Hvar finnur maður fínan svartan sand?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Hvar finnur maður fínan svartan sand?

Post by keli »

Ég er að leita að fínum svörtum sandi til að setja í búr hjá mér. Keypti sandkassasand í björgun, en hann er eiginlega of fínn, verður að hálfgerðri drullu þegar maður skolar hann.

Einhverjar hugmyndir hvar ég finn svoleiðis? Ég er að leita að einhverju af svipuðum grófleika og sundlaugarfiltersandinum, bara svart.

Vargur, Þú varst með einhvern svona sand hjá þér var það ekki? Hvar fékkstu hann?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sandinn náði ég í fjörunni rétt vestan við Eyrarbakka, fínasti sandur sem þurfti bara rétt að skola.
Sandurinn er reyndar ekki alveg kolsvartur en ég er sáttur.

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég fékk svona sand í Fínpúsningu Hfj (ef ég man nafnið rétt), móti Álverinu. Sandblásturssandur

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Lítur út fyrir að ég þurfi að gera mér ferð á eyrarbakka, sandkassasandurinn myndi líklega gera búrið mitt gruggugt í marga mánuði :)


Var vesen að þrífa þennan sand andri?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

kem með þér Keli
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nei ég get ekki sagt það. ég var mjög ánægður með þennan sand, þetta var þegar búrið mitt var alltaf gruggugt og ég var farinn að gruna sandinn, þessvegna skipti ég í möl.
En gruggið hélt reyndar áfram þar til ég fékk mér UV-ljósið þannig að ég væri alveg til í að prófa sandinn aftur, mér finnst hann miklu flottari en mölin.
Ég var reyndar ekkert rosalega duglegur að ryksuga botninn á þessum tíma og það gæti vel hafa orsakað gruggið líka.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
EiríkurArnar
Posts: 475
Joined: 30 Nov 2008, 21:18
Location: Garður

Post by EiríkurArnar »

ég keypti mér svartan fínan sand í keflavík, dýrabúrinni þar, ekkert svo dýr þar sandurinn
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Fór í múrbúðina og fékk 75kg af pússningarsandi á 1500kr. Ódýrara en að keyra útá eyrarbakka þannig að ég læt það duga. Núna hefst hamingjan við að skola hann :roll:
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Endilega láttu mig vita Keli hvernig sandurinn kemur út ? Ég er nefnilega með engan sand í búrinu hjá mér og er að leita að svona mjög svörtum sandi.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Er búinn að setja einn poka í búrið. Eftir töluvert föndur við að skola hann þá kemur það *mjög* vel út finnst mér. Búrið var gruggugt í gærkvöldi en orðið tært í morgun. Mátt alveg gera ráð fyrir amk 1klst í að skola einn poka samt :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

væri gaman að sjá mynd af þessum sandi ef þú nennir.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Svosem svipað og andri póstaði..
Image

Hann er fínni en hann lítur út fyrir að vera, og dekkri.. Myndin er ööörlítið yfirlýst hjá mér. :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply