Búrin okkar - Hanna og Pasi

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Búrin okkar - Hanna og Pasi

Post by Hanna »

Jæja er að spá í að skella upp smá þráð um búrin sem ég og kallinn erum með :D
Þetta er hobby sem er fljótt búið að vinda upp á sig og sem betur fer erum við bæði alveg húkt á þessu :D

Þetta byrjaði þannig að ég fékk kallinn til að gefa mér eitt lítið og sætt 60lítra búr í afmælisgjöf núna í febrúar, þó að hann hafi nú ekki verið sáttur við það. Í það fóru 3gubbý og ein ancistra en þeir drápust fljótt og síðan þá hef ég verið að reyna að halda einhverju á lífi í því búri. Loksins tókst það (7,9,13, banka í tré) og er ég nú með 5gubby, 4 cherrybarba, tvo sverðdraga, 5ancistrur og par af dvergsíkliðum sem ég er reyndar ekki alveg sátt við. :? Þannig ef einhverjum langar í par endilega hafið samband...

En já tveimur vikum síðar var kallinn kominn með delluna og vildi endilega fá sér líka búr. Og hann þurfti náttlega að láta eins og þessi týpíski kallmaður og þurfti að fá stærra, betra og flottara :P en hann fékk sér semsagt 180l búr sem við fengum hér á spjallinu og er hann ennþá að sanka að sér einhverju sniðugu í það. Núna eru 4skalar, 3sverðdraga, tvo gullbarba, tvær svarttetrur, einn afrískan fiðrildafisk, einn synadontis talking kattfisk, einn pangasius hákarl, tvo upside-down kattfiska og 3ancistrur.

Þetta var semsagt í apríl. Núna erum við hins vegar svoldið búin að missa okkur. Við fengum 4 ca 100l búr og eitt 160l búr og erum svona að ákveða hvað eigi að vera í þeim. Eitt af þeim er notað sem seiðabúr og í því eru núna um 40 guppyseiði sem ég vonast til að geta komið uppí almennilega stærð þar sem við höfum fengið það æðislega job að sjá annarri gæludýrabúðinni hér á Selfossi fyrir a.m.k. guppy og ancistrum. Einnig er í því par af ancistrum, albínóakall og venjulega brún kelling og vonumst við eftir hrygningu hjá þeim.

Annars held ég að þetta sé bara orðið gott í bili og ég reyni að skella inn nokkrum myndum á eftir.. þær eru nebblega ekki í minni tölvu :oops:
Last edited by Hanna on 09 May 2008, 23:18, edited 1 time in total.
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

vá, það er naumast af búrum! En endilega koma með myndir, er til í að sjá hvernig skalinn sem ég seldi þér plummar sig :P
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

er að láta kallinn vinna í því :P en hann er annars að plumma sig fínt.. er orðin nokkuð viss um að hann hafi verið kelling og að ég sé komin með kall handa honum :lol:
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

úú :D hehe, ég vissi aldrei hvort kynið hann, núna hún, var :D Hefuru farið nýlega í búðina á self? Ekkert smá stór kk skali þar :shock: Geðveikt handsome! Meira segja með smá hnúð og svona dökkur 8)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ertu að tala um búðina í kjarnanum? það er ógisslega langt síðan ég fór þangað.. þarf að kíkja þangað á morgun
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

jám :P hann er huge stór skalara karlinn!
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

hér koma einhverjar myndir :P

Post by pasi »

myndir af búrunum okkar... á eftir að setja inn mynd af hillunni með 4búrum :) Image
Image
Image
Image
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hehe það er naumast hvað þetta vatt fljótt upp á sig :P Ég einmitt suðaði um 60L búr í október á síðasta ári, svo varð kærastinn líka svo hrifinn af þessu og við fengum okkur 180L búr í mars en losuðum okkur við það litla enda lítið pláss hérna hjá okkur :P En þetta er ótrúlega skemmtilegt áhugamál og alltaf hægt að finna eitthvað flottara og meira í búrin :P svo er orðið gaman að skoða í fiskarekkana :P ég einmitt skoðaðið hamstrana og búið :P fiskar voru bara ekki til fyrir mér og fannst mér þeir ekki skemmtilegir, en svo breytist allt :P

En vonandi koma svo fleiri myndir :D alltaf gaman að sjá myndir af búrunum. En flott búrin sem að eru myndir af ;)
200L Green terror búr
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Flott rótin á efstu myndinni :)
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

hehe já finnst þér ekki :P erum líka mjög sátt með hana
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

gaman að þessu hjá ykkur.. hlakka til að sjá fleiri myndir
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

vorum að koma úr menningunni (rvk) og misstum okkur aðeins í að versla. Erum aðeins búin að breyta í búrunum og eru ca 20stk gubby í 60l búrinu og cherrybarbarnir og dvergsíkliðurnar eru komnar í 100l búr ásamt einum stórum gullfisk (bara tímabundið) og sverðdragarnir eru komnir í annað 100l og eru þeir allt í allt um 10stk. :P

erum búin að heyra það soldið mikið uppá síðkastið að við séum klikkuð að vera að þessu :oops: hvað finnst ykkur?
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hanna wrote:vorum að koma úr menningunni (rvk) og misstum okkur aðeins í að versla. Erum aðeins búin að breyta í búrunum og eru ca 20stk gubby í 60l búrinu og cherrybarbarnir og dvergsíkliðurnar eru komnar í 100l búr ásamt einum stórum gullfisk (bara tímabundið) og sverðdragarnir eru komnir í annað 100l og eru þeir allt í allt um 10stk. :P

erum búin að heyra það soldið mikið uppá síðkastið að við séum klikkuð að vera að þessu :oops: hvað finnst ykkur?
Hehe ef að tími, peningar og nóg pláss er fyrir hendi , þá er þetta ekkert svo klikkað :)
200L Green terror búr
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ekkert klikkað, finnst þetta bara flott hjá ykkur :D 8)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

...

Post by pasi »

þetta er eiginlega komið frá því að vera eitt fiskabúr uppí að vera fiskeldisstöð... með meiru... hehe :P
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Re: ...

Post by Sirius Black »

pasi wrote:þetta er eiginlega komið frá því að vera eitt fiskabúr uppí að vera fiskeldisstöð... með meiru... hehe :P
Hehe og þar að auki eitt lítið fiskabúr í byrjun :P En ætliði svo að fara á fullt að rækta gúbbý og ancistrur? og kannski eitthvað fleira?
200L Green terror búr
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

já við stefnum a.m.k. á það :P
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

..

Post by pasi »

erum að spá í að rækta sverðdraga gullfiska guppy og ancistrur... eða allavega að fjölga þessu eins og hægt er :)
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Re: ..

Post by Sirius Black »

pasi wrote:erum að spá í að rækta sverðdraga gullfiska guppy og ancistrur... eða allavega að fjölga þessu eins og hægt er :)
Það er víst svakalega erfitt að fjölga gullfiskum svona heima hjá sér hef ég heyrt :)
200L Green terror búr
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ætlum að prófa... okkur var nebblega sagt að ef aðstæðurnar væru góðar væri þetta ekkert mál.. en annars kemur þa bara í ljós hvernig þetta gengur hjá okkur
What did God say after creating man?
I can do so much better
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: ..

Post by Vargur »

pasi wrote:erum að spá í að rækta sverðdraga gullfiska guppy og ancistrur... eða allavega að fjölga þessu eins og hægt er :)
Mér líst vel á þetta, ræktunin er það skemmtilegasta af þessu öllu en það þarf töluvert pláss og tíma til að hægt sé að rækta eitthvað af viti.
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

já ég er að fara í minnsta lagi 6mánaða fæðingarorlof eftir 2mánuði og ætla að dúlla mér í þessu á meðan :P
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

Post by pasi »

perluskallinn
Image
pengasius hákarlinn
Image
skallar og fleira
Image
albinóinn :)
Image
Brúsknefurinn á glerinu :P
Image
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
Mermaid
Posts: 94
Joined: 10 Nov 2007, 21:07
Location: Reykjavík

Post by Mermaid »

Þetta er rosalega flott hjá ykkur, það verður gaman að flygjast með hvernig ræktunin gengur hjá ykkur.
There is something fishy going on!
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

takk fyrir það :P verðum líka dugleg að setja inn myndir og fréttir
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Flottar myndir :D þekki alveg þrjá fiska þarna á 3ju myndinni, þe svarttetrurnar og skalann! hún fílar sig vel! Er þetta tilvondandi kæró við hliðina á henni? :P
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

...

Post by pasi »

þegar að ég vaknaði sé ég eitt stykki xxl gullfisk dauðan á gólfinu... allveg 1,5meter frá búrinu.... enginn smá kraftur í þessu...
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hefur bara spriklað dáldið mikið :lol:
Lenti einusinni í þessu þegar WC var kominn einhvert lengst inní forstofu :? svona 5-7 metrar :shock:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote: Lenti einusinni í þessu þegar WC var kominn einhvert lengst inní forstofu :? svona 5-7 metrar :shock:
Það ætti ekki að hafa komið á óvart ef þú hefur lesið eitthvað um fiskinn. Nafnið Walking catfish ætti líka að gefa vísbendingu. :)
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

...

Post by pasi »

gullfiskarnir
Image
Gullskallinn
Image
Einn af sniglunum :)
Image
sverðdragabúrið
Image
Talking catfish (synodontis angelicus)
Image
Svarti skallinn
Image
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
Post Reply