Svartneon tetru hrygning

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Svartneon tetru hrygning

Post by Sven »

Operation "Fá Svartneon til að hrygna út að því að ég tími ekki að kaupa 150 stykki" fer vel af stað.
Keypti 7 stykki og er búinn að vera að undirbúa þær í rúmlega 50 lítra búri, fá frosið fóður, blóðorma og eru að byrja að fá lifandi brine shrimp.

Ég ætlaði að setja álitlegt par yfir í 20 lítra hrygningarbúr í kvöld og sjá hvort eitthvað gerðist í fyrramálið. Þegar ég var svo að skoða búrið áðan, þá sá ég að þær eru þegar búnar að hrygna í búrið sem þær eru í. Veit ekki hvað verður af því, botninn er þakinn Eheim ehfisubstrat kúlunum og svo er einhver javamosi og trjárót í búrinu.

Ég get ekki alveg gert upp við mig hvort ég eigi að færa tetrurnar 7 yfir í 20 lítra búrið eða hvort ég eigi bara að leyfa þessum hrognum að vera og prófa samt að setja par yfir í búrið í nótt.

Ég veit ekkert hvað eru mörg hrogn í búrinu þar sem ég sá bara 2 í horninu þar sem það voru engar eheim kúlur á botninum, eflaust er þó slatti af hrognum þar sem að tetrurnar hafa ekki komist í að éta þau þar sem þau hafa fallið niður á milli kúlanna á botninum. Ef það verður eitthvað af þessu, þá ætti ég að geta fiskað seiðin upp og flutt þau í litla búrið og tetrurnar aftur í það stærra.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Geggjað maður! :góður:
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ákvað að hafa fiskana áfram í stærra búrinu og prófa að færa par yfir í hrygningarbúrið í gær. Þegar ég athugaði búrin í morgun þá var ekkert að gerast í hrygningarbúrinu, en hinsvegar var allt á fullu í stærra búrinu :roll:
Ég ákvað því á endanum að færa parið úr hrygningarbúrinu aftur yfir en færði svo javamosan úr stærra búrinu yfir í það litla og öfugt.
Geri ráð fyrir að eitthvað af hrognunm hafi verið í javamosanum og vona þá að eitthvað af þeim klekist í minna búrinu...... sjáum til.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Er að fylgjast vel með og er spentur hverning þetta gengur !
Mundi þú hafa allt i einu svo margir svart neon, það væri "afgangur" væri alveg til i að kaupa nokkrar frá þér :D
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta er komið "on hold" í smá tíma, er að reyna að ná vatninu vel mjúku og súru fyrir þær. Eggin klekjast víst ekki nema að það sé nánast engin harka í vatninu.
Ég ætla að reyna að koma mér upp svona 150 stykkjum fyrir stóra búrið, en ef ég næ upp einhverju umfram það, þá skal ég hafa samband. Miðað við árangurinn hingað til, þá gæti verið nokkuð langt í það :)
Finnur
Posts: 12
Joined: 13 Dec 2007, 20:46
Location: Reykjavík

Post by Finnur »

Hvað með að nota RO eða eimað vatn?
Hvort tveggja ætti að vera alveg laust við steinefni, ekki satt?
Er einhver saltvatns gúrú sem á RO græju?
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

er jafn erfititt að rækta þessa og venjulegan neon eða kardínála
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Það er nú eitthvað léttara að rækta svartneon heldur en venjulega neon og kardínála. En sömu reglur gilda svosem, ef það á að fá eggin til að klekjast þá þarf vatnið að vera mjög mjúkt. Liggur við að það þurfi eimað vatn fyrir þessar prímadonnur.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

lítill fiskur með STÓRAR þarfir
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Mér finnst þetta mjög flott project hjá þér sven. Alltaf gaman að sjá fólk gera eitthvað meira krefjandi en venjulega í þessu hobbíi.


GuðjónB: Miklar þarfir er það víst ekki stórar.
Gott að hafa svona einfalda hluti rétta.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

ég veit... þetta hljómaði bara betur.. lítið og stórt :roll:
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Satan
Posts: 204
Joined: 31 Dec 2007, 16:10
Location: Breiðholt

Post by Satan »

haha, flott hjá þér sven
Virðingarfyllst
Einar
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Hvernig gengur? hefuru náð einhverju á "legg"
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Neibb, þeir éta allt undan sér og mér hefur ekki tekist að fá þá til að hrygna þegar ég færi þá yfir í hryngingabúr að kvöldi. Verð að breyta búrinu þannig að þeir komist ekki niður á botninn til að éta hrognin, þá ætti ég vonandi að ná að soga hrognin upp og koma þeim í sér búr.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Ertu kominn með par? Geturu ekki bara sett hrúgu af javamosa í lítið búr eða fötu? Pælingin þá að eitthvað af hrognunum týnist í mosanum og lifi af.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Já, ég held að ég sé kominn með par, það virðast vera sömu fiskarnir sem eru alltaf að hringlast saman þarna. Ætla að reyna að hylja botninn eitthvað og hafa þau 2 saman í búrinu, er með hellings mosa í búrinu.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, áætist hrygning síðustu nótt og öll hrignin féllu á botninn í gegn um plastnetið sem ég er með yfir botninum.
Eg náði því að ryksuga 20-30 egg upp úr búrinu og setti þau í ca. 10-15 lítra búr. Nú verður bara spennandi að sjá hvort að eggin klekist, ég er ekki svakalega bjartsýnn á því að það gerist, er smá hræddur um að vatnið hafi verið of kalt og að eggin hafi verið í of miklu ljósi (tók ekki eftir þeim fyrr en nokkru eftir að ég kveikti ljósið...... kemur þó í ljós á morgun.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Viti menn, það voru nokkur örsmá glær seiði að þeytast um í búrinu núna þegar ég kom heim. Var reyndar mjög erfitt að finna þau, en ég sá allavega 3, en leitaði ekki mjög lengi. Geri því ráð fyrir að það séu nokkur í viðbót þarna. Nú fylgist ég bara með og gef þeim svo eitthvað að éta á föstudaginn að ég held, eða e.t.v. seinni partinn á fimmtudag.
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

mín reinsla er að ef þú sérð 1 þá eru allavegana 10 sem þú sérð ekki.
Annars gangi þér bara vel að koma þeim upp
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Vonum að það sé rétt hjá þér Stebbi, ég leit aftur í búrið og sá allavega 10-15 stykki og eru bara helvíti hress. Ég er orðinn nokkuð spenntur með þetta, geri kanski tilraun með að ná myndum af þeim þegar þau eru orðin aðeins stærri,
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta fór fyrir lítið, held að ég hafi drepið öll seiðin með of snöggum hitabreytingum, hækkaði hitann á búrinu og hann fór upp um einhverjar 2-3 gráður. Fann bara eitt seiði eftir það, sem ég finn svo ekki lengur.

En hvað með það, það var önnur hrygning í nótt og ég náði að sjúga upp nokkra tugi eggja, ég taldi á milli 80 og 90, en mér fannst þau nú ekki það mörg í krukkunni þegar ég leit í hana eftirá. Sjáum hvort þetta gangi ekki eitthvað betur í þetta skiptið.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Af hverju tekur þú ekki frekar parið upp úr og leyfir seiðunum að vaxa í stabílu búri ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég er með þá 4 saman í 54 lítra búri, ekki viss hvaða 2 eru parið, ég þyrfti að setja þá í svo lítið búr, 18 lítra og hef því frekar farið þessa leið. En búrið sem ég er með eggin í núna er orðið frekar stabílt og ég ætti ekki að lenda í neinum svona sveiflum aftur, hitarinn heldur búrinu á réttu hitastigi og er með litla loftdælu í búrinu.

Annars var ég að undirbúa búrið fyrir eggin, skipta um smá vatn, ryksuga botninn og svona, tók þá erftir því að það er víst eitt seiði ennþá þarna, ekki nema 2-3mm. Virðist hafa lifað á infusoriu af java mosanum og svo hef ég 2svar sett pínu slettu af micro ormum í búrið. Hann ætti að ráða við nýklakta artemiu núna, þannig að ég skelli nokkrum slíkum til hans núna.
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Þetta virðist vera verðugt verkefni að ná þessu á "legg" maður ætti kannski að prófa sjálfur og hjálpa þér að ná uppí 150 stk :P
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

stebbi wrote:Þetta virðist vera verðugt verkefni að ná þessu á "legg" maður ætti kannski að prófa sjálfur og hjálpa þér að ná uppí 150 stk :P
ef ekkert gengur hjá honum verðum við bara að hjálpa það er satt
með þessu áfram haldi eitt seiði á mánuði þá tekur þetta um 13 ár :D :D
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Fá tilboð í einhverri búðinni á þetta magn sem umræðir!
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Fá tilboð í einhverri búðinni á þetta magn sem umræðir!
Glætan spætan, allavega ekki fyrir alla. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt verkefni, maður lærir mikið um fiskana sem maður pælir lítið í þegar maður er bara með þá í búrinu til skrauts.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

mér sýnist nánast öll eggin hafa klakist, ca. 50 örsmá seiði að squigglast á botninum. Vonandi að þetta gangi betur en síðast.
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Eplasniglar eru fyrirtaks hreinsimaskínur í seiðabúr, bara passa að seiðin séu farin að geta skotist frá þegar sniglarnir eru á ferð áður en þeir fara í búrið.

Annars bara good luck með þessi 8)
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Hvað eiga þeir að hreinsa? Ég mundi halda að þeir væru bara auka bioload sem hjálpaði bara til við að menga vatnið.
Post Reply