harka í fiskabúri

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
krissag
Posts: 18
Joined: 23 Apr 2009, 21:02

harka í fiskabúri

Post by krissag »

Ég var að mæla hörku í búrinu mínu og það er 3. Er það ekki of lítið? Ef það er hvernig get ég hækkað það?
Ég er með nokkra platty, sverðdraga, gúbbí og nokkra kardinála í um 50l búri. Gúbbíarnir eru farnir að veslast upp og mér líst ekkert alltof vel á þá. Getur verið að þetta sé að hafa áhrif? Ég veit ekki allt of mikið um hvað harka á að vera mikil hjá þessum fiskum en það væri gott að fá einhver ráð :)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Sæl, harkan úr kranavatninu hjá okkur er almennt í fínasta lagi fyrir flesta fiska.
Ég mundi frekar hafa áhyggjur af vatnsgæðunum, hvað ertu að skipta út mikið af vatni og hversu oft?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvað er það sem mælist 3 ? Varla pH. Hvaða test ertu að nota ?
krissag
Posts: 18
Joined: 23 Apr 2009, 21:02

Post by krissag »

Ég skipti út svona 40 % af vatninu vikulega. en harkan sem eg var að tala um er KH (carbohydrate hardness). pH er 8 og svo er nítratið alveg í lagi. Set salt útí í hvert sinn sem ég skipti um vatn og allt litur eðlilega út.
....
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég held að þetta kh sé alveg í lagi, reyndar hef ég aldrei mælt kh í mínum búrum.
Það eru líklega einhver sníkjudýr eða bakteríur að hrella fiskana ef þeir veslast upp.
krissag
Posts: 18
Joined: 23 Apr 2009, 21:02

Post by krissag »

Já einmitt.. þetta er reyndar í fyrsta skipti sem að ég mæli þetta í búrinu mínu.. var að gúgla þetta og þar stendur að það sé best að hafa kh á milli 5 og 10 annað sé slæmt.. en ég finn útúr þessu :)
krissag
Posts: 18
Joined: 23 Apr 2009, 21:02

Post by krissag »

En ég var að spá, ég setti þessa 4 slöppu gúbbí í lítið 3l búr með loftsteini í. Hversu mikið ætti ég að skipta út af vatninu á dag?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hmmm... ég held að þeir eiga bara eftir að versna í þessu 3L búri sem þú settir þá í...

ef þú vilt halda þeim heilsuhraustum þá þyrftu þeir að vera í góðu búri með 100% góðum vatnaskilyrðum, það gerist ekki í 3L búri...

Annars eru gúbbar mjög viðkvæmir fiskar, það er alltaf eitthvað að angra þá. Það er örugglega einhver innvortis baktería að angra þína, víst þeir eru að veslast upp hjá þér.. lítið hægt að gera, nema að prófa að salta og hækka kannski hitan. Ef það virkar ekki þá er ekkert eftir nema formalín, en það er svolítið trikkí að nota það og maður þarf að kunna 100% á það.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
krissag
Posts: 18
Joined: 23 Apr 2009, 21:02

Post by krissag »

ja mér datt það í hug. ég kann ekkert á formalín, þannig ég bara vona það besta :) takk fyrir
sá gamli
Posts: 8
Joined: 20 Feb 2009, 12:12

vatnsskilirðin

Post by sá gamli »

sælir, ég var að lesa pistlana um gubby og vatnsskilirðin, ég er með 4 búr öll lítil frá 3L uppí 30L og hef ekki haft mikin tíma síðustu 5 mán. til að hugsa um þau, en fiskunum líður mjög vel, búrin eru skítug, og ég hef bara bætt í þau vatni, kerlingarnar gjóta eins og þeim væri borgað fyrir það, það er allt orðið fullt af gubby seiðum, eitt búrið er útí glugga og fullt af grænþörungum, mér sýnist þeir vera alsprækastir þar og ekki verið andlát í neinu búri nema kannski á minnstu seiðunum. núna verður gert átak og hreynsað og mér sýnist ég þurfa fleiri búr. mín reynsla af vatnskiptum síðustu áratugina hefur reinst mér best að skipta út 10% einu sinni í viku og hreynsa hreynsarana ekki fyrr en þeyr eru orðnir alveg stíflaðir af skít og þá skola þá bara lauslega, til að halda sem best í flóruna, allavega hefur orðið minnst um afföll þá.
Elís H.
krissag
Posts: 18
Joined: 23 Apr 2009, 21:02

Post by krissag »

Já þetta hljómar vel hjá þér, ég hef verið að skipta út 50% vikulega og hreinsa þá oftast með malarsugu mesta skítinn úr botninum, og hreinsa dæluna algjörlega svona 1 sinni í mánuði, þetta er of mikil þrif hjá mér, ég finn það strax núna þegar ég er ekki búin að þrífa dæluna í 3 vikur, þeir líta betur út. En í þessum minni búrum hjá þér, ertu þá bara með loftstein, eða ertu með dælu líka? ég er bara með eitt búr, en ég á fullt af minni og fötur og svona því búrið er að fyllast hjá mér, heldurðu að það sé ekki nóg að vera með loft og enga dælu í 10Lítra fötu?
endilega senda hvað ykkur finnst :)

ég er með ca 30 - 40 sverðdraga, þrjá gúbbí, nokkra platy, anchistru og 4 kardinála
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Passaðu þig bara að þrífa dæluna ekki of vel, þú vilt ekki drepa bakteríuflóruna í henni, best að skola bara allt í dælunni vel og þá bara úr fiskabúravatni.
Post Reply