Dýrastaríkið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
skarim
Posts: 96
Joined: 10 May 2007, 16:34
Location: Hfj

Dýrastaríkið

Post by skarim »

Eru að selja arrowönu á 17500 kr. Finnst þetta nokkuð merkilegt þar sem það eru kannski 2-3 mánuðir síðan að þeir voru að selja hana á 8000 í svipaðri stærð. :shock:
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

var hún ekki bara á tilboði Þá ? ?
User avatar
skarim
Posts: 96
Joined: 10 May 2007, 16:34
Location: Hfj

Post by skarim »

Neib

Er þetta ekki bara svona í keppunni :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Verðlagning heildsala erlendis ræður oft verðinu hérna.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Rétt hjá Vargnum, 8000kall er meiraðsegja dýrt fyrir svona litlar Arowönur. :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Eins og fyrsti postinn er skrifaður þá skilst mér hann vera segja að sami fiskurinn (úr sömu pöntun) hafi verið hækkaður

það á ekki að breytir neinu þótt að heildsalinn hækki eða lækki vöruna eftir að verslunin er búinn að borga fyrir hana
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

ég á bágt með að trúa að fiskur einsog aro staldri við í verslun í 2-3 mánuði ? man allavega ekki eftir þvi og kíki ég í lágmark eina dýraverslun í viku..

oft greiða búðirnar ekki fyrir vöruna fyrr en mánuði eftir afhendingu og er innkaupsverðið háð gengi , vörumagni , stærð markaðarins , innfluttningskostnaði , tollum, jafnvel vöxtum og svo auðvitað álagningu verslunar.

þó verslun kaupi eitthvað á 10.000 kr í júní og fær afhent í júní gæti hún þurft að greiða 12000 fyrir það í júli þegar verslunin svo loksins greiðir fyrir vöruna .

ég er sammála að aro á 17.500 kr er í hærri kantinum þegar maður getur fengið stærri aro í fiskó á 13.500 ..

dýraríkið var með skötur á tilboði um daginn á 20.000 kr stk sem er helv. gott verð miðað við það sem gengur og gerist en því miður þá kosta þær núna 35.000 sem er samt eðlilegt verð og það verð sem hefur verið gegnum gangandi í þeim búðum sem hafa verið að selja skötur undanfarið..
en það er ekki þar með hægt að segja að 35 kallinn sé hækkun ..
er bara ekki lengur á tilboði .

silver aro kostaði ef ég man rétt 15-17.000 kr fyrir ári síðan í flestum verslunum sem buðu upp á þennan ágæta fisk..
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta eru reyndar reticulatus skötur, sem eru venjulega á smápeninga í erlendum búðum, og þær þykja erfiðar að halda á lífi til langs tíma...

Ég kíkti einmitt á þær í gær, en ég hefði kannski látist segjast að versla þær á 20þús stykkið, það er ágætis verð.

Sammála með aro samt - þetta er ekkert svo kreisí verð, skárra en margir aðrir fiskar í þessari verslun :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Cundalini
Posts: 329
Joined: 28 Jul 2008, 22:52
Location: Hfj

Post by Cundalini »

Ég er sammála ykkur með verðið í Dýraríkinu, það er fráleitt og algert okur.

Dæmi:
Polypterus Ornatipinnis kostar í Dýraríkinu tæpar 25.000 krónur :shock:
Polypterus Ornatipinnis kostar í Fiskó 6.900 krónur 8)
Það er sem sagt næstum hægt að kaupa 4 Ornatipinnis í Fiskó á verði eins í Dýraríkinu.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Mér fannst magnað að sjá perlugúrama 5cm á 3338 kr, og líka hvað verðin eru alltaf uppá kr.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

tjorvar selur perlugurami á 890 :lol: :lol: :lol: :lol:
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Mín kenning er sú, að dýraríkið selur mest af sínum dýrum og vörum til landsbyggðarfólksins, þar sem margir hverjir rata ekki vel en eiga þó ekki í vandræðum með að komast í dýraríkið á móti Ikea.(vel merkt og svona). Þannig að það veit ekki betur og grunar ekki að þetta sé dýrasta búðin.

Þessi síða www.fiskaspjall.is fékk mig til að leita að fiskabúr.is fiskabúðinni heitinni og þar kom þetta allt í ljós. Brúskur á 890 kr. þar , en 1500 kall í dýraríkinu. Ég sé ekki eftir því að hafa orðið smá forvitinn á aðrar búðir ;) 8)
jæajæa
Post Reply