Stilling hitara

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Stilling hitara

Post by Hrafnkell »

Í Rio 125L búrinu góða þykir mér heldur erfitt að stilla hitann á það sem ég vil hafa hann. Hitinn er svosem stöðugur en í engu samræmi við það sem ég stilli hitarann á.

Búrhitinn núna er um 26 gráður en hitarinn er stilltur á 20 gráður. Þegar ég setti búrið upp stillti ég á 26 gráður en þá var búrið í um 30 gráðum.

Er það kannski algengt að kvarðinn á hiturum sé vitlaus og menn þurfi bara að læra á hann?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það á að vera hægt að stilla hann. s.s. leiðrétta villuna.
ég las bæklinginn fyrir minn hitara og þar voru nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig það er gert.
Man ekki hvernig það var gert en vildi bara segja þér að það er hægt :wink:
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Aldrei hefði mér dottið í hug að lesa leiðbeiningabækling með hitara :oops:
En það er einmitt sem ég þyrfi kannski að gera því ég er alltaf í vandræðum með mína, þeir hita allt of mikið.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Eyjó
Posts: 298
Joined: 26 Mar 2007, 16:12
Location: Reykjavik

Post by Eyjó »

Hvernig hitara ertu með?
Ég er með einn Jager sem er keyptur í dýraríkinu og þarf að stilla eftir búrinu. Maður togar bara takka upp á honum og setur á hitann sem er á búrinu.
Þetta stendur allt í leiðbeiningunum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hitarinn getur ruglað mann aðeins og lítið hægt að fara eftir tölunum. Umhverfishiti og ljósið spilar líka mikið inn í málið. Við flestar aðstæður þarf ekki hitara í Juwel búrin vegna þess hve ljósin hita mikið og hve vel búrin eru lokuð. Mín Juwel búr halda alveg hitanum í 24-26° án hitara.
Ef hitarinn heldur þínu æskilega hitastigi stilltur á 20° þá mundi ég bara láta það gott heita.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Ef hitarinn er með innbyggðum hitamæli ætti það ekki að skipta máli þótt ljós og dælur dugi til að hita búrið. Hann ætti þá ekkert að fara í gang sé hitinn við eða yfir vatnshitanum.

Nú getur verið að það sé enginn hitamælir. Juwel menn hafi bara áætlað hve oft hitamælirinn þurfi að fara í gang m.v. settan hita og "eðlilegar umhverfisaðstæður". Annar möguleiki er að hitamælirinn sé vitlaust kvarðaður. En annar er að hitinn inn í dælu/síu rýminu í Juwel búrinu sé einfaldlega hærri en vatnshitinn. Þar inni keyrir jú dælan og síðan en ekki síst eru þar fullt af efnahvörfum í gangi í bakeríuflórunni. Mjög líklega er varmi frá því. Mér finnst þessi skýring ekki mjög líkleg en samt..

Ég sendi nú bara fyrirspurn á þjónustuna hjá Juwel. Best að skella líka hitamæli ofan í dæluhúsið.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hitarinn er ekki með hitamæli eða thermostati heldur bara einföldum tímarofa. Reyndar ætti þetta ekki að vera svona hjá þér af því búrið er í efri mörkum þess sem hitarinn er gerður fyrir þannig þú ættir að þurfa að stilla hann hærra til að fá rétt hitastig í búrið, þannig hann gæti verið gallaður.

Hefur þú prófað að taka hann bara úr sambandi og sjá hvað það gerir ?
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Post by Hrafnkell »

Skv. heimasíðu Juwel virðist hitarinn vera með thermostati:
The Automatic Heater Thermostat is designed to fit perfectly
Sjá http://www.juwel-aquarium.de/en/heizer47.htm

Sjáum hvað setur :)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Oftast eru hitarar ekki með hitamæli þannig séð heldur hálfgert járnstykki sem þenst út og dregst saman eftir hita og tengir saman þegar hitastigið er rétt.

Gasalega sniðug mekkanísk lausn - hræódýrt að framleiða líka. Þessvegna þarf oft að breyta kvarðanum á svona hiturum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply