SAE: Syndir á hvolfi og er útbelgdur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

SAE: Syndir á hvolfi og er útbelgdur

Post by Kaladar »

Langaði að athuga hvort þið getið sagt mér hvað veldur þessum einkennum,

Er búinn að eiga þennan SAE í rétt yfir ár og hann orðinn stór og fínn, en sá
svo núna áðan að hann er útbelgdari en venjulega, syndir hálf kjánalega og
er mikið á hvolfi :?:


Tek fram að regluleg vatnsskipti eru gerð vikulega um 40-50%

:roll:
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Post by Kaladar »

Jæja hann gaf upp öndina áðan og ég vippaði honum uppúr og smellti af einni lélegri mynd.
Ef þið vitið af hverju þetta gæti stafað þá væri gott að vita það.

Hann virtist vera í góðum gír í gær, en þá var hann að elta barbana hjá mér einsog allla aðra daga..


Image
User avatar
Österby
Posts: 106
Joined: 11 Apr 2009, 18:26
Location: HFJ

Post by Österby »

:( samhryggist

Ég missti kvk gúbbí nýlega sperengfulla af seiðum :(
.-Ívar
130L Sjávarbúr
ibbman
Posts: 271
Joined: 26 Jan 2009, 19:02

Post by ibbman »

Held að ég fari með rétt mál, en ég held að þetta sé svínaflensan :shock:
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Post by Kaladar »

Jæja nú tveim mánuðum seinna er annar farinn með sömu einkennum! Það er að vísu önnur tegund, nú var það fimm banda barbi sem er útbelgdur einsog korktappi.

Frá því að síðasti fór hef ég minnkað fóðurgjöf til öryggis, en kanski er þetta eitthvað annað, hvað haldið þið?

Tilviljun kanski?
:roll:
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Hljómar eins og vandamál með vatnið, hefurðu mælt no3?
hvernig filter ertu með á búrinu? Hvaða aðrir fiskar eru í búrinu?
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Post by Kaladar »

180 lítra búr

3 x Skalar, tveir risar og einn meðal stór
6 x Gúramar (3-spot)
5 x Harlequin rasbora
5 x Gull barbar
6 x Banda barbar (-1)
1 x Gibbi (18cm)
1 x Eldhali
4 x Ancistrur
3 x Yoyo bótíur


er með Tetra Ex 700 dælu (700 l/klst)
Hef verið að þrífa dæluna á 2 mánaða fresti.
Vikuleg vaskskipti á búrinu sjálfu 40-50%

Á að vísu ekki NO3 test, reyni að redda því á morgun, ekki óvitlaust að eiga það.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

SAE ætti svonsem að vera harðgerðari en t.d. rasborurnar, hafa þeir ekkert vertið að tína tölunni?
Svo er náttúrulega möguleiki að þetta sé innvortis bakteríusýking, en ég veit ekki hvort að fiskurinn ætti að belgjast svona mikið út við það. En jú, það væri góð byrjun að tékka á no3
Post Reply