
Magn salt við vatnsskipti
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- 
				Guðný Linda
- Posts: 20
- Joined: 03 Oct 2011, 13:39
Magn salt við vatnsskipti
Mig langar að vita hvað er aftur æskilegt að setja mörg gr. af Kötlu grófa saltinu á móti hverjum lítra/lítrum við reglubundin vatnsskipti í ferskvatnsbúri. Töluvert langt síðan mér var ráðlagt einhver viss tala, en man hana ekki lengur, og hef slumpað pínuponsu síðustu skiptin og allt verið í góðu lagi. Væri líklega skynsamlegra að gera þetta almennilega.  
			
			
									
						
										
						
Re: Magn salt við vatnsskipti
Þú þarft ekkert að vera með salt í búrinu nema það séu einhver vandræði í því. Ef það eru einhverjar sýkingar í gangi þá set ég 2-4 grömm per lítra. Jafnvel uppí 5gr á lítra ef ég er í tómu rugli 
			
			
									
						
							
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
			
						