nautshjarta, hjartamix... tilbúið til notkunnar!

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

nautshjarta, hjartamix... tilbúið til notkunnar!

Post by gudrungd »

ég er að spá í að búa mér til nýtt nautshjartamix og ég vildi kanna hvort að;

nr 1. einhverjir vildu vera með í að kaupa hjörtu

nr 2. hvort einhverjir vildu sleppa við subbuskapinn og kaupa tilbúið hjartamix (fituhreinsað, tvíhakkað með hvítlauk, spínati, ferskum fiski spirulina og lecitíni)

nr 3. hvort einhverjir vildu sleppa við subbuskapinn og kaupa tilbúið hreint hjarta tilbúið til notkunnar (fituhreinsað, tvíhakkað)

ég hef gert þetta með góðum árangri, ég læt allt blóð renna af hakkinu og það kemur engin mengun af því. ég verka hjörtun glæný (ekki fryst, verkað og fryst aftur) og frysti það síðan í rennilásapoka, flatt vel út svo að það sé þægilegt að brjóta bita af. ég er ekki búin að spá neitt í verð, veit ekki hvað hjörtun kosta núna. ef það er áhugi þá get ég pantað fleiri hjörtu eða búið til extra og selt í pokum. svarið hér eða í einkapósti!
Last edited by gudrungd on 01 Mar 2010, 21:27, edited 1 time in total.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég gæti vel haft áhuga á að kaupa einhvern smá slatta af þér, magnið fer vissulega eftir verðinu:)
Geri mér ekki alveg grein fyrir því hvað er mikið í hverjum poka þó.
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

Post by Einval »

er þetta gott foður fyrir alla fiska :?:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég væri til í að kaupa slatta.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Einval wrote:er þetta gott foður fyrir alla fiska :?:
allar kjötætur, mixið er hannað fyrir discusa, ég veit ekki sérþarfir fyrir aðra fiska. það er líka freistandi að setja hvítlauk í hreina mixið þar sem það verður ennþá meira spennandi og er vörn gegn sníkjudýrum.

ég er búin að fá verð á hjartað og það er 300 kr. kílóið, það sama og fyrir 2 árum. hjartað er um 2 kg en afföllin af snyrtingunni er nálægt kíló.

gróft reiknað gæti ég skotið á að ca 350 gr. plata af mixi kosti 1500 kall og af hreinu hjarta 1000 kall, án ábyrgðar og með fyrirvara um verð á öðru hráefni. Venjuleg blisterpakkning úr verslun er 100 gr.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

hjörtun komin í hús og mixið tilbúið.

250 grömm í pokanum,
500 kall fyrir hjarta með hvítlauk,
1000 kall fyrir mixið, 2 hlutar hjarta á móti 1 hluta nýrri ýsu, spínat, hvítlaukur, lecitin í duftformi og spirulina í duftformi.

allt tvíhakkað, blóðið látið renna úr, sett í rennilásapoka, flatt út og lofttæmt eftir bestu getu.

áhugasamir hafi samband í ep
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Dúndur prís á þessu!
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

Post by Einval »

lítur frontosa við þessu :?:
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

keli wrote:Dúndur prís á þessu!

reyni að vera sanngjörn og fá samt fyrir vinnuna!

með frontósuna, hvernig væri að fá svar frá Ástu? hún er frontósusérfræðingurinn! er þetta ekki fínt fyrir alla svona durga?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Nú á ég mat fyrir Discana og Arowönuna i fleiri mánuði :) :)
Blandaði saman við nautið skötusel og rækjur.
Þökk sé framtakssemi þinni Guðrún að útvega nautshjörtun :-)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

hvað ertu að gefa discusunum skötusel? þú segir að ég spilli kvikindunum mínum! :lol:
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Ég varð að toppa þig Guðrún :D :D
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Þið getið gefið flestum fiskum þetta það eru allavega allir mínir fiskar brjálaðir í mixið, ég reyndar laga fyrir allt mitt rugl sjálfur en afþví að þið voruð að spyrja þá borða allir fiskar þetta hjá mér.
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Svavar wrote:Þið getið gefið flestum fiskum þetta það eru allavega allir mínir fiskar brjálaðir í mixið, ég reyndar laga fyrir allt mitt rugl sjálfur en afþví að þið voruð að spyrja þá borða allir fiskar þetta hjá mér.
takk fyrir þetta Svavar, ég hef svo litla reynslu af öðrum fiskum!
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

gudrungd wrote:
keli wrote:Dúndur prís á þessu!

reyni að vera sanngjörn og fá samt fyrir vinnuna!

með frontósuna, hvernig væri að fá svar frá Ástu? hún er frontósusérfræðingurinn! er þetta ekki fínt fyrir alla svona durga?
Ég hef aldrei prófað að gefa þeim svona mix en get varla séð að það myndi skaða.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Er að gefa mínum nauta mix, virkar mjög vel, aðeins öðruvísi uppskrift þó en eru alveg vitlausar í þetta hjá mér eins og sést á myndbandinu neðst http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=7993
Kv. Jökull
Dyralif.is
egg27
Posts: 44
Joined: 23 May 2009, 12:48

Post by egg27 »

væri þetta eitthvað gott fyrir litla polypterusa og jafnvel yellow lab?
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Allavega polypterusarnir ættu að hakka þetta í sig.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Er eitthvað til af þessu?
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég held að það sé óhætt að mæla með þessu fyrir flest alla fiska, kanski ekki einhverjar afrískar grænmetisætur.
Ég fékk poka fyrir tetrurnar mínar og þær eru alveg vitlausar í þetta, það er bókstaflega slegist um bitana.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

animal wrote:Er eitthvað til af þessu?
það er meira til. bæði hreina og mixið!
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

gudrungd wrote:
animal wrote:Er eitthvað til af þessu?
það er meira til. bæði hreina og mixið!
Hvar er hægt að nálgast þetta?
Ace Ventura Islandicus
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég á nokkrar plötur eftir af mixi og hjarta+hvítlauk, frábært fóður,engin aukaefni!
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

Hvernig væri að gefa malawii síkliðum þetta ?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þekki það ekki :) endilega einhver sem hefur vit á því svari!
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

ef alveg gefið þeim svona mix sem smakk en reikna ekki með að það sé sniðugt þar sem þær geta stíflast af kjötmat, best að gefa Malawi grænfóður.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
Post Reply