Page 1 of 3
					
				Myndir af Pleggum
				Posted: 25 Apr 2008, 17:24
				by Jakob
				Endilega sýnið myndir af ykkar pleggum, gibbum og Ancistrum.
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 20:19
				by Ari
				
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 22:31
				by Vargur
				Maður þarf að fara að taka almennilegar myndir af þssum botnfiskum, verst að þeir eru svo leiðinlegar fyrirsætur.

Royal pleco
 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 22:51
				by Ásta
				Hlynur fer ekki með fleipur þar, það eru varla til verri fyrirsætur en þessir botnfiskar en hér er einn góður:

 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 22:52
				by pípó
				Hvaða típa er þetta Ásta ?
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 22:54
				by Ásta
				Ég er ekki alveg klár á því, hef hvergi rekist á myndir af honum. Ég grenjaði hann úr fiskabúrinu hjá Svefn og heilsu þegar ég keypti mér nýtt rúm í fyrra  

 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:01
				by pípó
				Flottur,væri nú gaman að vita hvaða kvikindi þetta er,ég er með einn svipaðan og tími ekki að láta hann fyrr en ég veit hvaða tegund hann er,hann sést eiginlega aldrei en mér finnst hann svolítið spes  

 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:05
				by Jakob
				Ari er þetta Snowball?
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:06
				by Ásta
				Þú lætur hann ekki neitt. Það væri ekki verra ef þú gætir smellat af honum mynd. 
Hér er einn í viðbót sem ég á, var kallaður Snowball í búðinni sem ég keypti hann en þetta er ekki þessi eini sanni... 

 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:10
				by pípó
				Vá þessi er bara æðislegur,var hann ekki dýr ?
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:11
				by Ásta
				Held hann hafi verið á 9.900.- í Fiskó.
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:11
				by Jakob
				Já ég á líka 1 sona Ásta 
 
 
Hef stóran grun um að þetta sé L-004  
 
 
Ég verða sjálfur að fara að taka myndir (blint) af þessu)  
 
 
Ég ætla að grípa í gömlu myndavélina og reyna að taka myndir 
 
 
Ég vil líka segja að þetta þurfi ekki að vera einhverjir 10000 kr. plegga sem að fólk þarf að pósta, bara venjulegum ancistrum líka.
 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:22
				by pípó
				Sé að ég þarf að drullast til að fara að taka myndir af mínum botndýrum,annars er búið að bætast í ancistruflóruna hjá mér,var að bæta við fjórum golden slör ancistrum en þær eru bara svo ungar,vonandi eru það bæði kyn því ég hef áhuga á að sjá hvernig gengur hjá mér að rækta undan þeim.
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:39
				by Ásta
				Hvar fást svoleiðis dúllur?
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:42
				by pípó
				Ég fékk þær í Fiskó,hef alltaf verið heillaður af þeim en það hefur bara verið erfitt að detta inn á svona,en finnaly 

 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:44
				by Ásta
				Gott ef ég sá þær ekki þar um daginn.
Ég var að reyna að ná almennilegum myndum af þessum venjulegu ancistrum áðan mér er nánast lífsins ómögulegt að ná fókus, það rennur allt saman.
			 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:49
				by Andri Pogo
				hérna eru nokkrar myndir frá mér, neðstu tvær eru teknar í ingu búri

ancistra kk, pípó á þennan núna ef ég man rétt

gull pleggi

ancistra

"marmara" gibbi

flagtail
 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:51
				by pípó
				Jú getur verið að þú hafir séð þær,en ég held að ég hafi bara skilið eina eftir greyið  

 en þessar sem ég tók lifa sko sældarlífi  

 
			
					
				
				Posted: 25 Apr 2008, 23:59
				by pípó
				Rétt Andri efsta myndin er af stærsta ancistrudurgnum hjá mér og var hann stór þegar ég fékk hann hjá þér,en svei mér þá kvikindið er orðið nokkuð myndarlegt núna og brúskarnir helvíti flottir á fésinu 

 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 00:10
				by Gudmundur
				hér er einn Gibbi

 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 00:14
				by pípó
				Æðislegt munstrið á honum,eins og listaverk.og augað er svoldið spúkí.
			 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 01:40
				by Brynja
				Hérna er minn Gibbi... man ekki hvenær við fegnum hann en hann var mjög lítill greyjið.. í dag er hann um 35cm.
Þó að við höfum breitt um þema í búrinu af og til en hann hefur alltaf fengið að vera.
Hérna var hann með gullfiskum og KOI
 
Svo hérna er hann með ameríkönunum.

 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 12:15
				by Gudmundur
				Ancistrur yngri verða þær nú ekki 

 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 12:38
				by Ásta
				Mikið er þetta flott mynd Guðmundur. 
Ég átti leið fram hjá Dýraríkinu áðan og ákvað að kíkja við. Þar sá ég brúnan plegga eins og minn og ákvað í illkvittni minni að spyrja um nafnið á honum. 
Starfsfólkið þar vissi ekki einu sinni að þetta væri pleggi, bara að hann er ekki til sölu (er í sýningarbúrinu)  

 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 13:47
				by Jakob
				Ásta Plegginn þinn er Red Bruno pleco eða L-137  

 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 15:26
				by Gudmundur
				Síkliðan wrote:Ásta Plegginn þinn er Red Bruno pleco eða L-137  

 
Samkvæmt Datz L-nummerns er 
cochliodon L-137 er oft ruglað við Red Bruno eða cochliodon cochliodon
en allir cochliodon eru trjáætur/grasætur
þannig að mjúkar trjárætur og grænfóður er nauðsyn til að þeir dafni vel 
L-137 er gefinn upp yfir 30 cm
 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 18:03
				by Pippi
				Ekki góðar myndir frá mér, er vonlaus ljósmyndari.
Hér er Gibbinn
 
Getur einhver sagt mér hvaða tegund af Plegga þetta er.
 
Svo 2 litlir brúskar
 
Það eru moldarflygsur og drulla þarna í botninum hjá mér, var að færa til plöntur og bæta við.
 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 18:11
				by Vargur
				Ég sé ekki betur en að plegginn sé common pleco, Hypostomus plecostomus.
			 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 18:12
				by Ari
				Síkliðan wrote:Ari er þetta Snowball?
ég veit ekki kvað þetta er ef einkver getur sagt mér það þá væri það frábært ég held að þetta er Galaxy Pleco
 
			
					
				
				Posted: 26 Apr 2008, 18:15
				by Jakob
				Sá í miðmyndinni er Common pleco eða bara venjulegur pleggi eða L-21