Hæ hæ
Ég er með Tetratec 1200 dælu sem ég hef verið mjög ánægður með. Í efsta lagi hennar er gert ráð fyrir 2 pokum af kolum. Ég er að velta fyrir mér hvort megi skipta þeim út fyrir svamp? Eða er nauðsyn að hafa alltaf kol í dælunum? Eru þau ekki helst til að hreinsa lyfjaleifar og slíkt eða eru þau að gera eitthvað fleira nytsamlegt, svona þegar búrið er í jafnvægi? Nú set ég td. annars lagið plöntunæringu í vatnið - eru þá kolin að skilja hana út?
kveðja
Mundi
Kol í tunnudælu
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Kol í tunnudælu
_________________
90l Fluval Roma
54l Rena
90l Fluval Roma
54l Rena
Re: Kol í tunnudælu
Nákvæmlega, ég allavega hendi þeim alltaf úr og set svamp í staðinn.
Re: Kol í tunnudælu
Fínt að vita - ég kannski prófa það bara - fer að þrífa dæluna næstu daga. Hvað ert þú að þrífa dæluna þína oft Sibbi?
_________________
90l Fluval Roma
54l Rena
90l Fluval Roma
54l Rena
Re: Kol í tunnudælu
Ég er nú voðalega alfslappaður með að hreinsa tunnudælur,,, fer yfirleitt ekki í það fyrr en það fer að hægjast á þeim,,,, en ætli ég þrýfi þær ekki flestar svona á 4-6 vikna fresti.
Re: Kol í tunnudælu
já ok. þá er ég nú alveg rólegur. það líður mislangt á milli hjá mér. en oft 3-4 vikur. enda annar hún vel þessu 100 lítra búri mínu !!
_________________
90l Fluval Roma
54l Rena
90l Fluval Roma
54l Rena
Re: Kol í tunnudælu
- Fólk er samt að þrífa tunnudælur með misjöfnu millibili, ég hef ekki miklar reglur á þessu,,, en það fer reindar eftir því líka hvað er verið að gefa í búrið,,, er verið að gefa eitthvað lifandi, eða hjatrtamix eða eitthvað annað sem sest í dælur og verður að drullu þar, þá mundi ég skipta og hreinsa oftar, fylgjast metur með dælunum