Uppsetning á nýju fersvatnsbúri?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Uppsetning á nýju fersvatnsbúri?

Post by prien »

Sællt veri fólkið.
Ég er byrjandi hér á síðunni vildi athuga hvort einhver af reynsluboltunum hér gæti ekki veitt mér smá aðstoð?
Ég er á leiðinni með að setja upp 400l ferskvatnsbúr og hef verið að reyna að afla mér fróðleiks á fiskaspjallinu, hvernig slíkt búr er sett upp í byrjun en ég hef fundið lítið um það.
Getur einhver bent mér á einhverjar greinar um þetta hér á fiskaspjallinu?
Það sem ég var meðal annars að spá í er hvort búrið þurfi ekki að vera uppsett með gróðri í einhverjar vikur áður en fiskar eru settir í það?
Ef svo er, þarf ég þá ekki að setja eitthvað í búrið til að koma bakteríuflórunni af stað?
Með von um svör.
Kv:prien.
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

þegar þú setur upp alveg glænýtt búr er mjög gott að gera búrið bara eins og þú villt hafa það og láta standa svoleiðis í 1-2 vikur meðan bakteríu flóran er að komast af stað en svo geturðu líka bara keypt þér einhverja harðgerða ódýra fiska og sett þá strax í búrið til að flýta fyrir prósessinu :)

fólki er frjálst að skjóta á mig ef þeim fynnst eitthvað athugavert við þessi ráð og leiðrétta mig þá líka í leiðinni :lol:
er að fikta mig áfram;)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Fínasta ráð hjá mixer nema með það að bíða í 1 - 2 vikur til að leyfa flórunni að komast í gang

Ný búr hafa engar úrgang til að fóðra flóruna sem æskileg er í fiskabúrum þannig að ekkert mun gerast þessar 1- 2 vikur

Þú setur einfaldlega búrið upp helst þar sem sólin nær ekki í það, setur sand sem er búið að skola og kannski eitthvað skraut, fyllir búrið af vatni, setur dæluna og hitarann í samband og leyfir búrinu að standa í sirka 24 klukkutíma svo að vatnið nái að komast á rétt hitastig og gott jafnvægi komið

bætir síðan nokkrum harðgerðum fiskum við, tekur myndir af búrinu, setur þær hingað inn til að sýna okkur og gerir síðan 30 - max 50% vatnskipti á 7 - 10 daga fresti
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þú getur líka flýtt fyrir ferlinu með því að fá notaðan filtersvamp úr uppsettu fiskabúri. Þá fylgir bakteríuflóra í þeim svampi sem fjölgar sér svo í búrinu hjá þér.

Hvernig dæluertu annars með í búrinu?
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Sven wrote:Þú getur líka flýtt fyrir ferlinu með því að fá notaðan filtersvamp úr uppsettu fiskabúri. Þá fylgir bakteríuflóra í þeim svampi sem fjölgar sér svo í búrinu hjá þér.

Hvernig dæluertu annars með í búrinu?
Ég er með einhverja Kínverska (Jinlong) tunnudælu.
Veit ekki hvað hún afkastar, en nógu mikill hlunkur er þetta(Fylgdi búrinu) og svo er straumdæla sem afkastar 400l á klt.
Hvað þurfa tunnudælur að afkasta í 400l búri?
er ekki meira vit að hafa tunnudælu sem er með hitara?
Kv:prien.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fyrir 400 l búr er ágætt að tunnudæla afkasti 1200-1500 l/klst en aðalmálið er að hún hafi sem mest pláss fyrir filterefni.
Fyrir stærri fiska er æskilegt að hafa öflugri dælu eða fleiri en eina.

Hitarinn er bara smekksatriði.
Post Reply