum og grjóti.
Þetta tekur uþb 90x40 gólfpláss, og hillurnar eru 210cm háar.
Tilboð óskast í einstaka hluti eða pakkann.
Í þeim pakka er:
* 4x ~130 lítra búr, með ljósum, pípulögnum og dælu
* 4x Síhrygnandi ancistrupör, þám eitt sem koma albino seiði undan
* Hellingur af ancistrum
* 4x L134
* Góður slatti af Endler
* Hillur fyrir búrinu frá ísold geta fylgt með.
* Slatti af rótum, plöntum, hrygningahellum og grjóti.
Þetta tekur uþb 90x40 gólfpláss, og hillurnar eru 210cm háar.
Tilboð óskast í einstaka hluti eða pakkann.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rekki #2 - Brúsknefjaræktun, L134 og Endler
Búrin, ásamt pípulögnum og hringrásardælu eru föl á 40þús. Það er auðvitað djók verð og það myndi kosta amk 60-80þús ef fólk ætlaði að smíða svona sjálfur frá grunni. Get hugsanlega látið einhverja fiska fylgja, t.d. hrygnandi ancistrupar.
Hægt er að fá hillurnar á uþb 15þús í ísold.
Ef einhver hefur áhuga, hafið þá samband.