Er með demantasíkliðu par sem var að hrygna .. kann NÚLL á svona og nú eru aðrar síkliður með þeim í búrinu ..þarf ég að taka þau uppúr ? eða hvað á ég að gera svo þau verði ekki étin
KV
Demantasíkliða var að hrygna
Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Demantasíkliða var að hrygna
Best að leyfa þeim bara að sjá um þetta sjálf, amk til að byrja með, þau passa seiðin en það væri öruggara að taka þau frá þegar þau eru orðin frísyndandi ef þú vilt halda þeim öllum.
Re: Demantasíkliða var að hrygna
takk þau eru farin að dreifa ser um botninn.. "fæddust" samt bara í gærkvöldi.. er búin að forða botnryksugum burt því foreldrarnir voru farnir að éta uggana á þeim.. hinir fiskarnir virðast halda sig í hinu horninu
- Guðrún