Byrjenda-búrið mitt!

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Byrjenda-búrið mitt!

Post by SadboY »

Jæja, þar sem ég er nýr kemur smá tala um tilurð búrsins :)

Þetta byrjaði á því að ég lofaði stráknum mínum gæludýri þegar við færum í íbúðina okkar og hann valdi hamstur!
Ég byrja að kíkja á dýrasíður á netinu og eftir svona hálfan dag er ég kominn með fiska-bakteríuna (þessa sem lyfjakúrinn virkar ekki á). Hamsturinn saltaður og er reyndar orðinn páfagaukur núna! Ég átti samt mjög erfitt með að ákveða hvort ég ætti að fá mér 120L eða 180L og til að gera ákvörðunina auðveldari þá fór ég í 240lítrana :)

Þannig að í miðjum flutningnum fór ég og keypti 240L Juwel búr frá Tjörva og til að nýta litla plássið sem ég hef þá keypti ég skenk í IKEA undir búrið (tók MJÖG langann tíma að finna skenk sem passaði undir búrið) og núna næstum mánuði eftir "flutning" þá er enþá drasl út um allt, en búrið er orðið flott (forgangsraða)

Ein heildamynd með skenknum:
Image

Það ætlaði ekki að ganga þrautalaust að koma búrinu í gang, minn var nefnilega ekki alveg að nenna að skola gróðurmölina og búrið varð alveg mökk-moldar-litað, sáust ekki 2cm inní búrið, þannig að ég tæmdi búrið og fyllti aftur og búrið varð ekkert skárra :(
Talaði við strákana í Dýragarðinum og ryksugan varð til á mínu heimili, keypi líka nógu langa slöngu til að láta renna beint í sturtuna og aðra til að fylla búrið úr þvottaherberginu (hafði gert þetta með 10L fötum, ekki lítið vont fyrir bakið á manni) :lol:
Síðan fór auðvitað bakteríuflóran á óverdós og búrið varð hvítt, en það lagaðist fljótt með nokkrum smáum skömmtum af vatnsskiptum!

Síðan fór ég og keypti plönturnar:
Anubias barteri
Hygrophila difformis (sem er hálf tættingsleg að neðanverðunni, veit ekki afhverju)
Piluiaria globulifera
Echinodorus "red flame" (2 blöð orðin vel rauð)
Og síðan er það plantan lengst til hægri á neðri myndinni, var ekki nafn á henni en hún vex eins og hún fái borgað fyrir það! Hvað heitir hún?

Búrið vinstri 1/2:
Image

Og síðan búrið hægri 1/2:
Image

Ég er ekki nógu ánægður með alla steinanna, en ég nenni ekki að raða þeim upp eftir byrjunarvandræðin með vatnið. Þegar ég tek búrið í gegn, geri stór vatnsskipti þá raða ég þeim aftur upp.

Fiskarnir sem eru komnir í búrið koma allir frá Dýragarðinum og plönturnar einnig (ekki auglýsing, þeir eru bara í leiðinni heim úr vinnunni) :P

5stk svartar tetrur:
http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... _grein.htm

5stk kardinála tetrur:
http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... _grein.htm

4stk keilublettabarbi:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=3198

2stk SAE:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=3098

1stk Balahákarl (sem ætti að endast í búrinu í ár áður en hann verður full stór fyrir minn smekk)
http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... _grein.htm

Myndir frá http://fiskabur.is/ og http://verslun.tjorvar.is/

Síðan er ég að bíða eftir 2ryksugum frá vínkonu minni (seiði) sem fara vonandi að koma bráðum þar sem ég er öruglega að offóðra :D

Þetta á semsagt að vera byrjenda-colony-búr. Á eftir að bæta við nokkrum plöntum og fiskum þegar buddan fer að leyfa það aftur, og kannski sniglum og rækjum :)
xxx :D xxx
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er góð byrjun hjá þér og ég get lofað þér að þetta verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra.
Skenkurinn lítur líka vel út, virðist þola þyngdina vel.
Velkominn á spjallið.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta lofar góðu hjá þér. Plantan hægra megin heitir egeria densa.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Lítur vel út hjá þér!

Plantan lengst til hægri er Egeria Densa.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Gremlin
Posts: 260
Joined: 04 Nov 2007, 20:03
Location: Grafarvogur 112. Reykjavík

Post by Gremlin »

Til hamingju með myndarlegt búr.
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Takk fyrir :oops:

Ekki keypti ég SAE því mér fannst þeir svo voðalega fallegir, þeir voru keyptir sem vinnudýr en eftir að hafa fylgst með þeim í búrinu verð ég að seigja að ég er ánægður með þá!
Fyrir það fyrsta þá synda þeir ekki, þeir spríkla um búrið og í öðru lagi þá eru þeir oft alveg hlið við hlið með alveg spegilmynda-hreyfingar sem kemur ótrúlega töff út!

Semsagt, ekki lítið gaman að fylgjast með þeim :D
xxx :D xxx
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Mjög flott "byrjendabúr" hjá þér, það verður gaman að sjá þróunin í þessu hjá þér.
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Hér gengur allt sinn byrjenda-gang, allt á lífi og í fullu fjöri að mér sýnist.
Var rétt í þessu að sjá snigil í búrinu sem ég tek bara fagnandi, er með svona bletta-mynstri á sér. Vonandi eru fleirri sem svo fjölga sér því mig langar dálítið í svona fiska:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=3371

Einn sprotinn af Egeria Densa er í hraðvaxtarkeppni, er núna kominn rétt tæpa hálfa leið í gegnum búrið! Við feðgarnir ákváðum að klippa þennan sprota ekki fyrr en við sæjum hvort hann myndi ná yfir í hinn endann á búrinu :)

Hygrophila Difformis sem ég hélt að væri að drepast hjá mér þar sem hún missti öll neðstu blöðin sín er að taka við sér núna, komin vöxtur í hana (og snigillinn)

En svo eru nokkur blöð af Anubias barteri orðin vel brún (sjá mynd), er þetta eitthvað til að hafa áhyggjur af eða?

Image

Ein mynd af báðum plöntunum og Sae og svört tetra fá að vera með:

Image

Og síðan skásta myndin sem ég náði af Svörtu tetrunum mínum:

Image

Planið er að láta pabba kaupa tvo svona um helgina og gefa í fiska-innflutningsgjöf:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=4077
Og síðan myndi ég fjárfesta í 3-4 svona og þá er búrið orðið vel þétt af fiskum:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=3634

Annað, mér finnst fiskarnir vera svangir allann daginn, gef á kvöldin.
Ætti ég að gefa tvisvar á dag og minna í einu?
xxx :D xxx
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

flott búr hjá þér.

ég gef alltaf fiskunum mínum 2-3 á dag. bara minna í einu. bara passa að gefa ekki of mikið. vera fullviss um að þeir klára matinn
Ekkert - retired
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

2svar á dag er meira en nóg. Betra að gefa aðeins of lítið en of mikið.
Brúnþörungurinn á anubiasnum gæti komið út af minnkandi vatnsgæðum, hvað ertu að skipta oft og hversu mikið um vatn?
Annars eru ancistrur mjög góðar á svona brúnþörung.
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Með vatnsskipti þá er ég að skipta út 20L á tveggja daga fresti.
Það eru ekki nema 2-3 vikur síðan ég byrjaði með búrið þannig að ég hef ekki enþá gert stór vatnsskipti.

Ætli málið sé ekki bara að finna litlar sætar Ancistrur og bæta í fiskaflóruna, nóg er af plássi (enþá) :P
xxx :D xxx
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Það er reyndar mjög mikilvægt að skipta mikið og reglulega í nýjum búrum þar sem að það er ekki komið jafnvægi á alla bakteríuflóruna í búrinu. Held að það væri gott fyrir þig að gera ca. 50% vatnsskipti (120 lítrar) og búa svo til einhverja rútínu. Ef þú vilt skipta um vatn annan hvorn dag, þá mundir ég skipta um svona 40-50 lítra í hvert skipti á meðan búrið er svona nýtt, minnka það svo mögulega eitthvað.
Annars eru vatnsskipti á 2gja daga fresti nokkuð ör og gætu stressað fiskana, mæli með vatnsskiptum 1x á viku...... Þú finnur náttúrulega hvað þér finnst best.
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Ok, ég skipti um 20L í gær þannig að á fös þá mun ég skipta um helming og svo aftur um helming þar næstu helgi.
En svo þegar flóran er orðin eins og hún á að vera, hvað á ég að skipta um mikið magn miðað við vatnsskipti einu sinni í viku?
xxx :D xxx
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

30% einu sinni í viku það er fínt þegar flóran er komin á skrið.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það er fínt að skitpa um 30-50% vatn þegar þú ert að gera vatnsskipti og mjög gott að gera stór, t.d 70-80% öðru hverju.

Anubias þolir illa að ræturnar séu grafnar niður, það er best að festa plöntuna við stein eða rót.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Upp-deit

Post by SadboY »

Þessi vatnsskipti mín virðast ekki stressa fiskana mikið, þeir allaveganna koma allir þangað sem ég hef flösku-slönguna og finnast þetta greinilega mjög áhugavert :) Ég breytti einnig dælu-stútnum þannig að nú gárast meira og vonandi meira súrefni í búrinu.
But eníhú, ég fór á föstudaginn (kominn nýr mánuður, ching ching) í Dýragarðinn og keypti 3d bakgrunn sem gerir mikið fyrir búrið í staðinn fyrir kvítann vegginn.
Og fyrst ég var þarna keypti ég:

1.stk Echinodorus schluteri
2.stk ryksugur (fyrir brúnþörunginn), á eftir að finna rétta tegundanafn á þær.
2.stk Skala (man ekki tegundaheiti, kemur seinna)
2.stk "Amino" rækjur, þessar rauðu og hvítu

Síðan plataði ég gamla kallinn til að gefa mér:

3.stk Pöndur http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=3634
Einnig frá Dýragarðinum.

Núna fer búrið að verða fullt :)

Ég skipti um 40% af vatninu á föstudag. Síðan þorði ég ekki annað en að hlýða Lindared og tók Anubias og setti hann inní helli sem ég bjó til vinstra meginn í búrinu, hann er semsagt skorðaður af á milli steina en samt liggur ekkert á honum þannig að ræturnar eru inní hellinum, kemur bara vel út. Síðan setti ég Echinodorus schluteri þar sem Anubiasinn var.

Daginn eftir þetta voru ryksugurnar búnar að hreinsa Anubiasinn alveg af brúnþörung og leit allt mjög vel út.
Rækjurnar er skemmtilegar ef þú vilt fara í leikinn "hvar er ég", önnur þeirra er reyndar komin með æði fyrir dælunni minni, situr á vatnsinntaksrifflunum efst á henni og chillar þar.

Næst á dagskrá er að fá sér kolsýru-unit til að gera vel við gróðurinn og fá sér nokkra plöntur í viðbót og kannski nokkra fiska í viðbót sem geta verið stakir :P
xxx :D xxx
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta hljómar mjög vel hjá þér, verður spennandi að fylgjast með þessu.
En rauðar og hvítar rækjur eru ekki amano rækjur, þær eru svona gul-hvítar og ekki mikið fyrir augað. Man ekki hvað þessar hvítu og rauðu heita.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

crystal red shrimp.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Plöntur

Post by SadboY »

Hérna koma nokkrar myndir af grænum íbúum búrsins :P

Hérna eru: Echinodorus schluteri bakvið Anubias barteri.
Image

Mjög flottar saman að mér finnst.

Síðan er það: Echinodorus "Red Flame"
Image

Myndin ekki alveg í fókus, aftari blöðin sjást vel og litirnir flottir

Hérna er síðan: Egeria Densa
Image

Vex og vex, maður þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af henni :)

Mynd af hellinum sem Anubiasinn var settur í:
Image

Og svo ein heildarmynd, allt að koma til :D
Image
xxx :D xxx
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

vá þetta er flott bur hjá þér :shock:
:)
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Mjög flott búr og góðar myndir
60l guppy
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Núna er þörungurinn að taka við sér enda ég með ljósin kveikt í 11tíma :)
Minnkaði það niður í 9og1/2 tíma.
Hef ekki séð rækjurnar í 2 daga núna, vonandi finnast þær aftur, annars var ég að spá hvort þær fjölguðu sér auðveldlega í búrum?
Dreymir síðan um að fá mér eitt stykki "pictus" í búrið, fá sér einn mjög lítinn þannig að hann geti verið sem lengst í búrinu :P
xxx :D xxx
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Mjög flott. Egerian á eftir að hjálpa þér með að díla við þörunginn, hún vex svo hratt að hún er ídeal til að svelta þörunga.
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Jæja, hafði tíma aflögu í gær eftir vinnu áður en ég átti að sækja strákinn úr frjálsum og auðvitað varð ég að kíkja í "fiskabúð". Las hér á öðrum link um dýrabúð á móti kringlunni, búð sem ég vissi ekki að væri enþá til (gæti verið önnur búð en var þarna fyrir 10árum)

Auðvitað sagði ég við sjálfan mig að ég ætlaði mér ekki að kaupa neitt fiskadót, bara nammi fyrir hundlinginn hans dengsa míns en ég gat ekki setið á mér þannig að ég keypti 2 fiska í leiðinni :)

Held einn af þeim sé þessi (var sá eini svona í búrinu):
http://www.tjorvar.is/html/three-spot_gourami.html
-þarf að kaupa kellingu handa honum(held honum)

Síðan var það einn svona:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... d134cbd817
-hræddi svertuna af honum þegar ég setti hann í búrið, hann var alveg hvítur af hræðslu greyjið en er orðinn flottur núna.

Síðan nokkrar lélegar myndir, ekki að ná þessu myndavéladæmi.

Image
Besta myndin sem ég náði og auðvitað er hann að horfa á mig :)

Image
Skásta af eldsporðinum.

Image
Balinn er að stækka.

Image
Önnur af gúrúnum.

Næst á dagskrá er samt að kaupa nokkrar plöntur í viðbót.
xxx :D xxx
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

:góður:

Eldsporðurinn á það þó til að hrella minni fiska, elta þá og angra jafnvel til dauða.
-Andri
695-4495

Image
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Hann er reyndar bara pínkulítill enþá, þorir ekkert að ibba sig strax. En ef hann fer að gera sig stórann þá fer hann bara í ferðalag :)
xxx :D xxx
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

flott búr :góður:
:)
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Kominn tími á að bæta plöntum í búrið og kellu fyrir bláa gúrúinn og jafnvel 2 rækjur í viðbót svo hinar fái félagsskap :)
Þannig að Dýragarðurinn fær heimsókn á eftir frá mér.
xxx :D xxx
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

á eftir.........já eftir nokra tíma ...klukkan er 2 um nótt :lol:
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
SadboY
Posts: 94
Joined: 13 Mar 2009, 12:26

Post by SadboY »

Shit hvað ég verð að fara að hætta þessu! Fór í Dýragarðinn áðan og eyddi alltof miklum pening eins og alltaf :)
En það bættust 5 plöntur við búrið, blái gúrúinn fékk kerlu og svo fékk ég mér tvær rækjur í viðbót, rækjurnar voru mjög litlar þannig að ég á ekki eftir að finna þær í búrinu :)

Næst á dagskrá er síðan að fá sér kolsýru apparat.

Image

Mynd af búrinu fyrir breytingu.

Image

Og mynd eftir breytingu.

Tók hvítu steinana úr búrinu því það var nóg yfirlýsing fyrir og bjó til annan helli á sama stað.
xxx :D xxx
Post Reply