sumpur fyrir 480 lt búr

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
missb
Posts: 22
Joined: 19 Dec 2009, 19:08
Location: Akranes

sumpur fyrir 480 lt búr

Post by missb »

ok mig vantar upplýsingar um hvernig ég bý til svona unit og hvernig það virkar.

kveðja
Birna
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Fer allt eftir því hvað þú ert með í búrinu og hvað eiginleika þú vilt að sumpurinn hafi

Mæli með google og gera smá rannsókn til að finna út hvað hentar þér í staðinn fyrir að láta mata þig af upplýsingum sem henta kannski ekki þínum þörfum

en ef þetta er ferskvatns búr myndi ég mæla með 2 öflugum tunnudælum þar sem búrið er bara ~500L, mun kosta þig svipað og er minna vesen
Kv. Jökull
Dyralif.is
missb
Posts: 22
Joined: 19 Dec 2009, 19:08
Location: Akranes

Post by missb »

ok ég athuga þetta. Ég á nefnilega kassan og eitthverja hluti í sumpinn en hef bara ekki hugmynd um hvernig hann virkar eða hvernig þetta apparat lítur út :wink: hélt að þetta gæti verið ódýr bráðabyrgða redding þanngað til ég myndi kaupa allt í stóra búrið mitt.

En takk samt. Ég ætla að fara inná google og lesa mér til um þetta :wink:
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Hugsaðu bara sumpinn sem risastóra tunnudælu
tunnudæla tekur vatn inn og leiðir það í gegnum filterefnin áður en vatnið fer aftur í búrið
sama þarf sumpurinn að gera nema hann dælir upp í búrið og fær vatn með yfirfalli
skoðaðu myndir á google
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
missb
Posts: 22
Joined: 19 Dec 2009, 19:08
Location: Akranes

Post by missb »

Gudmundur wrote:Hugsaðu bara sumpinn sem risastóra tunnudælu
tunnudæla tekur vatn inn og leiðir það í gegnum filterefnin áður en vatnið fer aftur í búrið
sama þarf sumpurinn að gera nema hann dælir upp í búrið og fær vatn með yfirfalli
skoðaðu myndir á google
:wink: Er að því núna... Er búin að finna nokkrar teikningar og svo kemur mikið upp sem hefur eitthvetíman verið sett hérna inná spjallinu :) Svo er bara að fara í gegnum allt enska lesefnið... og já það er mikið af því. Komin með blað og penna og er að skrifa niður í hvaða röð ég á að gera hlutina... Gott að vera með smá skipulag á þessu :)

takk kærlega fyrir (idiot)útskýringuna... ég þurfti hana :wink: helst myndi ég bara vilja fá nr1 gerðu þetta nr2 gerðu þetta og nr 3 þetta... En ég hlít að redda þessu... Ef ég get smíðað búr þá ætti þetta ekki að vera vandamál..

Enn og aftur takk :wink:
Post Reply