Litra magn meðað við fiska.

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
brundus
Posts: 117
Joined: 19 Jan 2010, 00:20
Location: 270 mosó

Litra magn meðað við fiska.

Post by brundus »

ég er að hugsa um óskara kansk 1-2 stikki einnig red terror 1-2 stikki hversu stórt búr myndi eg þurfa fyrir þá?er að byrja að safna mer uppi stort bur og eg vill vera vissum að eg kaupi nogu stort bur...
350 L.
96 L. til sölu
25 L.
User avatar
Bambusrækjan
Posts: 443
Joined: 06 Apr 2009, 23:52
Location: Reykjavík

Post by Bambusrækjan »

Mig langar sjálfur í oscar par, og hef lesið mig til að þeir þurfa 400 L búr full vaxnir. Þeir verða víst nokkuð stórir.
User avatar
brundus
Posts: 117
Joined: 19 Jan 2010, 00:20
Location: 270 mosó

Post by brundus »

Bambusrækjan wrote:Mig langar sjálfur í oscar par, og hef lesið mig til að þeir þurfa 400 L búr full vaxnir. Þeir verða víst nokkuð stórir.
ja eg var einnig buinn að heyra það er spurningin er hvað eg þirfti stórt fyrir allavega 4 stikki af þessum fiskum
350 L.
96 L. til sölu
25 L.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Svona 500L fyrir 4stk.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Red Terror kk verða mjög stórir og þurfa minnst 800L búr , þar sem þeir verða um 50cm , en kvk verða mun minni.

http://www.aquahobby.com/gallery/e_festae.php myndi lesa commentin sem eru þarna undir, hrikalega grimmir fiskar og þurfa sitt pláss og einhvern vegin efast um að þeir passi með óskurum sem eru oftast rólegir fiskar :)

Allavega var ég með tvo óskara í búri með green terror sem drap þá báða og green terror er ekki nærrum því eins grimmur og red terror, einnig verða red terror karlfiskar mun stærri en green terror og meiri segja stærri en óskar, þannig að ég efast um að þeir passi saman.

Myndi bara fá mér aðra hvora tegundina í búr , red terror getur líka eiginlega bara verið í búri með sinni eigin tegund vegna grimmdar og þá sérstaklega þegar þeir eru orðnir sæmilega stórir :).

En lestu þér til um þessar tegundir og sérstaklega red terror á linknum sem ég setti að ofan, þar er fólk að tala um reynslu sína af þessari tegund :).

En hef svo sem ekki persónulega reynslu af þessari tegund, en það sem ég hef lesið þá finnst mér hún heldur grimm :) svona ef ég vil hafa fleiri tegundir í búrinu. En á einn óskar og finnst hann mjög skemmtilegur og mæli með svoleiðis :). Einnig á ég green terror par sem er bara eitt í búri enda verða þessir fiskar svo grimmir í pörum, og efast ekki um að red terror sé enn verri :P.
200L Green terror búr
User avatar
brundus
Posts: 117
Joined: 19 Jan 2010, 00:20
Location: 270 mosó

Post by brundus »

takk kærlega fyrir þetta Sirius Black eg mun mikið frekar fá mer óskara þarsem þeir eru hátt á óskalistanum minum :D en red terrorin var bara svona hugmynd vissi ekki að þeir væru svona snar óðir. þannegin ef eg myndi fa mer 2 oskara þa þirfti eg 400 l lamark... en fara ekki alveg aðrar minni sikiliður agætlega með honum? a sjalfur convict,yellow lab og kingzei eða myndu oskararnir bara slatra þeim?
350 L.
96 L. til sölu
25 L.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Afríku sikliður ganga ekkert sérstaklega vel með óskar, óskararnir éta þær ef þeir ná þeim og þær afrísku eiga til að narta í sporð og ugga á óskurunum. Convict gengur ágætlega og ýmsar aðrar ameríkusikliður ef búr og hreinsibúnaður leyfir.

Tveir óskarar fullnýta alveg 400 lítra búr á 6-12 mánuðum.
User avatar
brundus
Posts: 117
Joined: 19 Jan 2010, 00:20
Location: 270 mosó

Post by brundus »

þíðir þá ekkert að hafa fullvaxin eldhala eða einhverjar botnsugur með þeim?
350 L.
96 L. til sölu
25 L.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Plegga, gibba og annað sem kemst ekki upp í óskarana.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Red terror karlar verða nú ekki stærri en 40cm. Og mis grimmir eftir einstaklingum, það ætti að vera í lagi að hafa "mildann" red terror karl í 400-500L búri.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
svanson
Posts: 178
Joined: 03 Feb 2010, 23:33

Post by svanson »

persónulega mæli ég ekki með Red Terror, hef átt tvo og báðir til mikilla ama, sá stærri (hrygna) tók vargurinn að sér en hún var búin að slátra 6-7 fiskum á tæpu ári, þar á meðal, jagúar og blue jack dempsey,
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Síkliðan wrote:Red terror karlar verða nú ekki stærri en 40cm. Og mis grimmir eftir einstaklingum, það ætti að vera í lagi að hafa "mildann" red terror karl í 400-500L búri.
Og ef hann er ekki mildur þá mun hann drepa nær allt í búrinu? Meina það stendur ekki utan á fiskunum hvort þeir séu mildir eða ekki :). Bara heppni og óheppni, og ég myndi ekki taka áhættu með að fá kannski mildan karl þar sem yfirhöfuð er þessi tegund talin mjög grimm og því nánast mikil heppni að lenda á einstaklingi sem er til friðs í búri með öðrum fiskum.
200L Green terror búr
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það er rétt hjá Sirius, ég mæli nú ekki heldur með því að henda Red Terror í búr með öðrum fiskum nema að fylgjast grannt með honum.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Við erum með c.a 17cm red terror kerlingu í 1000L búrinu, hún er alveg kolvitlaus.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
svanson
Posts: 178
Joined: 03 Feb 2010, 23:33

Post by svanson »

já það er hrygnan sem ég lét ykkur fá um daginn :twisted:
snarvitlaust kvikindi!
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

um að gera skélla einu Dovii í 1000lt til að siða hana til... :shock:
svanson
Posts: 178
Joined: 03 Feb 2010, 23:33

Post by svanson »

já hann ætti nú að geta siðað hana e-ð til, en hún tók einn jagúar og slátraði honum eins og ekkert væri.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Svanson: hún er búin að drepa allavega einn fisk hjá okkur
sem átti að vera jafn snarvitlaus og hún, en hún vann.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
svanson
Posts: 178
Joined: 03 Feb 2010, 23:33

Post by svanson »

Úps! sorry :oops: ég sagði ykkur að hún væri crazy!
Post Reply