Diskusar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
helgihs
Posts: 93
Joined: 14 Oct 2007, 18:46

Diskusar

Post by helgihs »

Ég keypti 6 diskusa í Fiskó og setti þá í nýja 1300 lítra búrið mitt. Fyrstu dagana voru þeir bara í felum - svo núna eru nokkrir af þeim farnir að haga sér einkennilega, þeir synda um og klessa á og liggja á botninum.

Veit einhver hvað er að?

Vatnið er um 30°C

ég skipti um 50% af vatninu áðan
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mér dettur helst í hug að það gæti eitthvað verið að leka í vatnið? Fúan t.d.?

Annars ættu þessi stóru vatnsskipti að gera mjög gott.


Eru þeir að éta vel hjá þér?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
helgihs
Posts: 93
Joined: 14 Oct 2007, 18:46

Post by helgihs »

Ég lakkaði yfir fúguna með epoxí svo það ætti ekki að vera hún að leka og lét renna úr því tvisvar áður en ég setti fiskana loks út í...

Annars hafa þeir verið að borða sáralítið en ég keypti diskusamat og blóðorma áðan, bíð og sé hvort það breyti einhverju.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Discusar eru alltaf feimnir fyrst og húka útí horni, með trýnið aðeins niðurávið. En ef sundtökin eru eitthvað öðruvísi en það þá er ástæða til að skoða málið. Eru allir discusarnir svona?

Búinn að prófa blóðormana?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
helgihs
Posts: 93
Joined: 14 Oct 2007, 18:46

Post by helgihs »

Nei ekki allir svona, bara þeir sem ég keypti á Selfossi en þeir voru minnstir og einn af þeim er dauður.

Vona að þeir séu að skána og sé mun eftir að ég skipti um vatn :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

borgar sig líklega að vera duglegur að skipta um vatn svona fyrst á meðan búrið er að komast í gang.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
helgihs
Posts: 93
Joined: 14 Oct 2007, 18:46

Post by helgihs »

Núna eru tveir dauðir.. þeir voru báðir keyptir í Fiskó
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

ekki gott start þetta en maður má ekki missa vonina
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Þetta er það sem maður settar sig upp í þegar maður kaupir Discus í nýtt búr. Vesen og leiðindi. En það er gaman þegar vel gengur. ;)

Grunar að Keli hafi rétt fyrir sér, því ef það er eitthvað að vatnsgæðunum þá er Discus eins og kanarífugl í kolanámu. Rosalega viðkvæmir. Vandamálið er þessi bakgrunnur og hvað hann gæti verið að hleypa í vatnið. Ekkert vatnstest til fyrir það.

Ég keypti einmitt 4 discus af Fiskó fyrir rúmum mánuði. Dó reyndar bara einn hjá mér. Og tveir sem eftir lifa eru með eitthvað vesen í tálknunum. Veit ekki enn nákvæmlega hvað er að. Líka vesen að þessir Discusar sem við erum með eru svo pínulitlir, að þeir eru þeim mun viðkvæmari.

Varðandi feimni og felugirni, þá er gott að fá sér einhverjar litlar tetrur sem synda í torfum um búrið, það róar Discus niður þar sem tetrurnar virka eins og öryggiskerfi fyrir þá. Þeir geta fylgst með ferðum þeirra til að sjá hvort það sé einhver hætta. Ég er með neon hjá mér, en mér skilst að Rummynose séu jafnvel skemmtilegri, þar sem þeir synda eins og einn hugur sé að baki. Búrið mitt varð ekki skemmtilegt að horfa á fyrr en ég fékk neonana.

Síðan mæli með að þú skoðir þennan þráð og búir til gott fóður fyrir Discusana þína: Gourmet. Mjög próteinríkt og ódýrt.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

gæti ekki verið að þetta sé bara vegna þess að það er ekki kominn stöðugleiki á vatnið í búrinu. Vantar alla bakteríuflóru og því væntanlega talsverðar sveiflur á vatnsgæðunum. Þetta gæti farið mjög illa í þessa viðkvæmu fiska.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sven wrote:gæti ekki verið að þetta sé bara vegna þess að það er ekki kominn stöðugleiki á vatnið í búrinu. Vantar alla bakteríuflóru og því væntanlega talsverðar sveiflur á vatnsgæðunum. Þetta gæti farið mjög illa í þessa viðkvæmu fiska.
Eimmitt, í nýjum búrum eiga flestir fiskar erfitt þó þau séu stór og flott. Reyndar er þetta sennilega allt of stuttur tími til að fiskarnir geti verið að drepast vegna nitrat/nitrit vandamála og líklegra að einhver pH eða vandamál tengd bakgrunninum séu að angra þá, þetta gætu líka verið einhver sníkjudýr eða sýkingar sem fylgt hafa úr búðinni og herja á fiskana við flutninga enda á mótstöðuaflið undir högg að sækja við breyttar aðstæður sérstaklega hjá yngri diskusum.
helgihs
Posts: 93
Joined: 14 Oct 2007, 18:46

Post by helgihs »

Ég dældi slatta af vatni úr tjörninni í búrið og þar fékk ég bakteríuflóruna held ég allavega. Mér finnst líklegast að þetta hafi eitthvað að gera með bakgrunninn en ég er ekki viss.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Gæti líka verið eitthvað með vatnið úr tjörninni. Það er ekkert víst að fiskarnir þar séu í góðu lagi, og hugsanlega eitthvað komið með úr tjörninni. Svosem ekkert víst, en hugmynd.

Bakteríuflóran er líka lítið í vatninu, heldur mest á yfirborðum, t.d. möl, dúk, dælu osfrv.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Bakteríurnar lifa á yfirborði hluta og festa sig þar, aðeins brotabrot af þeim svífur um í vatninu sjálfu. Því hefur þú ekki fengið mikið af bakteríum yfir í búrið með þessu móti, og þær sem hafa komið með yfir eru það fáar að það mundi taka nokkrar vikur fyrir þær að byggja upp góða bakteríuflóru í búrinu.
helgihs
Posts: 93
Joined: 14 Oct 2007, 18:46

Post by helgihs »

Ég tók vænan slurk af drullu úr svamp sem er í hreynsikerfinu í tjörninni og smellti smá í búrið og restina í tunnuna sem er við búrið.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ekki alveg víst að það hafi verið góð hugmynd. Tjörnin hjá þér er væntanlega töluvert kaldari en búrið, og bakteríurnar ansi ólíklegar til að þola hitabreytinguna. Því drepast bakteríurnar og menga búrið aukalega.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply