Starfsfólk í fiskaverslunum...

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Starfsfólk í fiskaverslunum...

Post by Vargur »

Ég skellti mér í Dýraríkið í Garðabæ í dag og þegar ég var að skoða fiskana heyrði ég útundan mér þegar að starfsmaður þar var selja fólki gullfiska í lítið búr.
Hann gaf mikil og mörg ráð sambandi við meðferðina á gullfiskunum áður en þeir færu í búrið sem virtust svo sem ágæt en þegar hann fór að keppast við að selja fólkinu einhverja dropa til að setja í vatnið þá fór ég að sperra eyrun, ég náði svo sem ekki alveg málinu með dropana en þeir virtust allra meina bót og áttu nánast að lífga fiskana upp frá dauðum.
Í framhaldi af dropatalinu kom þó aðalmálið, starfsmaðurinn sagði fólkinu að setja einungis kalt vatn úr krananum í búrið og fara svo með búrið í baðkarið og setja það þar í heitt vatn til að hita vatnið í rétt hitastig.
!!!'??? :shock: :roll:
Ég fann mig knúinn til að skipta mér aðeins af og sagði að það væri í fína lagi að blanda bara vatnið í rétt hitastig beint úr krananum en kappinn var snöggur að svara að hann ráleggi fólki alltaf að gera þetta svona út af súrefninu.

Ég fór að hugsa, er þetta eitthvað sem starfsfólki þarna er uppálagt af sínum yfirmönnum að segja við kúnnana eða er þetta rugl bara samið á staðnum ?
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Re: Starfsfólk í fiskaverslunum...

Post by Kitty »

Vargur wrote: Í framhaldi af dropatalinu kom þó aðalmálið, starfsmaðurinn sagði fólkinu að setja einungis kalt vatn úr krananum í búrið og fara svo með búrið í baðkarið og setja það þar í heitt vatn til að hita vatnið í rétt hitastig.
!!!'??? :shock: :roll:
staðnum ?
WTF BBQ var maðurinn ekki að grínast í fólkinu bara :?: Að hita búrið upp í baðkerinu er fáránlega flókin leið. Hvað gerir maður þá við 200l búr til að hita það ?? Ræður sér nokkra krafta jötna til að bera það á milli og biður til æðri máttarvalda að botnin haldi :roll:
Ef maður hefur tímann til að bíða eftir að búrið hitni í baðkerinu er þá ekki alveg eins gott að setja bara hitarann í búrið og bíða spakur meðan hann vinnur vinnuna sína !
Ég man eftir að hafa heyrt ráðleggingar um að nota ekki hitaveituvatn í búrin heldur sjóða vatn úr kaldakrananum til að forðast steinefnin í heita vatninu. Ég hef að vísu aldrei farið eftir þeirri ráðleggingu og mínir fiskar lifað ágætu lífi hingað til.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hehe ég gæti ekki einu sinni haldið á 30 L búri á milli baðkars og þess staðs sem það ætti að vera á :P en hvað svo ef fólk á ekki einu sinni baðkar? hehe :P oft voðalega vitlaust fólk að vinna þarna í þessum Dýraríkisverslunum. Minnir að ég hafi heyrt einmitt álíka heimskulegar ráðleggingar svona útundan mér í þessum verslunum :P
200L Green terror búr
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

held að það vanti bara alla fræðslu til nýrra starfsmanna þarna, ja, nema náttúrulega um ofurnáttúrulega eiginlega allra sera dropanna :?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

mig vantar einmitt svona ofurnáttúrulega dropa, nota þetta sjálf ef ég er eitthvað slöpp :lol:
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Post by bryndis »

gudrungd wrote:mig vantar einmitt svona ofurnáttúrulega dropa, nota þetta sjálf ef ég er eitthvað slöpp :lol:
Já, líka mjög sniðugt að setja þá út í baðið hjá manni, maður fær mjög fallegan lit eftir sera-böðin.
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

bryndis wrote:
gudrungd wrote:mig vantar einmitt svona ofurnáttúrulega dropa, nota þetta sjálf ef ég er eitthvað slöpp :lol:
Já, líka mjög sniðugt að setja þá út í baðið hjá manni, maður fær mjög fallegan lit eftir sera-böðin.
LOL svo lengi sem það er þetta brúna ekki þeta eitur græna þá fær maður þvílíkt flottan hnakka lit ...bara að passa skamtinn svo maður endi ekki eins og gulrót.
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Re: Starfsfólk í fiskaverslunum...

Post by Rodor »

Vargur wrote: Ég fór að hugsa, er þetta eitthvað sem starfsfólki þarna er uppálagt af sínum yfirmönnum að segja við kúnnana eða er þetta rugl bara samið á staðnum ?
Þetta er bara dæmigert fyrir íslenska "sérfræðinga" á þessari öld, þarf ég nokkuð að nefna dæmi :?: 8) :roll:

Við þyrftum að hafa nafnspjöld sem á stendur fiskaspjall.is. Við getum svo afhent fólki þau í búðum þegar verið er að plata það :!:
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Re: Starfsfólk í fiskaverslunum...

Post by Kitty »

Rodor wrote:
Vargur wrote: Ég fór að hugsa, er þetta eitthvað sem starfsfólki þarna er uppálagt af sínum yfirmönnum að segja við kúnnana eða er þetta rugl bara samið á staðnum ?
Þetta er bara dæmigert fyrir íslenska "sérfræðinga" á þessari öld, þarf ég nokkuð að nefna dæmi :?: 8) :roll:

Við þyrftum að hafa nafnspjöld sem á stendur fiskaspjall.is. Við getum svo afhent fólki þau í búðum þegar verið er að plata það :!:
Góð hugmynd :!:
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Hef aldrei heyrt eða lesið um aðra eins ÞVÆLU. og útaf Súrefninu???? súrefnis innihald vatns minnkar við hærra hitastig alveg sama hvernig vatnið er hitað eða hvurn fjandan maðurinn er að meina??

Þarf ekki að setja upp aðvörunarskilti fyrir utan þetta Sýrubæli??!!
Ace Ventura Islandicus
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

animal wrote:Þarf ekki að setja upp aðvörunarskilti fyrir utan þetta Sýrubæli??!!
!! AÐVÖRUN, AÐVÖRUN!!
sýrubæli fram undan haldið börnum ykkar frá og takið þau ekki með ykkur inn!
hér inni skuluð þið ekki búast við að fá gáfuleg ráð , leitið frekar annað fyrir ráðleggingar
User avatar
Cundalini
Posts: 329
Joined: 28 Jul 2008, 22:52
Location: Hfj

Post by Cundalini »

Mér líst strax vel á þennann náunga og vill fá hann hingað á spjallið.
Þessir dropar sem hann er að tala um eru þetta ekki bara amfetamínsterar :lol:
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

:lol:
Regína
Posts: 49
Joined: 03 Jan 2009, 19:01

Post by Regína »

ég er ekki sú besta að þekkja staðsetningar í RVK en er Dýraríkið í Garðabæ?? það er á Miðhrauni, Grensásvegi og Skútuvogi... eru einhverjar af þessum götum í Garðabæ???
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Miðhraun fellur undir garðarbæ.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Cundalini wrote:Mér líst strax vel á þennann náunga og vill fá hann hingað á spjallið.
Þessir dropar sem hann er að tala um eru þetta ekki bara amfetamínsterar :lol:
legg til að hann verði fenginn til að halda smá fyrirlestur um uppsetningu og viðhald á fiskabúrum fyrir okkur á opnum fundi hjá Skrautfiski.... helst með sýnikennslu! :rofl:
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

gudrungd wrote:
Cundalini wrote:Mér líst strax vel á þennann náunga og vill fá hann hingað á spjallið.
Þessir dropar sem hann er að tala um eru þetta ekki bara amfetamínsterar :lol:
legg til að hann verði fenginn til að halda smá fyrirlestur um uppsetningu og viðhald á fiskabúrum fyrir okkur á opnum fundi hjá Skrautfiski.... helst með sýnikennslu! :rofl:

Hehe já mér þætti gaman að sjá hvernig hann fer að því að halda á einu 200L fiskabúri bara sisvona inn í bað til að hita vatnið í því :P því það þarf líklegast að hita vatnið í þessum stóru búrum líka :roll: :P
200L Green terror búr
User avatar
alexus
Posts: 84
Joined: 18 Dec 2007, 23:18
Location: Reykjavík,104

:)

Post by alexus »

málið með heita vatnið er sko það að það er kísill í heitu vatni á íslandi sem gefur svona hvít skám á glerið annað en það er það fullkomlega meinlaust að nota það :P svo framalega sem maður notar galdradropa auðvitað
"Mörkin milli geðveiki og snilldar verða bara mæld með árangri....."
110L
60L
54L
25L
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

einhverntíma kom fram á þessu spjalli að heita vatnið á höfuðborgarsvæðinu er upphitað kalt vatn.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

btw. það eru líka efni í kalda vatninu sem gera hvítar rákir og.......(trommusláttur!) í flestum hverfum á höfuðborgarsvæðinu þessa síðustu og verstu tíma er heita vatnið upphitað kalt vatn, þú getur fengið upplýsingar um það hjá orkuveitunni hvort það er þar sem þú býrð. (TATA!)
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ohhh! Andri þú varst á undan mér! sorry Orkuveitunni, þetta er víst hf, ég veit fyrir víst að ég er með borholuvatn.
maggmagg
Posts: 26
Joined: 07 Feb 2009, 23:50

Post by maggmagg »

gudrungd wrote:
Cundalini wrote:Mér líst strax vel á þennann náunga og vill fá hann hingað á spjallið.
Þessir dropar sem hann er að tala um eru þetta ekki bara amfetamínsterar :lol:
legg til að hann verði fenginn til að halda smá fyrirlestur um uppsetningu og viðhald á fiskabúrum fyrir okkur á opnum fundi hjá Skrautfiski.... helst með sýnikennslu! :rofl:
garg! ég frussaði kaffibollanum yfir skjáinn! :klappa:
en ég sé þetta í anda gæjann vera að spá í að koma 270ltr búri í baðkar! hahaha :rofl:

en ég man eftir því sem barn með gullfiskakúlu. mamma sauð alltaf allan sand og plastgróður 1x í viku! notaði svo kallt vatn og soðið vatn í bland.
sæi mig í anda að fara að fylla 350lt burið í horninu á þennan veg!
bryndis
Posts: 184
Joined: 15 Oct 2007, 01:12

Re: :)

Post by bryndis »

alexus wrote:málið með heita vatnið er sko það að það er kísill í heitu vatni á íslandi sem gefur svona hvít skám á glerið annað en það er það fullkomlega meinlaust að nota það :P svo framalega sem maður notar galdradropa auðvitað
gudrungd wrote:btw. það eru líka efni í kalda vatninu sem gera hvítar rákir og.......(trommusláttur!) í flestum hverfum á höfuðborgarsvæðinu þessa síðustu og verstu tíma er heita vatnið upphitað kalt vatn, þú getur fengið upplýsingar um það hjá orkuveitunni hvort það er þar sem þú býrð. (TATA!)
Hmm.. Meinaru í heita vatninu Guðrún? Efast um að það sé kísill í kalda. Ekki nema það sé kísill í heita og annað efni í kalda sem gerir líka hvítar rákir.. Þá ætti það litlu að skipta hvort maður notar heitt eða kalt?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er kalk og fleiri steinefni í kalda vatninu sem valda rákum alveg eins og í heita vatninu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply