Lasin fisku

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Lasin fisku

Post by Kúla »

Hæhæ ég er alveg ný í fiskaæðinu. Þannig er mál eð vexti að ég skrapp í ferðalag i 5 daga og vinkona mín passaði fiska dúllurnar mínar, ég á 2 slæðusporða og 2 bardagafiska. Þegar ég kom heim var annar slæðusporðurinn dauður og hinn á að vera alveg hvítur en hann er eldrauður á nefinu og upp á haus. Getið þið sagt mér hvað er að honum og hvernig ég get hjálpað honum :roll:
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

ertu með 2 bardagakalla 2 hrygnur eða par?
svo skaltu passa að gefa ekki fiskunum og mikið að borða og skipta reglulega um vatn í búrinu (aðrahverja viku 30-40% af vatninu)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ertu búin að skipta um vatn síðan þú komst heim? Myndi skipta strax um 50-70%. Vinkonan hefur eflaust gefið þeim of mikið að borða og slæðusporðurinn þinn þjáist af lélegum vatnsgæðum, hef séð þetta áður gerast við gullfiska. En hann gæti jafnvel verið með eitthvað verra í sér eins og bakteríusýkingu en þetta hljómar eins og léleg vatnsgæði.
Ertu með tvo kk bardagafiska saman eða tvær kvk eða par? Það er í lagi að hafa tvær kvk saman en hitt er alveg off, kk bardagafiskur á eftir að drepa annan kk og jafnvel kvk. Einn kk er allt í lagi eða þá tvær kvk saman.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

Í rauninni með vatnsgæði fer eftir búrstærð.. ef þú ert með fiskabúr í minni kanntinum þá þarf oftar að skipa um vatn vegna þess þá eru fiskarnir mun fljótari að menga vatnið. Sjálf skipti ég um 40-50% vatn hverja viku. Það besta sem í rauninna er hægt að gera er að passa mjög vel uppa vatnsgæðin og að vera dugleg við að skipta reglulega um vatn heldur en að vera brasa með eh lyf og passa að ofgefa ekki því þá safnast eiturefni í búrið sem drepur fiskana.
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Post by Kúla »

Já ok, ég setti hann í nýtt vatn að hann er allur að koma til. Farinn að synda mikið meira og heilsa mér. Ég er með einn kk bardagafisk og eina kvk. Buin að eiga þau öll saman í búri í 5mán og allir rosagóðir vinir. Allavega vinkona mín er ekki vön fiskum en ég ég sýndi henni magnið sem þeir eru vanir að borða
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

ef þetta eru bara þrír fiskar þá eiga þeir ekki að borða nema bara pínulítið.
Skoðaðu endilega einhverja þræði þar sem er talað um matargjöf
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Post by Kúla »

já ég gef þeim bara verulega lítið, kom heldur ekkert fyrir fyrr en þeir fóru í pössunn. Var reyndar að bæta við einni litilli ryksugu og einum svörtum gull fisk. Og lýtur allt rosalega vel út, allir svo kátir og hressir
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

narta samt ekki gullfiskar í sporðana á Bardagafiskunum?
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Post by Kúla »

ekki hjá mér allavega, allir með rosalega flotta sporða.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hvað ertu með fiskana í stóru búri?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Post by Kúla »

ég er bara með litla 15 l kúlu eins og er en ætla að fá mér stærra búr sem fyrst. Hehe skammast mín að segja frá mínu búri myða við ykkar búr
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Gullfiskar eiga það til að missa rauðalitinn og fá hvíttann í staðinn, þá kemur rauði liturinn ekki aftur.
Minn fiskur étur þinn fisk!
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Post by Kúla »

jam en minn fiskur var alveg hvítur og er eins og hann sé að breytast í rauðan, eitthvað öðruvísi minn hehehe
Nýkomin með fiskadellu á háu stigi
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

úff.. finnst þetta frekar margir fiskar í alltof litlu búri. Svo eiga ancistrur (ryksugur) ekki heima í kúlubúrum. Myndi fá mér stærra búr sem fyrst og hafa það ferhyrnt, ekki minna en 30L.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Kúla
Posts: 17
Joined: 21 Oct 2009, 11:45
Location: Reykjanesbær

Post by Kúla »

Já ég veit þetta er frekar lítið, en strákur sem vinnur i fiskabúð sagði við mig að riksugan gæti alveg verið í kúlu. Allavega á meðan hún væri svona lítil. En jam það er planið að fámér stærra búr og helst MÖRG stór búr hehehe En takk allir fyrir svörin ykkar, þetta á sko eftir aðhjálpa mér
Nýkomin með fiskadellu á háu stigi
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Kúla wrote:Já ég veit þetta er frekar lítið, en strákur sem vinnur i fiskabúð sagði við mig að riksugan gæti alveg verið í kúlu. Allavega á meðan hún væri svona lítil. En jam það er planið að fámér stærra búr og helst MÖRG stór búr hehehe En takk allir fyrir svörin ykkar, þetta á sko eftir aðhjálpa mér
myndi nú ekki taka öllu sem satt og rétt sem einhver segir við þig í dýrabúð. Afgreiðslufólk segir yfirleitt hvað sem er "þessi fiskur getur alveg verið í búrinu þínu" "þessi tegund passar alveg með því sem þú ert með" "þessi verður ekkert of stór fyrir búrið þitt" "þessi stækkar bara eftir því hvað búrið er stórt" "þú þarft ekkert að skipta um vatn ef þú kaupir þessa hreinsidælu" og fleira álíka hefur maður heyrt sem er bara algjörlega út úr kú. Myndi frekar treysta því sem maður heyrir hérna á spjallinu, því að hérna er fólk sem flest hefur margra ára reynslu af fiskum og fiskar eru áhugamál númer eitt, tvo og þrjú. Þannig að ef einhver hérna segir að einhver fiskur á ekki heima í kúlubúri, ekki efast um að það sé ekki rétt.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

ég ætla að fá að bæta inn í, bara ef einhver skrifar einhverja vitleysu þá ér það oft leiðrétta af þeim sem vita betur :D
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Post Reply