Heimasmíðaður bakgrunnur næstum tilbúinn

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Heimasmíðaður bakgrunnur næstum tilbúinn

Post by Ragnarvil »

Núna er ég búinn að skera út úr korki bakgrunn og ég er kominn með eina
umferð af fúa á hann. Ég ætla að setja nokkrar umferðir á korkinn bæði að
framan og aftanverðu.

Þekkið þið það, má leggja bakgrunninn beint ofan í búrið eftir þessa
meðferð eða þarf að bera epoxy á hann til að hann verði fiskabúrs hæfur ?


Ég var að spjalla við þá í Byko og 1 líters fatan af epoxy kostar 3.800 kr hjá
þeim, og maður hefur rúma klukkustund til að vinna með efnið eftir að
maður blandar það. Ég væri alveg tilbúinn að sleppa við þá vinnu sem fylgir epoxy-inu.
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Getur sleppt því að nota epoxy, kemur búrinu síðan fyrir á sinn stað, fyllir og tæmir búrið 3 - 5x, fyllir það svo og setur loft dælu í búrið

gerir síðan 100% vatnskipti minnst 7 daga fresti í mánuð

þegar þörungur byrjar að láta sjá sig er búrið tilbúið fyrir fiska
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Smellirðu ekki inn myndum að framvindunni?
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Getur sleppt því að nota epoxy, kemur búrinu síðan fyrir á sinn stað, fyllir og tæmir búrið 3 - 5x, fyllir það svo og setur loft dælu í búrið

gerir síðan 100% vatnskipti minnst 7 daga fresti í mánuð

þegar þörungur byrjar að láta sjá sig er búrið tilbúið fyrir fiska
Já mér líst vel á þetta, þá get ég vonandi klárað þetta project fljótlega.
Smellirðu ekki inn myndum að framvindunni?
Jú ég skal reyna að smella inn myndum fljótlega.
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

Squinchy wrote:Getur sleppt því að nota epoxy, kemur búrinu síðan fyrir á sinn stað, fyllir og tæmir búrið 3 - 5x, fyllir það svo og setur loft dælu í búrið

gerir síðan 100% vatnskipti minnst 7 daga fresti í mánuð

þegar þörungur byrjar að láta sjá sig er búrið tilbúið fyrir fiska
Bíddu ha. Þarf maður virkilega að bíða í einn mánuð með að láta fiska í búrið ef maður sleppir epoxy? :shock:
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já oftast tekur það í kringum mánuð fyrir steypuna að losa sem mest af efnum út í vatnið
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

Squinchy wrote:Já oftast tekur það í kringum mánuð fyrir steypuna að losa sem mest af efnum út í vatnið
Og ef mér skjátlast ekki að þá er epoxy notað til að koma í veg fyrir það og því er það notað svo maður þurfi ekki að bíða svo lengi
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Eitt sem mér þykir dálítið leiðinlegt er að ég þarf að setja smá fúa meðfram
bakgrunninum á báðar hliðar til þess að þetta smell passi. Því þyrfti ég að
kaupa epoxy smyrja því á allan bakgrunnin með viðunnandi vinnu, en
sleppa köntunum því þeir kæmu seinna.

Gefur epoxy bakgrunninum einnig óeðlilegan gljáfa ?
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Þetta er tutorialinn sem ég er búinn að vera að fylgja eftir:
http://www.aquariumlife.net/projects/di ... ion/17.asp
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já epoxy getur gefið af sér gljáa, getur líka sett bakgrunninn í búrið, fúgað á milli og svo epoxyað

en þá þarf að passa að mynda ekki polla úr epoxynu

gæti verið einfaldara að setja bara svart sílikon á milli
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Image
Bakgrunnurinn næstum tilbúinn, bara eftir að þorna og koma honum fyrir.
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Lítur vel út.
Hvaða verkfæri notar þú í skurðinn ?
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

Ég notaði bara dúkahníf og hafði allt blaðið úti meðan ég var að fást við þetta.
Fiskabúr:
AqualEl 170L - Smáfiskar
Nanó 25L - Ónotað
He who laughs last didn't get it.
Post Reply