Staðsetning tunnudælu?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Staðsetning tunnudælu?

Post by hlb »

Sælt veri fólkið, við feðgarnir erum að setja saman gamalt fiskabúr sem við keyptum notað fyrir einhverjum árum, og búið að liggja og bíða eftir "rétta tímanum" sem er semsagt kominn :) Við erum að spá, hvort tunnudælan okkar þarna á hillunni (sjá mynd) megi vera fyrir ofan búrið? eða verður hún að vera neðan?

Okkur vantar einnig einhverja skemmtilega lausn á lok/ljós málum, þar sem lokið sem var með búrinu fór í klessu í fluttningum fyrir ekki svo löngu síðan :(

útlitið á græjunum skiptir ekki máli, þar sem þetta er bara ofaní kjallara, bara fyrir okkur að dunda :)

Kv
Hlynur (42)
Máni (bráðum 7)

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Tunnudælan er vanalega höfð fyrir neðan búr.
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Vargur wrote:Tunnudælan er vanalega höfð fyrir neðan búr.
Takk fyrir það, en "vanalega" er samt ekkert bannað að hafa hana fyrir ofan, þá er ég að meina skemmir það nokkuð dæluna? Skápurinn undir er nefnilega fullur af drasli sem ég hef eiginnilega ekki pláss fyrir annastaðar :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hvar fékkstu þennan skenk? hann minnir skuggalega á einn sem við vorum með undir búri og gáfum fyrir ári :) ég styrkti hann að innan með vinklum.
-Andri
695-4495

Image
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Andri Pogo wrote:hvar fékkstu þennan skenk? hann minnir skuggalega á einn sem við vorum með undir búri og gáfum fyrir ári :) ég styrkti hann að innan með vinklum.
Þessi kemur frá Ömmu og Afa :) en ég er ekki frá því að hafa séð myndir af þínum fyrrverandi hér einhverstaðar á spjallinu, þeir eru bara nákvæmlega eins :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

hlb wrote:
Vargur wrote:Tunnudælan er vanalega höfð fyrir neðan búr.
Takk fyrir það, en "vanalega" er samt ekkert bannað að hafa hana fyrir ofan, þá er ég að meina skemmir það nokkuð dæluna? Skápurinn undir er nefnilega fullur af drasli sem ég hef eiginnilega ekki pláss fyrir annastaðar :)
Það er ekkert sem bannar að hafa tunnudæluna ofan við búr meðan hún dælir vandræðalaust. Ég mundi samt stytta inntaksslönguna þannig að dælan þurfi ekki að hafa mikið fyrir því að draga vatnið upp.
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Vargur wrote:
hlb wrote:
Vargur wrote:Tunnudælan er vanalega höfð fyrir neðan búr.
Takk fyrir það, en "vanalega" er samt ekkert bannað að hafa hana fyrir ofan, þá er ég að meina skemmir það nokkuð dæluna? Skápurinn undir er nefnilega fullur af drasli sem ég hef eiginnilega ekki pláss fyrir annastaðar :)
Það er ekkert sem bannar að hafa tunnudæluna ofan við búr meðan hún dælir vandræðalaust. Ég mundi samt stytta inntaksslönguna þannig að dælan þurfi ekki að hafa mikið fyrir því að draga vatnið upp.
Takk fyrir skjót svör, ég mun stytta í slöngunum. Endilega bendið á það sem betur má fara hjá okkur, eigum eftir að finna eitthvað grjót og stuff til að setja í búrið, og finna út úr ljósamálum :) og finna flottann bakgrunn.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er alveg hissa á að dælan virki svona, þær eru ekki gerðar fyrir að vera fyrir ofan búr og ekki víst að það gangi til langs tíma.

Mig grunar að hún gæti átt erfitt með að fara í gang aftur ef það fer straumur af henni.. Prófaðu amk að taka hana úr sambandi í 1mín og setja aftur í, hvort hún fari í gang aftur. Það verður amk að vera 100% að úttakið sé vel fyrir neðan vatnsyfirborð, því um leið og það kemst loft að því og straumurinn fer af, þá fer hún ekki í gang aftur án aðstoðar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Allavega eins og með mína að þegar að ég þríf hana og áður en ég set hana í gang þá opna ég fyrir inntak og úttak og þá fyllir hún sig sjálf, og myndi ég ekki sjá það gerast þegar hún er fyrir ofan og þá fer ekki vatn úr búrinu í hana eða hvað?

Allavega eins og keli segir þá er möguleiki á að hún muni ekki virka svona (eða allavega ekki lengi) þar sem að þær eru gerðar fyrir að vera fyrir neðan og allt systemið örugglega lagað að því :)
200L Green terror búr
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Takk allir, vissi að það myndi borga sig að spyrja! :) Við fórum í að breyta þessu (sjá myndir) Dælan kemur bara ágætlega út við hliðina á Sven Hasel bókunum :D (á eftir að stytta í slöngunum)

Seinni myndin sýnir hvernig við höfum hugsað okkur að hafa þetta, finnst ykkur einhverja breytinga þörf? T.d straumdæla eða hitari?

Image

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta lítur fínt út, ætti alveg að ganga fínt. Hvað ætlarðu að hafa í búrinu og hvað er það stórt?


Varðandi lokið, þá gætirðu smíðað nýtt bara og jafnvel notað ljósin úr gamla lokinu. Ég t.d. smíðaði úr krossviði og finnst það koma ágætlega út.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

eg sjalfur hef ekkert a framrudunni, ohindrad innsyni i burid :)
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

keli wrote:Þetta lítur fínt út, ætti alveg að ganga fínt. Hvað ætlarðu að hafa í búrinu og hvað er það stórt?


Varðandi lokið, þá gætirðu smíðað nýtt bara og jafnvel notað ljósin úr gamla lokinu. Ég t.d. smíðaði úr krossviði og finnst það koma ágætlega út.
Búrið var mér sagt vera 125L Það er 100x30x38 að mig minnir, sem eru ca 120L ekki satt?

nÍbúar :) í búrið er alveg óákveðið, höfum ekki hugmynd hvað við viljum :? Það er svo svakalegt úrval af fiskum til. Erum samt búnir að ákveða að hafa ekki Gubby og Gullfiska, ég var með svoleiðis fiska fyrir 30 og eitthvað árum, og mér fannst það ekki skemmtilegir fiskar.

Við viljum ekki hafa gróður í búrinu, þannig að fiskaval ræðst svolítið eftir því.

Ætlum á eftir að skreppa í krísuvík og Grindavík, að finna steina og eitthvað í búrið, en hugmyndin er að hafa þetta einfalt og íslenskt :) erum t,d með perlusand frá BM vallá í búrinu, skoluð og soðin kemur bara fínt út sýnist mér. Hefði kannski át að setja aðeins meira í búrið, geri það kannski, á einhver 20 kg eftir í pokanum :)

Ljósamál, þau eru í vinnslu :) fer allt eftir kostnaði hvernig það verður leyst.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Flott búr hjá ykkur :)

Mér finnst ekkert að því að hafa opinn topp á sumum búrum og hafa bara flúor lampa fyrir ofan búrið (Þá kanski hengja hann upp í loftið með keðju eða vír)

Oft mjög gaman að geta séð ofan í allt búrið
Kv. Jökull
Dyralif.is
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Squinchy wrote:Flott búr hjá ykkur :)

Mér finnst ekkert að því að hafa opinn topp á sumum búrum og hafa bara flúor lampa fyrir ofan búrið (Þá kanski hengja hann upp í loftið með keðju eða vír)

Oft mjög gaman að geta séð ofan í allt búrið
Það er reyndar alveg hugmynd, og láta sníða glerplötu yfir svo að gaurarnir hoppi ekki upp úr búrinu :) Kötturinn minn hún Mía yrði annars hrifin af því hún elskar hráann fisk :D

Annars er kominn íbúi í búrið, held að þetta heiti Brúsknefur? Hann var eini fiskurinn sem eftir var í pínu litlu búri, í vinnunni hjá mér og var á leiðinni í klósettið! Svo að ég áhvað að gera hann að tilraunadýri hjá mér:) ef hann lifir fram á næsta föstudag, er óhætt að fara að kaupa fleirri fiska. Annars er búrið okkar frekar skýjað á að líta, er það ekki bara eðlilegt fyrir nýtt búr, meðan flóran er að koma? Erum að setja Nitrivec út í, 10 ml á dag í tíu daga, eins og segir á brúsanum. Settum í upphafi Aquatan í vatnið. Eru einhver fleirri efni sem má nota til að bæta vatnið?

Mynd af kvikindinu.

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það má svosem alveg sleppa þessum efnum, láta búrið bara ganga í 1-2 sólahringa og það ætti að duga.

þetta er þrælflottur brúskakarl.
-Andri
695-4495

Image
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Andri Pogo wrote:það má svosem alveg sleppa þessum efnum, láta búrið bara ganga í 1-2 sólahringa og það ætti að duga.

þetta er þrælflottur brúskakarl.
Ég kláraði brúsan :) það voru þá fjórir dagar í efnameðferð :)

Svona ætlum við að hafa búrið til að byrja með.


Image

Fjarlægði hitaran hann kveikti aldrei á sér, samt er hitinn stöðugur á 24 gráðum. Fjarlægði straumdæluna, henni var held ég ofaukið svakalega kraftmikil!

Miða við þessa uppsetningu hvaða fiska er hægt að ala í búrinu?

Og svo ég haldi áfram með dæluspurningar, er í lagi að hafa dæluenda s.s out endan svona opin? eða á maður að hafa rörið með litlu götunum á?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Lítur vel út! Annað búrið hjá mér er hitaralaust og stendur einmitt alltaf í 24°, nokkuð eðlilegur stofuhiti greinilega! Nú er bara spurningin, í hvað langar ykkur? Ekki gúbbí eða gullfiska..... ekki þá kannski sverðdraga eða molly sem eru gotfiskar eins og gúbbí.... hvað þá með síkliður? óteljandi týpur til... sniðugt að skoða síðuna hjá tjörva, www.tjorvar.is og skoða svo hvað er í búðunum, skoða fiskaspjall og sjá hvað fólk er með í búrunum hjá sér og hvað ykkur finnst passa ykkur. Fá svo ráðleggingar í vandaðri búðunum og velja vel saman. Þetta verður bara glæsilegt!
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hvernig gastu tekið myndina með hendur í vösum? :shock:

það er allt í lagi að hafa úttakið svona opið, bara smekksatriði, ég er með svona opið á annari dælunni en spraybar á hinni.
Snýst bara um að ná góðri hringrás, sem ég hef btw ekki náð enn.

ég myndi prófa að skella Malawi síkliðum í búrið ?

http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Fis ... grein_.htm

eða

http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Fis ... _grein.htm
-Andri
695-4495

Image
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Andri Pogo wrote:hvernig gastu tekið myndina með hendur í vösum? :shock:
Já manni er margt til lista lagt :wink: nei nei :) var með þrífót og myndin tekin á tíma. Var nú ekki búinn að taka eftir sjálfum mér þarna, það var eins gott að maður var ekki að stripplast akkúrat þarna :shock:

Ég er að spá í að fá mér Blue Acara seyði sem gunnikef er að auglýsa hérna á síðunni. Ganga Malawí síkliður með mið ameríku síkliðum?
User avatar
gunnikef
Posts: 281
Joined: 01 Mar 2008, 10:42
Location: keflavik

.

Post by gunnikef »

nei en eg var með 180litra búrið hja mer með mix og það gegg alveg en eg mæli ekki með því
gunni
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já soldið spúkí að sjá þig speglast þarna í glerinu með hendur í vösum. var einmitt að enda við að horfa á myndina Shutter, þeir sem hafa séð hana, skilja hvað ég á við :)

það væri flott að hafa Blue Acara í þessu búri, virkilega fallegir fiskar. og þrælmyndarlegur brúskakarl sem þú ert með þarna 8) hvað er kvikindið stórt?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

Lindared wrote:já soldið spúkí að sjá þig speglast þarna í glerinu með hendur í vösum. var einmitt að enda við að horfa á myndina Shutter, þeir sem hafa séð hana, skilja hvað ég á við :)

það væri flott að hafa Blue Acara í þessu búri, virkilega fallegir fiskar. og þrælmyndarlegur brúskakarl sem þú ert með þarna 8) hvað er kvikindið stórt?
Brúskakarlinn, eða Nilfisk eins og hann er kallaður orðið á þessu heimili :) er sennilega 6 til 8 cm gæti verið stærri, Langar að finna kerlingu handa honum :) þær liggja bara ekkert á lausu :( Hann er alveg rosalega hlédrægur greyið, maður varla sér hann á ferli.

Núna er ég að fara smíða lok á herlegheitinn, hvernig sem það nú gengur! ekki beint laghentur þegar að timbri kemur, en við sjáum hvað kemur út úr því :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það voru til stórar brúsk kerlingar í dýragarðinum seinast þegar ég vissi..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
hlb
Posts: 70
Joined: 16 Aug 2008, 20:25

Post by hlb »

keli wrote:Það voru til stórar brúsk kerlingar í dýragarðinum seinast þegar ég vissi..
Já, fór þangað í gær myndar kellingar alveg :)

Og svo maður haldi nú áfram með lok/ljós vandamálin (eða kannski ekki vandmál lengur) Ég verð bara að viðurkenna að ég kann ekkert að smíða úr timbri, en mér var ráðlagt að nota það efni í lok. Þannig að ég fór að brainstorma :) og teiknaði lok í sinni einföldustu mynd (braggalag) setti öll mál inn á teikninguna og fór í blikksmiðju sem heitir Ísloft, gaurinn sem ég talaði við taldi þetta ekki vera mikið mál að smíða úr 1.5mm blikki og kostaði eitthvað rúmlega 5000 kall. þá á eftir að koma ballaest fyrir og kaupa peru, þannig að lok + drasl í það væri þá komið í rúmlega 10.000 kall. Held að þetta sé besta lausnin.
Post Reply