Guppy fiskar

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Karen98
Posts: 138
Joined: 05 Oct 2009, 15:25

Guppy fiskar

Post by Karen98 »

Hææj
ég á tvo guppy fiska eina kellu og einn kall og
ég er að reyna að fá seiði og ég á aðra fiska með vinkonu minni og við skiptumst á að hafa fiskabúrið í 4 vikur og svo skiptumst við á
ég á einn black molly fisk og einn ryksugu fisk en ég ætla að láta guppy fiskana í annað búr ef að það kemur seiði en mig helst vanta steina í búrið og eitthvað dót og búr á lítið verð eða gefins endilega sendið skilaboð eða einkapóst
Kv.Karen
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Blessuð Karen,

er ekki vesen að skiptast á að hafa búrið? hvað er það stórt og tæmiði það alveg þegar þið skiptið?

Annars er best að setja inn auglýsingu í Til sölu - óskast keypt dálkinn.
-Andri
695-4495

Image
Karen98
Posts: 138
Joined: 05 Oct 2009, 15:25

Guppy fiskar

Post by Karen98 »

Hææj
það er ekkert vesen við eigum heim svo nálægt hvort öðrum og ég held að það sé 33 lítra og við tæmum það alveg
Kv.Karen
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ekki tæma búrið alveg í vatnsskiptum, það drepur bakteríuflóruna í búrinu. Gerður svona 30-60% vatnsskipti einu sinni í viku. Og ekki taka fiskana úr á meðan.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Karen98
Posts: 138
Joined: 05 Oct 2009, 15:25

Post by Karen98 »

Hææj
á meðan ég skipti á búrinu á ég ekki að taka fiskana úr og taka svona aðeins meira en helming af vatninu en skila smá eftir og svo að láta nýtt vatn en hvað er bakteríuflóra
Kv.Karen
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ekki taka fiskana úr nei, það er óþarfa stress fyrir þá.
passaðu svo að vatnið sem þú lætur í staðinn sé jafn heitt og það sem er í búrinu.

Lestu þetta í sambandi við bakteríuflóruna og athugaðu kannski hvort einhver í fjölskyldunni getur farið yfir þetta með þér ef þér finnst þetta flókið:
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=7003
-Andri
695-4495

Image
Post Reply