Veikir malawi fiskar
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Veikir malawi fiskar
Við erum með 95 lítra búr með 5 malawi fiskum, tveim ryksugum og einum humri.
Við erum með frontósu, johannii og maingano og svo tvo fiska sem ég veit ekki alveg hvað heita, en líta svona út:
Annar þessara fiska byrjaði að synda í hringi í gærkvöldi, synda á hlið og "krassa" á hluti. Lenti t.d. í eitt skiptið á humrinum, hvorugum til mikillar gleði.
Hann lá svo á botninum og synti örlítið áfram hægt og hægt, en við náðum þá að veiða hann upp úr og setja hann í dollu með vatni í og þar dó hann.
Síðan í morgun var hinn svona fiskurinn dáinn.
Við erum búin að leita að öllum fjandanum sem getur verið að, og ég fann rækjubita á botninum á búrinu sem voru svona eiginlega "púffaðir".
Við neyðumst til að gefa þeim það mikið svo eitthvað detti á botninn handa humrinum (lentum í því fyrst að humarinn var svangur og kleip mikið í frontósuna) en getur verið að þetta sé að menga búrið?
Það er ekki langt síðan við skiptum um vatn, - eða bara núna á mánudaginn, um svona 30-40%.
Hinir fiskarnir veigra sér núna við að vera í miðjunni á búrinu og eru allir útí horni hjá dælunni.
Humarinn var þar líka lengst af, en er núna búinn að færa sig í hinn endann á búrinu.
Er nóg fyrir okkur að kaupa ryksugu og ryksuga upp botninn?
Eða gæti þetta verið einhver sjúkdómur?
Hvernig gefum við svo humrinum að éta ef við ryksugum allt upp af botninum?
Með fyrirfram þökk
Tigra

Þetta eru julidochromis
Það má alls ekki láta rækjur liggja í búrum því þær menga mjög fljótt. Mjög líklegt að fiskarnir hafi bara verið viðkvæmari en hinir fyrir menguninni og drepist útaf því. Skiptu um vatn asap og fylgstu með hinum fiskunum.

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Skipta um allt að 50% af vatninu næstu dagana og sjá hvort þetta lagist ekki. Henda líka salti í, 1-2gr á lítra.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Veikir malawi fiskar
Skil ég rétt að þú sjúgir aldrei drullu upp úr botninum?Tigra wrote: Er nóg fyrir okkur að kaupa ryksugu og ryksuga upp botninn?
Ef það er rétt skaltu drífa þig í næstu gæludýrabúð, fá þér botn ryksuguslöngu og drífa í því að skipta um vatn með henni og sjúga upp úr botninum. Þetta skaltu gera nokkru sinnum næstu daga.
Þú þværð aldrei síuna er það heldur?
Re: Veikir malawi fiskar
Ég er nú bara búin að eiga búrið í 2 vikur. Hefur ekki komið til þess að við höfum þurft að þrífa mikið.Hrafnkell wrote:Skil ég rétt að þú sjúgir aldrei drullu upp úr botninum?Tigra wrote: Er nóg fyrir okkur að kaupa ryksugu og ryksuga upp botninn?
Ef það er rétt skaltu drífa þig í næstu gæludýrabúð, fá þér botn ryksuguslöngu og drífa í því að skipta um vatn með henni og sjúga upp úr botninum. Þetta skaltu gera nokkru sinnum næstu daga.
Þú þværð aldrei síuna er það heldur?
Höfum þrifið síuna samt einu sinni.
Re: Veikir malawi fiskar
Til hamingju með búrið. En þú skalt ekkert vera að þrífa síuna.Tigra wrote: Ég er nú bara búin að eiga búrið í 2 vikur. Hefur ekki komið til þess að við höfum þurft að þrífa mikið.
Höfum þrifið síuna samt einu sinni.
Það gerir illt verra. Bara skola hana 1 sinni í mánuði úr vatni sem þú tókst úr fiskabúrinu.
Lestu þetta hér.
Johannii-inn er dauður.
Maingano-inn og humarinn eru að fela sig saman, en virðast sprækir, amk miðað við aðstæður.
Frontoósan er svo líka að fela sig þannig að það er erfitt að fylgjast með þeim, en hún virðist líka vera í lagi... án þess þó að ég viti það. Johannii virtist í lagi í gær.
Hvenær get ég búist við að þau fái matarlyst aftur og komi úr felum? (þ.e. ef þau verða ekki dauð fyrst)

Ammóníum í hámarki eftir hálfan mánuð frá uppsetningu búrs. Fiskarnir hjá þér veikjast eftir hálfan mánuð!!!
Svo kemur nítrit hámarkið eftir mánuð frá uppsetningu.
Búrið á eftir að ná jafnvægi.
Skipta ört um vatn eða fá vatn frá eldri búrum, ég held að saltaustur skipti engu máli.
Heimild af grafi:
http://images.google.com/imgres?imgurl= ... soft:en-US

ef þú verður dugleg við vatnsskifti ætti allt að komast í lag aftur
þrífðu dæluna því flóran er eflaust dauð eftir eitrunina og eflaust drullug því þú virðist vera að gefa allt of mikið í búrið og þú ert því að drepa fiskana á því
humarinn finnur alltaf eitthvað sem til fellur á botnin þannig að ekki hafa miklar áhyggjur af honum
meiri hlutinn af fiskunum þínum var úr Tanganyika vatni
sá sem seldi þér lyf við eitruninni veit varla meira um fiska heldur en þú
og þú ættir að fá það endurgreitt
því miður er mikið af starfsfólki í gæludýrabúðum ekki með fiska og er því oft að giska á rétt svar sem er ekki gott
reyndar er það stundum líka hér á spjallinu en það er oftast leiðrétt af þeim sem hafa meiri reynslu

www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
Takk æðislega.
Fiskarnir virðast vera hraustir, þeir tveir sem eftir lifðu, og humarinn er sprækur líka.
Frontósan er eldhress en maingano-inn er enn frekar taugaveiklaður og feiminn og felur sig mikið.
Þetta lyf sem ég fékk heitir Safe Water (veit nú ekki hvort það er hægt að kalla þetta lyf) en á því stendur "Removes harmful ammonia and nitrite"
Hvenær haldiði að það sé óhætt að kaupa fleiri fiska?
Get ég ekki keypt einhverstaðar svona eiturefnamæli til að sjá ástandið á vatninu?
Hvað þarf ég svo að skipta oft um vatn þessa dagana?
Er búin að skipta á hverjum degi síðan þetta gerðist, nema í dag, en ætla örugglega að skipta á morgun.
Hvað er svo ráðlegt að skipta oft í framtíðinn, þegar búrið hefur náð jafnvægi?

- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
það er hægt að kaupa svona:
eða sambærilegt í fiskabúðum. kostar svona 2-4þ og sýnir hver staðan er á vatninu.
Annars er ágætt að miða við 30-50% vatnsskipti, vikulega til mánaðarlega... fer eftir stærð búrs, fjölda fiska, hreinsibúnaði...
ég skipti sjálfur aldrei um minna en 50% í mínum búrum og reyni að gera það vikulega, stundum dregst það í 2 vikur.
En ef þú gefur hóflega ættu 2vikur að vera fínt.

Góðar fréttir! Þér virðist vera að takast að bjarga þessu.Tigra wrote:Takk æðislega.
Fiskarnir virðast vera hraustir, þeir tveir sem eftir lifðu, og humarinn er sprækur líka.
Það er talað um að það taki að minnsta kosti 6 vikur fyrir góð bakteríuflóru að ná sér á strik. Leyfðu þeim að líða núna og bættu svo rólega fiskum í búrið.Tigra wrote: Hvenær haldiði að það sé óhætt að kaupa fleiri fiska?
það á frekar að gefa fiskum sjaldnar og minna í einu, heldur en oft og mikið. minna er betra. 1-2 á dag, morgnanna og kvöldin er nog. of mikill matur mengar bara vatnið, passaðu að mikill matur falli ekki á botninn og nái að rotna og valda mengun.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L