Gill fluke?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Gill fluke?

Post by henry »

Sæl

Var að spá hvort ykkur þætti ekki líklegt að þessi væri kominn með gill fluke?

<embed src="http://www.youtube.com/v/ZJQoX2Xxky0&hl=en&fs=1&" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed>

Var að framkvæma vatnsskipti í dag. Fyrir vatnsskipti voru gildin:
GH: 0
KH: 40ppm
pH: 6
NO2: 0
NO3: 0
Hiti: 28°C

Hef séð þá klóra sér örlítið, en ekki mikið. Hrista sig af og til og svona. Einn fiskurinn, sá sem er hvað stressaðastur í búrinu, fór upp að yfirborðinu í dag sem er ekki vanalegt utan matartíma. Þessi sem myndbandið er af andar sýnilega mjög hratt og virðist anda aðallega með öðru tálkninu.

Ég á engin lyf, en ég á Epsom salt. Einhverjar hugmyndir/ráðleggingar?
Last edited by henry on 14 Jun 2009, 18:36, edited 1 time in total.
Svavar
Posts: 385
Joined: 03 Sep 2007, 08:51
Location: Sauðárkróki

Post by Svavar »

Gæti verið en er þó ekki víst, gefðu honum auga þeir taka stundum uppá því að klemma annað tálknið ef hann heldur því áframm þá getur þetta verið tvent að mynsta kosti annað hvor costía sem er að bögga hann eða tálknormur. heldur fiskurinn sig við yfirborðið ?
Diskus og aðrir skrautfiskar.

Heimasíða http://www.facebook.com/#!/pages/Skraut ... 2348325143
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Nei hann syndir með hinum og er eðlilegur að öðru leiti. Varð mjög áhugasamur þegar ég opnaði lokið og svona.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Nú er annar Discus, rindillinn í búrinu, farinn að anda með öðru tálkninu líka, en ekki jafn hratt.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Jæja. Ég hef ekkert gert nema horfa á þá. Nú er sá í myndbandinu farinn að beita báðum tálknum, en andar enn mjög hratt sem gæti bara verið stress.

Hinn er enn að nota bara annað tálknið, er niðri við sandinn í horninu.

Fiskar geta gert mann :crazy:

En nokkuð að gera nema halda áfram að fylgjast með þessu?
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

hann andar 30 sinnum á 7 sec sem er alltof mikið að ég held þó hann sé stressaður. eðlilegt er um 50-60 á mínutu las ég einhverstaðar :)
60l guppy
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ef þetta er ekki eftir góðan sundsprett eða stóra máltíð þá gæti þetta verið ástæða til að pæla í þessu.. Annars bara fylgjast með og sjá hvernig fiskarnir eru á morgun.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Jæja, þá er rindillinn að þrjóta örendið..

Hann er er núna mjög dökkur, aftast í búrinu alveg niðri við mölina. Hreyfir sig ekkert. Heldur bara jafnvægi með "pectoral fins" og búið. Ég potaði í hann en hann hafði ekki orku til að flýja.

Hvað skal gjöra?
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Téður rindill andar bara gegnum annað tálknið. Hinn á myndbandinu andar enn hratt en gegnum bæði tálkn.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Jæja, hann syndir eitthvað uppávið núna. Enn að anda úr öðru tálkninu.

Bara þessir tveir með einhver sjúkdómseinkenni, hinir 3 virðast hraustir.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Tók rindilinn og setti hann í 1.5% epsom saltbað.

Hann tók að halla sér á hliðina eftir 10 mínútur, þannig að ég setti hann í búrið aftur.

Notaði þessar leiðbeiningar: http://www.zestweb.com/articles/salt/salt.html

Er ekki að ná hinum í háfinn með góðu móti, of snöggur...
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Rindillinn er farinn að anda eðlilegar núna. Bæði tálkn og hægari hraði. Nær fullkomlega eðlilegur hraði.

Hinsvegar varð einn þeirra veikur meðan ég var að veiða með háfnum í búrinu. Sá er stærsti af fjórum systkinunum. Þannig að mig grunar að ég verði að reyna að eiga við allt búrið, nema ég nái að gefa þeim öllum saltbað...

Hægara sagt en gert, þeir eru ekki að vilja kynnast háfnum.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Smá status update.

Ég hef ráðfært mig við mér vitrari aðila og breytt venjum mínum við fiskabúrið. Hætta að skipta um vatn þó ég sjái 0.5ppm nítrít í búrinu og leyfa því að rúlla með vikuleg vatnsskipti en fylgjast samt með sveiflum. Aftengdi heimagerða CO2 generatorinn.

Ég á von á einhverju lyfi sem ætti að virka gegn Gill fluke. Hugsa að ég þurfi að nota það því mér líst ekkert á tvo fiskana. Einn blue snakeskin og einn red turquoise eru að anda ört, og hafa gert það undanfarna daga. Rindillinn sem ég saltbaðaði um daginn er að vegna mun betur, hættur að anda ört og farinn að éta aftur. Hinir éta venjulega en eru móðir.

Nokkur vids ef einhver nennir þá að skoða:
<embed src="http://www.youtube.com/v/auR8Ktg_wms&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed>
<embed src="http://www.youtube.com/v/3Xsjxb8PHs0&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed>
<embed src="http://www.youtube.com/v/eqe7yQbcizY&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed>
<embed src="http://www.youtube.com/v/2p5oVYPCICw&hl=en&fs=1" type="application/x-shockwave-flash" allowscriptaccess="always" allowfullscreen="true" width="425" height="344"></embed>
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þessi í seinasta myndbandinu virðist vera frekar horaður (eða eru skuggarnir að gabba mig?). Endilega dúndra í hann mat, sérstaklega próteinríkum mat.

Veit ekki með gill flukes svosem, hef ekki reynslu af því sjálfur, bara það sem ég hef lesið. Þar er venjulega mælt með metronidazole (flagyl).
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Já, þetta er rindillinn. Hann er lítið fyrir að éta.. :/

Er alltaf að reyna að gefa honum að éta, en það er sjaldgæft að það takist.

Af því sem ég hef lesið er helst mælt með Praziquantel gegn gill fluke. Nýlegt lyf.

Hefur einhver reynslu af að nota UV ljós eða Ósón reactor á tunnudæluna hjá sér til að drepa örverur?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er með UV ljós á rekkanum sem discusarnir eru í. Bætti því ekki fyrir svo löngu síðan og mér finnst heilbrigðið í rekkanum hafa skánað slatta. Það er svosem sértilfelli þar sem ég er með marga fiska þarna í sama systeminu.
Það eru ekki allir sammála hvort það sé betra eða verra að vera með UV á discusum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Viglin
Posts: 33
Joined: 14 Mar 2007, 21:57

discus

Post by Viglin »

þú mátt ekki panika vertu bara rólegur discus er kenjatitur vatnaskifti 1 sini í viku. leifðu frekar 1 til 2 að deija betra en lifja og djöblast i búrinu þú færð fisk hjá svavari á góðan pening. þeir sterku lifa hinir deija. búrið verður aldrei til friðs ef þú ert altaf að lifja og róta í búrinu það getur tekið alt að 3 mánuði að verða gott . kv vikingur gángi þjer vel.
Post Reply