400 l ameríku/monster búr Vargs

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

400 l ameríku/monster búr Vargs

Post by Vargur »

Tók Hrappinn til fyrirmyndar og smellti upp nýju búri.
Aulaði loks með aðstoð Skúla heim nýja búrinu í dag. Þetta búr kemur í staðinn fyrir 500 l búrið sem ég seldi um páskana.

Ég færði hitt 400 l búrið og smellti þessi bara við hliðina á, samtals þá 3 lengdarmetrar af búrum.

Image
3metrar og 800 lítrar.

Image
Um leið og vatnið var komið í fóru fiskarnir í búrið, límmiðinn enn framan á glerinu.

Image
Hver þarf sjónvarp með svona í stofunni.

Búrið er náttúrulega bara uppsett í sama stíl og vanalega og svipað og það var fyrir.
Last edited by Vargur on 04 Feb 2008, 20:09, edited 1 time in total.
Einar
Posts: 63
Joined: 09 Apr 2007, 01:04

Post by Einar »

Þetta er geggjað!! Ég sé að það eru ansi margir með nokkur búr í gangi. Ég er kominn með eitt í gang og það er farið að líta vel út.. en ég er líka byrjaður að mæla íbúðina og spá í hvað ég kæmi mögulega mörgum búrum fyrir hahahaha ... þetta er ekki hægt...!! langar í arowönu. Þetta er glæsilegt stofustáss!!
Rúnar Haukur
Posts: 160
Joined: 13 Nov 2006, 19:13
Location: Akureyri - norðan við á
Contact:

Post by Rúnar Haukur »

Flott af hafa svona raðhúsastíl á þessu
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ekki slæmt... Færðu þér einhverja nýja fiska í þetta eða er þetta eitthvað úr öðrum búrum?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er að minnka um 350 lítra þannig nýjir fiskar eru ekki á döfinni nema eitthvað mega detti inn.

Nú eru í búrinu
3 Óskarar
2 Nicaraguence
2 Geopagus brasiliens
1 Green terror
1 pleggi
2 Styrjur
1 spilurus
1 P. pulcher
2 bótíur
og Red tail catfish.

Sennilega fer svo Walking cat í það þegar hann kemur heim.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

þetta litur flott út - er serstaklega hrifinn á þessum hægra megin :D
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

helv. er þetta töff. . ég er að fíla "raðhúsastílin"
maður ætti kannski að apa þetta eftir ??

ánægður með þessa framkvæmdargleði hjá þér vargur og nú er klárlega kominn tími á innlit hjá kappanum..

hvorutveggja flott búr en ég er sérstaklega hrifinn af búrinu vinstramegin :) rætur og óskarar , einhver fetish í gangi.?

óli
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvernig væri að Hrappz skellti sér bara á annað 900 l til að gleðja frúna. :panna:

Svo sem ekkert nýtt fetish í gangi hjá manni , bara gamla Óskara klikkunin.

Sorglegt frá því að segja að önnur styrjan þoldi ekki flutninginn og gafst upp.
Einnig hafa einhverjir fiskar týnst í þrengslunum í 250 l búrinu, einn stór brúskur, convickt kerling, eitthvað af spilurus og svo bjargaði ég stóra gamla convict karlinum upp úr búrinu í vikunni gjörsamlega í henglum.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Vilja styrjur ekki helst aðeins kaldara vatn en þetta?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það eru skiptar skoðanir á því en almennt er talað um að hiti yfir 20° sé ekki góður en þó í lagi í einhvern tíma. Þær hafa verið í 22° hjá mér en sennilega verður þó nýja búrið eitthvað heitara, hitt Juwelið er í 24° hjá mér án hitara.
Reyndar er sennilega orsokin hjá styrjunni súrefnisleysi, alltaf ef ég færi fiskana fara þær strax illa ef þær eru í bala meðan á flutningum stendur, næst verður loftdæla þar.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þið eruð flottir saman þú og nafni :lol:
Þetta er flott að setja búrin saman.
Það má segja að búrin bara stækka og stækka.

Til lukku með þetta allt saman.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Takk fyrir Ólafur.

Skondið hvað fiskarnir fá að upplifa nýja hluti, þeir sjá greinilega vel á milli búra og eru ansi áhugasamir um það hvað nágrannarnir eru að gera. :D
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Nú er vatnið orðið tært í búrinu og tími á nokkrar myndir.

Image
Green terror.

Image
Nicaragence.

Image
Bótíur.

Image
Lutino Óskar.

Image
Geopagus brasilens.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Flottir fiskar og góðar myndir.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Glæsilegar myndir hjá þér !
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

keli wrote:Vilja styrjur ekki helst aðeins kaldara vatn en þetta?
búin að vera að pæla svoldið í þessu eimitt,
finnst þær svo skemmtilegar, til falleg demantsstyrja
og albinói í fiskó sem eru bara fallegar
en já en er ekki beint að fara að setja svona í tjörn þar sem ég á enga :mrgreen:

en það semsé gengur að hafa þær í c.a. 22°C, gott að vita :)
Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það gengur allt fínt í búrinu.
Geopagus parið ólmast við að finna hentugan hrygningastað með tilheyrandi árekstrum við aðra íbúa búrsins, aðallega þó Nicaraguencinn sem sennilega er karl.
Red tail catfish heldur sig undir dælunni og rétt skreppur fram ef fæða er á boðstólum.
Setti hvítan convict karl í búrið, hann er um 5 cm og er búinn að vera í uppeldi í öðru búri. Stærsti óskarinn elti greyið á röndum fyrsta daginn en fékk svo leið á eltingaleiknum. Sá hvíti sómir sér vel í búrinu en heldur sig þó til hlés og hefur varan á.

Image
Hvíti convict karlinn.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti í búrið öðrum Green terror (sennilega karl) og einum spilurum, baðir eru frekar litlir, ca. 5 cm en virðast ætla að plumma sig í búrinu.
Geopagus parið er sennilega búið að hrygna bakvið stærri rótina í búrinu.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Image
Ný mynd af búrinu, tekin í gærkvöldi.

Image
Nicaraguense.

Image
Þessi er sett inn spes fyrir Birki, svona verður liturinn sem þú ert svo hrifinn af þegar þeir stækka.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Image
er það bara ég eða er lögunin á kauða eitthvað skrítin? :?:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú ert ekki skrýtinn... :? :-)
Hann er aðeins styttri og kubbslegri en hinir.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Image

Ný mynd af búrinu.
Eins og sést hafa sumir stækkað og er kominn tími á að einhverjir flytji af heiman. Ég þarf að fara að velja. :?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

rt og skóflunebba í sérbúr og málið er leyst .. !
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

helv. er sá brasílíski að verða stór hjá þér ..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Já, hann er orðin flottur og er í miklu uppáhaldi, kerlan stækkar reynar hægar enda síhrygnandi. Mig langar mikið til að setja parið sér og ná undan þeim.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Andskoti er rtc orðinn stór... hvað heldurðu að hann sé langur?

Ég myndi bjóða þér að henda honum í tjörnina hjá mér, en það er ekki komið heitt vatn í hana ennþá :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

RTC er orðinn 30 cm enda á milli, ég er þó að reyna að gefa lítið, bæði til að halda vextinum eitthvað niðri en þó aðallega til að halda vatnsgæðum betri. Fyrir bragðið er kappinn mikið á ferðinni í ætisleit, þegar ég svo hendi mat í búrið sturlast hann og sópar upp í sig, svo eltir hann óskarana ef þeir eru með bita upp í sér og böggast í þeim svo þeir missi matinn út úr sér.

Image
Rtc kemur alltaf á móti hendinni og bítur í puttana.

Image
Hér bankaði hann í óskar til að ná matnum af honum.

Ég var að taka eftir því að hvítur convict karl sem sést hér ofar á síðunni er horfinn,
....hmmm hvert skyldi hann hafa farið. :?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Er rtcinn kominn með gill curl? (krullutálkn?)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Já hann er búinn að vera með þetta í nokkurn tíma öðrum megin. Þetta virðist algengt með RTC en ég man samt ekki eftir skýringu á hvers vegna þetta kemur. Veist þú hana Keli ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta er víst útaf slæmu mataræði og aðallega slæmum vatnsgæðum á einhverjum tímapunkti í lífi fisksins... Þetta fer aldrei þannig að þetta gæti hafa gerst áður en þú fékkst fiskinn..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply