Ljósaperur

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
mrsom
Posts: 27
Joined: 21 Mar 2010, 21:09

Ljósaperur

Post by mrsom »

Hæ.

Eru einhver trúarbrögð í gangi varðandi ljósaperur í búrum? Þá meina ég tegundir, gerðir oþh.
Er ekki rétt að það sé æskilegt að skipta um árlega? Einhver talaði jafnvel um á 8mán fresti.
Sjálfur er ég með 2x Sylvania Daylight 30w sem eru orðnar eins og hálfs árs sem þýðir í mínu búri um 4500 klst (500dagar * 9klst).

Myndi ekki kalla búrið mitt gróðurbúr en inniheldur þó einhvern lifandi gróður.

..sorrí, nennti ekki að taka til sérstaklega fyrir myndatöku sbr. fljótandi gróðurinn sem pleggarnir mínir voru búnir að róta upp :-)

Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Ljósaperur

Post by Elma »

já það er æskilegt að skipta um perur og láta ekki langan tíma líða á milli (8 - 12 mánuðir eru fínt viðmið)
Sumir allra hörðustu skipta út perunum á 6 mánaða fresti, en þá eru það vanalega þeir sem eru með gróðurbúr.
þó að það komi enn ljós frá þeim, þá missa þær eiginleikana fljótt.
Sem sagt þær virka ekki eins og þær eiga að gera ef þær eru orðnar gamlar.
Ég er hrifnust af perum sem gefa frá sér hvítbláa birtu.
Ætli Life-glo sé ekki best. Gefur frá sér mjög fallega birtu.
En myndi mæla með Daylight í búrið þitt. Hún er líka góð og ódýr.
Þú ert ekki með það mikinn gróður.
Nema þú viljir eitthvað meira fancy.
Ef þú ætlar hins vegar að bæta við þig gróðri í framtíðinni,
þá mæli ég með gróðurperu.

Getur séð fleiri perur hér
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
mrsom
Posts: 27
Joined: 21 Mar 2010, 21:09

Re: Ljósaperur

Post by mrsom »

Takk fyrir þetta.

Átta mig samt ekki alveg á muninum á Daylight (6500k) og Life-glo (6.700k) þ.e. hvað það myndi gera fyrir búrið/fiskana/gróðurinn.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Ljósaperur

Post by Andri Pogo »

ég nota ekkert nema daylight í mínum búrum
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ljósaperur

Post by keli »

Andri Pogo wrote:ég nota ekkert nema daylight í mínum búrum
Átt þú einhver búr? :D :mrgreen:
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Re: Ljósaperur

Post by prien »

keli wrote:
Andri Pogo wrote:ég nota ekkert nema daylight í mínum búrum
Átt þú einhver búr? :D :mrgreen:
Hahaaaa...góður Keli :D
500l - 720l.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Ljósaperur

Post by Andri Pogo »

jájá ég á 5 búr í augnablikinu, 4 þegar stóra er farið :mrgreen:
annars meinti ég þetta bara svona í gegnum tíðina.
-Andri
695-4495

Image
mrsom
Posts: 27
Joined: 21 Mar 2010, 21:09

Re: Ljósaperur

Post by mrsom »

Eru gróðraperurnar ekki annars svona rauðleitar?
Hvernig perur það sem gefa svoldin bláan tón?
Post Reply