1300 lítra búr
Moderators: Vargur, keli, Squinchy
1300 lítra búr
Ég ákvað að smíða búr í garðskálann heima. Búrið er úr 18mm krossvið sem er þakinn með epoxy. Málin á búrinu eru 280x70x70.
Ég er kominn langt á leið með að smíða búrið, ég á bara eftir að kaupa glerið og líma það í og festa síðan toppinn á.
hér eru nokkrar myndir af ferlinu.
Grindin - Smíðuð úr 2"x4"
Allt gert klárt til að mála
að bera fyrstu umferðina vel útþynnta á. "Sundlaugargrænt"
Spónarplata undir botnplötunni
erum að stilla þessu upp, kíkja hvort allt passi og svona.
Búnir að fræsa fyrir glerið, raufin er 8mm djúp og 16mm breið. Glerið verður 14mm samkvæmt formúlu sem ég fann hér http://www.theaquatools.com/building-your-aquarium
búnir að kítta og byrjaðir að skrúfa saman.
Nóóg af skrúfum og kítti á milli náttúrulega.
bakhliðin
Kíttaði þetta vel með bostic super fix sem ég fékk í múrbúðinni.
Það fóru um 4 túpur í þetta sem komið er.
Búinn að mála skápinn og fl svartann eina umferð.
Þarna á ég eftir að saga úr toppinum.
Þarna er ég búinn að saga úr toppinum og er að fara að taka mál af glerinu.
Ég er ekkert búinn að ákveða hvaða fiskar eiga að vera þarna. Einhverjar uppástungur?
Ég er að hugsa að gera bakgrunn úr frauðplasti og múra yfir það.
Getur einhver sagt mér til um hvernig hreynsibúnað ég ætti að hafa.
Ég var að spá í að leggja rör í botninn (í sandinn) og gata það vel og láta dælu sjúga vatn inn í rörið og í filter.
Ég ætla að setja 4 flúorperur í þetta og smíða lok yfir.
Allar ábendingar vel þegnar.
Kv Helgi

Já það er ekkert annað , þetta lýtur glæsilega út sem er komið
Fyrir þessa búr stærð er eginnlega ekkert annað en sumpur sem kemur til greina eða hellingur af tunnudælum
bora 2 yfirföll og eitt gat fyrir vatnskipti í bakið eða hliðina
verður búrið upp við vegg ?

Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Skemmtilegt verkefni og pistill!
Ég er einmitt að spá í að smíða búr í gestaherbergið hjá mér sem yrði uppvið vegg og milli veggja, þannig að krossviður ætti að ganga í allt nema frontinn. Ég hefði sennilega málað búrið svart að innan frekar en grænt, en það er bara mitt preference
Ætlaru að fræsa rönd í toppinn líka fyrir glerið?
Fyrir svona stórt búr þá myndi ég sennilega kaupa tvær Rena XP4 af Vargnum (sjá hér) og gera bara lögn úr 30-40mm PVC niður í skápinn sem tengdist við báðar dælurnar. Annar möguleiki væri að nota hreinsidælu fyrir tjörn.
Ertu með link á einhverja grein sem þú notaðist við?

Brilliant verkefni!!! Verður gaman að fylgjast með þessu.
Á skápurinn eftir að standa bara á þessum 6 fótum? heldur það alveg? Mér sýnist þú nú vera býsna laghentur og vita hvað þú ert að gera í kring um verkfæri. En þetta lýtur út fyrir að verða gríðarlegt álag á þessar nokkru skrúfur sem halda fótunum við grindina.
Væri annars örugglega mjög flott að hafa DIY bakgrunn úr frauðplasti í þessu.
Ég held að fæstir séu með 14mm gler. Standard stærð er 15mm, það er ekki legervara nema hjá Glerborg og Samverk. Þegar ég athugaði, þá var verðið á 15mm gleri lang best hjá Glerborg.

Squinchy - Búrið er mjög lágt. Grindin er bara 50cm há og búrið verður uppvið glugga (Þeim megin við súluna sem litla búrið er á fyrstu myndinni) og ætti ekki að skerta mikið birtu og svoleiðis.
henry - Ég er búinn að fræsa fyrir glerið í toppnum . Ég studdist svosem ekki við neina grein. fékk hugmyndina þegar Vargur setti inn myndir af 1000 lítra búrinu sem hann er með úr krossvið. Ég spurði hann bara út í þykktina á glerinu og krossviðnum og skellti mér svo á þetta.
Sven - Ég ætla að setja DIY bakgrunn úr frauðplasti í búrið og jafnvel að setja "bakgrunn" í hliðarnar líka, ef það kemur vel út. Jájá, þessa ætti alveg að vera nógu massíft til að halda þessu. Platan sem búrið liggur á liggur alveg á fótunum líka. Getur verið að ég festi fæturnar eitthvað betur. Og ég hef alveg ennþá þann möguleika að nota 15mm gler.

maður hefur venjulega bara svampa fyrst í kerfinu en aðal málið er biomedia, t.d. fyrrnefndar kúlur.
Líst rosa vel á þetta project hjá þér, það verður gaman að fylgjast með þessu. Ertu kominn með einhverjar hugmyndir um hvað á að fara í búrið?

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
" Kíttaði þetta vel með bostic super fix sem ég fékk í múrbúðinni. "
Er þetta kítti fiskabúra safe ?
Er þetta kítti fiskabúra safe ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
Ef þér líst ekki á að hafa sump, þá gætir þú mögulega komið vel út úr því að hafa tjarnar-tunnudælu við búrið. Rakst einhverntíman á að einhverjir á monsterfishkeepers.com hafi verið að nota oase filtoclear tunndælu sem var ætluð fyrir tjarnir á fiskabúr.
Spurning þó hvort að straumurinn yðri of mikill, ætti þó að vera hægt að fiffa það með því að skipta return slöngunni úr dælunni í tvennt eða jafnvel fernt.

Ekki slæm hugmynd , Tetra pond PFX5000 er sniðugt þrýstihylki fyrir þetta búr, það er með back flush þannig að tunnan hreinsast þegar þú gerir vatn skipti og þarft þar með ekki að þrífa tunnuna eins oft, svo er líka UV ljós í þeim
Langar sjálfur svolítið í svona fyrir 600 lítrana mína
Langar sjálfur svolítið í svona fyrir 600 lítrana mína
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Hef allavegana bara séð þetta með UV í dýralíf, en UV ljósið er bara til góðs þannig að það er ekkert til að kvarta yfir , já þetta er allavegana ódýrara en að búa til sump
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Ég er að verða búinn að klára að gera bakrunninn. Ég fór í byko og keypti frauðplast. heili parturinn er 3 cm og sá sem ég skar niður er 5cm.
Búinn að skera út og móta einn kubb
Notaði bara stingsög til að skera út kubbana
Hér er ég að nota hitabyssu til að móta plastið og fá svolítið hrjúft yfirborð.
Byrjaður að setja fúu á
Búinn að bera tvær umferðir af fúu á og ætla síðan að bera glært epoxy yfir þegar þetta er orðið vel þurrt
Ætli það endi ekki bara á að ég kaupi mér svona Tetra pond PFX5000 eða eitthvað svipað.

Sem flísari þætti mér vænt um að fúa yrði fúga
en annars lítur þetta vel út
en annars lítur þetta vel út
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
þetta er stórskemmtilegt verkefni. Það er flott að hafa "bakgrunn" líka á hliðunum. Ef þú ætlar að hafa diskusa þá róar það þá talsvert niður. Svo bara fá sér slatta af rummy nose, SAE, jafnvel nokkra ramirezi, congo tetrur, svart tetrur, corydoras sterbai/panda og Brochis splendens og fallegan plegga, rót/rætur, fullt af gróðri.... Fullkomið.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Hefur þú ekkert hugsað um að setja td álramma utan um búrið að ofan og neðan eins og er á búrinu hjá mér ?helgihs wrote:Ég hef meiri áhyggjur af því að búrið sjálft fari í sundur (veggirnir í búrinu) heldur en að grindin haldi ekki.
Annars held ég að þetta sleppi ef límið er að fá góða viðloðun.
Þú færð svo hrós fyrir skemmtilegt föndur og fínan þráð.
fiskabur
Vargur wrote:Hefur þú ekkert hugsað um að setja td álramma utan um búrið að ofan og neðan eins og er á búrinu hjá mér ?helgihs wrote:Ég hef meiri áhyggjur af því að búrið sjálft fari í sundur (veggirnir í búrinu) heldur en að grindin haldi ekki.
Annars held ég að þetta sleppi ef límið er að fá góða viðloðun.
Þú færð svo hrós fyrir skemmtilegt föndur og fínan þráð.
eg mundi personulega ekki þora öðru en hafa ramma uppi og niðri
hvað kostaði efnið i burið (i grindina og krossviðurinn)
væri nu gaman að skella ser i svona smiði.
hvernig gengur .væri gaman að sja meira af smiðinni hja þer.
Ég fékk glerið í dag og setti það í. Það átti að koma síðasta þriðjudag en það brotnaði á leiðinni í bæinn
Vargur og Einval - Ég er búinn að styrkja búrið þannig að ég þarf ekki að setja álramma utan um
Ég þurfti tvær krossviðsplötur sem voru 150x300cm. efnið í grindina og krossviðurinn kostaði um 70 þús
13 túpur af bostic super fix fóru í búrið það sem komið er!
Ég keypti sand í Bm Vallá, 3x 40 kg og fór út á Geldingarnes og sótti slatta af steinum
Sandurinn kostaði 500kr pokinn smá munur á því og í gæludýrabúðum.
fleiri myndir!
Þetta er dælan sem ég keypti FPX2000
Tetra pond PFX-UV5000 Keypti dælu, tunnu og hitara í dýralíf uppá höfða.
Kíttið
Partur af bakgrunninum
Glerið komið í og búið að kítta vel meðfram.
Tunnan og smá pípulagnir til og fá henni. Það eru 4 stútar inn í búrið og einn út.
Þarna er ég búinn að kítta glerið vel í og líma bakgrunninn á.
Síðan setti ég lista meðfram efri brúninni til að fela yfirborðið á vatninu.
Ég keypti álplötur sem ég ætla að skera úr fyrir ljósum og mála svart.
Inni í búrinu. Þarna sést í álplötuna og stút sem tengist í dæluna.
Stútarnir frá hreynsitunnu
Að setja málningarlímband áður en ég kítta glerið að innan