540 lítra sjávarbúrið mitt
Moderators: keli, Squinchy, ulli
540 lítra sjávarbúrið mitt
jæja þá er þetta komið í gang hjá manni ég á að vísu eftir að setja upp refugiumið og það eru ekki nema 3 íbúar komnir 2x hermitar og einn snigill svo að vísu fullt af alskonar kvikindum sem ég veit ekki tölu á né hvað heita. en hér eru nokkrar myndir af búrinu
- Attachments
-
- IMG_5841.jpg (77.26 KiB) Viewed 55596 times
-
- IMG_5842.jpg (106.04 KiB) Viewed 55596 times
-
- IMG_5840.jpg (87.29 KiB) Viewed 55596 times
-
- IMG_5839.jpg (69.56 KiB) Viewed 55596 times
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Mjög flott hjá þér. Ætlaru ad hafa meira grjót í búrinu?
Eina sem eg get sett ut a er ad tad virdist vera hosuklemma ur malmi tar sem return slangan fer a rörin, tad er avisun a vesen myndi eg segja. Svo hef eg lesið að svona garðslöngur smita einhverju efni i vatnið sem er óæskilegt og þvi eigi maður bara ad nota svona vinil slöngur.

350 l. Juwel saltvatnsbúr
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
jú planið var að kaupa meira af grjóti svona með tímanum. en hosuklemman er ekki ofaní vatninu skiptir það ekki máli
já ég tók smá séns með þessari slöngu málið er að þessar glæru slöngur eru svo stífar að hún leiðir víbring frá dælu og uppí lagnakerfið sem myndaði tilheyrandi hávaða ég verð bara að skella mér í paulsen og sjá hvort þeir eigi gorma barka. en þetta með slöngurnar er þetta eithvað sem gerist strax eða með tímanum

Djöfull er ég að fýla þetta!
Finst sjáfum með því skémtilegra við þetta allt að dunda mér að setja upp sump og teingja tæki við þetta hingað og þángað
Mjög smekklegt hjá þér.
Ps þessi hosu klemma á eftir að riðga í drasl þótt hún sé ekki oní sumpinum(uppgufun)
Finst sjáfum með því skémtilegra við þetta allt að dunda mér að setja upp sump og teingja tæki við þetta hingað og þángað
Mjög smekklegt hjá þér.
Ps þessi hosu klemma á eftir að riðga í drasl þótt hún sé ekki oní sumpinum(uppgufun)
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
ég er sammála ulla um hosuklemmuna þ.e. ekki skiptir öllu máli að hún sé ekki í vatninu hún á eftir að riðga
350 l. Juwel saltvatnsbúr
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Smekklegt búr hjá þér.
Settu vatn í glas úr garðslöngu og fáðu þér sopa.
Það er drykkjarhæft en óbragðið úr slöngunni leynir sér ekki og það minnkar ekki með tímanum.
Ég er enn með þurrt rifgrjót í sölu!
Settu vatn í glas úr garðslöngu og fáðu þér sopa.
Það er drykkjarhæft en óbragðið úr slöngunni leynir sér ekki og það minnkar ekki með tímanum.
Ég er enn með þurrt rifgrjót í sölu!
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Það eru til styrktar silikonslöngur í landvélum. Þær ættu að henta vel í staðinn fyrir garðslöngurnar - Lítill víbringur og leka engum efnum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
nice takk fyrir það keli ég kíki þangað
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
blue tang í þara himnaríki, hann er átvagl þessi
- Attachments
-
- IMG_5901.jpg (135.03 KiB) Viewed 55462 times
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
ég þurfti að leita heillengi til þess að finna hann:P en annars flott búr:)
84l. Rena
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
nokkrar myndir
- Attachments
-
- IMG_6294.jpg (190.46 KiB) Viewed 55248 times
-
- IMG_6293.jpg (141.07 KiB) Viewed 55248 times
-
- IMG_6292.jpg (125.65 KiB) Viewed 55248 times
-
- Posts: 5
- Joined: 10 Jun 2012, 23:28
- Location: Kópavogur
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Geggjað næs marr væri til í að eiga svona huge búr marr.... er bara með eitt lítið 40 lítra búr með fullt af gúbbý fiskum Vantar fleirri íbúa hjá þér en geggjað flottur blái fiskurinn veit ekki hvað tegundin heitir
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Þetta er allavega farið að lýkjast sjávarbúri.
Mættir kannski reyna vera svolítið meira skapandi með uppröðun grjótsins.
Mættir kannski reyna vera svolítið meira skapandi með uppröðun grjótsins.
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
takk fyrir það já ég las bara einhverstaðar að vatnið þurfi að ná að streima á milli grjótana, þannig að þetta var það eina sem mér datt í hug
en svo var planið að bæta meira grjóti við sem fer þá ofaná
annars opin fyrir góðum hugmyndum !
en svo var planið að bæta meira grjóti við sem fer þá ofaná
annars opin fyrir góðum hugmyndum !
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Borvél, dragbönd, acryl stangir eða pvc rör og möguleikarnir eru endalausir
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Þessar stangir bjóða greinilega upp á áhugaverða röðunarmöguleika, eins og þessi til hægri er uppréttur og fastur.
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
já þetta er sniðugt !! kannski seinna
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Leyfðu okkur endilega að sjá þegar þú bætir meira grjóti og dóti við. Eins og mér skyldist að planið væri.
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Mér sýnist að upp sé kominn ( smá ) framleiðisu galli í búrinu mínu ég las mig vel til um smíði á svona búri og það sem menn mældu með í siliconi var frá múrbúðinni ef maður vildi hafa það svart. en það virðist ekki þola salt vatnið vel því það er farið að flagna hjá mér það er næstum eins og eitthvað sé að éta það í búrinu. en þegar maður kemur við það er það allveg rosalega mjúkt soldið eins og það sé soðið
hafa menn eitthvað verið að lenda í þessu ?? ég er farinn að husa um stórar endurbætur á búrinu það mundi þíða að ég þyrfti að selja allt lífríkið og live rock úr því en fyrir suma !
hafa menn eitthvað verið að lenda í þessu ?? ég er farinn að husa um stórar endurbætur á búrinu það mundi þíða að ég þyrfti að selja allt lífríkið og live rock úr því en fyrir suma !
- Attachments
-
- IMG_7858.JPG (227.21 KiB) Viewed 54781 times
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
þetta hef ég ekki heyrt af áður, er þetta að gerast allstaðar í búrinu og sumpinum líka ?
Hvað með að fá sér notað 150+ lítra búr á meðan til að hýsa lífríkið á meðan ef þú þarft að skipta sílíkoninu út
Hvað með að fá sér notað 150+ lítra búr á meðan til að hýsa lífríkið á meðan ef þú þarft að skipta sílíkoninu út
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
nei ekki í sumpinum ?? samt sama kíttið
það er hugmynd en ég er að pæla í að skipta út yfirfalls spjaldinu og betrum bæta ljósabúnaðinn
með tilheyrandi kostnaði, ég var að spá í að taka bara smá tíma í þetta þannig að það er spurning hvort það sé ekki einfaldara að selja lífríkið ég er hvort sem er ekki með það mikið í búrinu kem samt til með að sjá eftir liverockinu mér fynnst það eitthvað eigingjarnt af mér að þurka það upp ! ekki það að ég hef ekki miklar áhyggjur af leka það er ekki komið á það stig en samt pirrandi

Spurning hvort þetta sé segul skafan sem er að tæta þetta upp í búrinu ?
Er sílikonið sem er ekki ofan í vatninu eins við snertingu ?
Ef þú ferð út í að selja lífríkið væri ég til í finger og montopora kóralinn, sé enn eftir þeim (þ.a.s. ef þú vilt selja eitthvað stakt)
Er sílikonið sem er ekki ofan í vatninu eins við snertingu ?
Ef þú ferð út í að selja lífríkið væri ég til í finger og montopora kóralinn, sé enn eftir þeim (þ.a.s. ef þú vilt selja eitthvað stakt)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Notaði sama lím á mitt búr í denn.
Ekkert vandamál.
Ekkert vandamál.
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
eftir frekari athugun þá er mig farið að gruna að ein af túpunum sem ég notaði til að kítta saman búrið hafi verið gölluð því það er aðeins eitt horn á búrinu sem er svona mjúkt og kítuninn á skilrúminu er líka svona ég ætla að tæma búrið skera upp og kítta með kítti sem er sérstaklega ætlað fyrir fiska búr einginn áhætta tekin núna
Re: 540 lítra sjávarbúrið mitt
Ég sé ekki betur en þetta sé langt úti á glerinu og þar sem þykktin er bara brot úr millimetra.
Á myndinni má sjá förin eftir segulinn þinn sem hefur sennilega farið nokkur hundruð sinnum yfir þetta og því eðlilegt slit.
Gölluð túba finnst mér vera mjög langsótt skýring og ef límið var gert fyrir gler er viðloðunin ótrúlega mikil.
Ég myndi ekki leggja í að gera þetta upp á nýtt nema þú sért viss um límingin sé að gefa sig.
Ef það er fita, olía eða eitthvað slíkt undir þá er það klúður við límingu sem á ekki að gerast.

það er ekki fita undir líminu þar sem ég fór með fituhreynsir yfir þetta áður. En það er akkurat það sem ég var að gera núna ég skar með 5mm máta sithvoru meginn til að ath. hvort þetta lostni upp aftur
ég var líka búinn að velta því fyrir mér hvort þetta gæti verið út af því að það er þunt út við kannta kemur í ljós. það sem hræðir mig er að ef ég renni puttanum þéttings fast yfir kíttið klessist það á puttan á mér ? þessvegna var ég farinn að velta því fyrir mér hvort þetta gæti verið galli
og á myndini má vissulega sjá för eftir segulinn en það er vegna þess að þegar ég tók eftir þessu prufaði ég að renna honum yfir þetta til að sjá hvort ég gæti einmitt skafað kíttið af þar sem það væri þynnst
vona samt innilega að þú hafir rétt fyrir þér

Úff.. ekki líst mér á það. Þetta gæti endað með gliðnun.S.A.S. wrote:ef ég renni puttanum þéttings fast yfir kíttið klessist það á puttan á mér ?
Ég myndi tala við vana menn í faginu.
Helstu gæludýrabúðir ættu að hafa alla vega einn slíkan.