325 l Akvastabil fiskabúr ásamt skáp og ljósi. Búrið er ca 5 ára gamalt og er í góðu lagi. Skápurinn er tæplega 3 ára og er í góðu standi, en lítilsháttar bólga á borðplötu sem sést ekki þegar búrið er komið á. Ljósið er fyrir tvær perur, frá Akvastabil og er hægt að hafa kveikt á annarri perunni í ...
Sonur minn á Bombino frosk sem hefur fengið nafnið Stökkull Blomquist. Stökkull hefur nú tekið uppá því að hætta að borða og er ég farinn að hafa dálitlar áhyggjur af honum. Líklega eru liðnar 2 vikur síðan hann fékk sér síðast að borða svo ég viti til. Er þetta eðlilegt? Hvað er hægt að gera til að...
Einn Yellow lab gaurinn minn er laskaður. Hann er visinn, dökkur, sporurinn dálítið tættur of svo er hann með djúpt hringlaga nokkuð djúpt sár rétt aftan við eyrugga. Ég er ekki með mynd tiltæka af þessu, því miður. Ég var að skoða myndir af sporðátu og sá svipað sár og er þarna en sporður og uggar ...
Cobalt blue og Red zebra voru að athafna sig í búrinu hja´mér. Ég las einhverstaðar að allar Malaví siklíður gætu cross breetað. Veit einhver hvernig svona fyrirbæri lítur út?
Ég brá mér frá um jólin og fékk ungan dreng til að fóðra fyrir mig og stóð hann sig rosalega vel. Skreið heim til mín gegnum heljar magn af snjó. Þegar heim var komið sá ég að annar albínóinn minn var horfinn hefur hann sennilega verið ágætis ábót. Dælan mín gaf upp öndina líka og ég hef ekki komið ...
Ég hef keyrt í nokkurn tíma með fiska, nú síðast í 7 tíma. Ég hafði fiskana í pokum hafði þá í haldapoka sem ég hengdi í hanskahólfið hjá mér. Það fer ekki svo mikið fyrir þeim svona ekki mjög líklegt að þetta kólni mikið á þessum stað, sér í lagi ef einhver situr í farþega sæti.
Var að fíflast með myndavélina mína sem er auðvitað óhæf til myndatöku á fiskabúrum. Verð að geta stillt fókusin manjúalí. Ótrúlegt hvað mér tókst að gera.