jæja ég kem með spurningu

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

jæja ég kem með spurningu

Post by helgi1111 »

ég er með 250l búr og það er alltaf skítugt mér vantar góð ráð hvernig á að halda þessu hreinu er með malaví.

er með tunudælu og allt draslið.
takk
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Minnka matargjöf, þrífa sandinn og skipta oftar um vatn

hvernig er það skítugt, þörungur?
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ef þú ert ekki með plegga, fáðu þér þá einn.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég spyr eins og Guðjón, hvernig skítugt ?
Ef mikill þörungur er í búrinu er það yfirleitt vegna og mikils ljóss eða dagsbirtu og of mikils fóðurs.
Ef mikill skítur frá fiskunum er sjáanlegur í búrinu þá er málið að ryksuga botninn og jafnvel líka gefa minna.
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

ég skifri vatn í hverju viku það er ein pera og sólaljósið skínir stundum á það og ég gef þeim ekki mikin mat
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

ég er með blega og 4 katt fis 1 rigsugu
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

það er svona gult brúnt vatnið og sandurin er allur grædn
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Sólarljós eykur græna þörunginn svo og langur ljósatími. Brúni þörungurinn lifir ágætlega í minna ljósi og jafnvel mjög litlu í nýjum búrum.

Hvað er búrið gamalt hjá þér? Ertu með einhvern gróður?
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

búrið er svona 1 árs, já það er ein planta
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Hefurðu "ryksugað" botninn eins og Vargur bendir á?
Hefurðu hreinsað dæluna reglulega og skipt um filter?
Hefurðu sett eitthvað út í svo sem viðarkubb eða annað sem getur gefið lit?

Þú skalt athuga hvort dælan hjá þér sé að dæla nógu vatni með því að setja hendina fyrir útstreymið og finna hvort straumurinn er sterkur.
Það er hægt að fá filterefni sem vinnur gegn þörungum, hreinsar siliköt og fosföt úr búrinu.
Þú getur líka athugað með að fá þér UV filter fyrir búrið, sem drepur bakteríur og þörunga ofl.
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

[quote="Rodor"]Hefurðu "ryksugað" botninn eins og Vargur bendir á?
Hefurðu hreinsað dæluna reglulega og skipt um filter?
Hefurðu sett eitthvað út í svo sem viðarkubb eða annað sem getur gefið lit?

já ég hef rigsugað botnin, ég hreinsa dæluna aðra hvora vikuna
hvað er filter?
já ég seti rót í birjun búrsins en tók hana upúr að því hún lidaði búrið svo mikið
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Filter er sama og sía. Skoðaðu myndina af dælunni sem er á þessari síðu:

http://images.google.is/imgres?imgurl=h ... D%26sa%3DN

Það þarf að skipta um og/eða hreinsa draslið sem er innan í þessum dælum. Svo þarf að passa upp á að dælan dæli eftir hreinsun, það verði ekki lofttappi sem heftir rennslið. Þess vegna skaltu athuga hvort dælan þín dælir af krafti.
Ég hef lent í því að rennslið minnkaði mjög mikið hjá mér, sennilega vegna þess að það þurfti að skipta eða hreinsa filter/síu.
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

ok takk firir ábendinguna
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Stafsetningin þín er alveg hræðileg helgi, ertu lesblindur eða bara latur?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply