Vargur á ferðinni.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Vargur á ferðinni.

Post by Vargur »

Ég hef verið nokkuð duglegur við að heimsækja fiskafólk enda alltaf gaman að skoða hjá öðrum, slíkt gefur manni hugmyndir og iðulega sér maður nýjar hliðar á hobbýinu.
Ég er að hugsa um að nota þennan þráð í að sýna ykkur hinum hvað aðrir eru að stússast og reyna að stíla inn á að segja frá heimsóknum til þeirra sem kannski eru ekki endilega virkir í skrifum hér á spjallið þó þeir jafnvel lesi allt efni sem hér birtist.

Í dag tók ég hús á Guðmundi Erni sem oft er kenndur við diskus.
Það verður þó að segjast að ekki var það diskusinn sem vakti athygli mína heldur fremur 8000 lítra Koi tjörnin sem Guðmundur hefur í garðinum hjá sér.
Tjörnin er hin glæsilegasta og fiskarnir hreint út sagt svaðalegir að sjá.
Sírensli er í tjörnina og einnig loftdæla og öflugur hreinsibúnaður.

Hér eru nokkrar myndir af dýrðinni.
Image
Image

Image
Handfylli.

Image
Image
Matartími - Cheerios.

Image
Engar smá sleggjur.

Image
Hreinsibúnaðurinn.

Image
Heildarmynd af dýrðinni.

Guðmundur er einnig ötull í diskusa rækt og í bílskúrnum hjá honum er allt stútfullt af þeim fallegu fiskum.
Diskusarnir eru greinilega aldir af kostgæfni og hef ég sjaldan séð jafn fallega fiska og greinilegt að mikil vinna er lögð í diskuseldið.
Aðstaðan samanstendur af 4 ca 300 lítra uppeldisbúrum og svo eru ræktunapör annars vegar í ca 200 lítra búri og um 500 lítra kari.

Image
Image
Image
Last edited by Vargur on 25 Mar 2007, 20:15, edited 2 times in total.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

vaaaá!.. :o shit hvað ég ætla að fá mér tjörn einhverntíman!.. og koi og styrjur í hana!.. :lol:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er magnað!
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

er hægt að fá einhverjar tölur yfir þessa tjörn, eins og t.d. stærðir og kostnað á bkvið þetta.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta er svakaleg tjörn.

Ég er strax farinn að sjá eftir að hafa ekki mokað stærri í sumarbústaðinum hjá mér, hún er bara 3000 lítrar. Hefði auðveldlega getað haft hana 4x stærri. Svo er ég með sírennsli af ofnunum í bústaðnum í hana þannig að hún er meiraðsegja of heit, eða um 33 gráður.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er greinilegt að sumarbústaðurinn er kyrfilega kyntur. Er eitthvað líf í þessari Kela-keldu,
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Þetta er ekkert smá flott!!!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Sæmilega stórir Koi hjá honum :)

Hérna er mynd af tjörninni hjá foreldrum mínum sem er 35.000 Lítra
Image
User avatar
Herra Plexý
Posts: 208
Joined: 11 Jan 2007, 13:17
Location: Vogar.
Contact:

Post by Herra Plexý »

keli wrote:Ég er strax farinn að sjá eftir að hafa ekki mokað stærri í sumarbústaðinum hjá mér, hún er bara 3000 lítrar. Hefði auðveldlega getað haft hana 4x stærri. Svo er ég með sírennsli af ofnunum í bústaðnum í hana þannig að hún er meiraðsegja of heit, eða um 33 gráður.
Er þetta ekki tilvalið sem diskusa tjörn, það væri töff. :D
Svo mikið til að gera, svo lítill tími.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hérna er mynd af tjörninni hjá foreldrum mínum sem er 35.000 Lítra
35.000 lítra ? Er það pottþétt ? Mér sýnist hún ekki svo stór á myndinni. Er hún kannski 5 metra djúp ? :) [/quote]
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

maniacs!
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Mér datt í hug að bæta inn þessari mynd sem sýnir tengdason Guðmundar Arnar halda á þeim stærsta úr tjörninni.

Image

Myndin er tekin fyrir tæplega ári síðan þannig skepnan hefur líklega stækkað aðeins.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Jebb pottó 35ÞL, er 2m djúp
indjaninn
Posts: 2
Joined: 29 Mar 2007, 00:20

Post by indjaninn »

eruð þið með sírensli í tjarnir í heimahúsum eða þarf þess ekki
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég tel að sírennsli sé ekki nauðsynlegt en sjálfsagt albest.
Nokkuð öruggt er að á tjörninni þarf að vera yfirfall eða eitthvað svo vatn geti runnið úr henni og möguleiki til vatnskipta. Þá er nú orðið stutt í mögulekan á sírennslinu eða þá að láta renna í tjörnina hluta dagsinns.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Squinchy, heldur þessi yfirbygging þarna máfnum í frá því að stela?
Er alltaf að velta fyrir mér ,,huggulegum" lausnum á flögrandi koi þjófum :mrgreen:

Verð að vera vel undirbúin þegar ég fæ mér tjörn 8)

Bara glæsilegt að skoða hjá Guðmund, bíð en spennt eftir sumarmynd frá honum
með gullregninu hangandi yfir 8)

Image
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Alveg rosalegt flottur tjörn og ekki minna flottur , eiginlege geggja flottur diskusar. :D
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Í dag fór karlinn í Vogana (póstnúmer 190) og var tilefnið félagsfundur hjá Skrautfisk. Fundurinn var haldinn hjá honum Hr. Plexy, ekki ætla ég að koma eitthvað sérstaklega með myndir af hans búri, læt hann frekar sjálfan um það enda má lesa um búrið í þræði hér á spjallinu.
Læt þó flakka eina mynd af kappanum við búrið og tvær úr búrinu.

Image

Image

Image

Eftir fundinn leit ég við á hverfispöbbnum í Vogunum, nafnið fór alveg fram hjá mér en staðurinn er hinn huggulegasti, rúmgóður og að sjálfsðgðu er þar fiskabúr.
Búrið er 750 lítra og í því nokkrar stórar Malawi sikliður, Óskarar, bótíur, álar og ýmsir kattfiskar, þar á meðal 2 long fin Pangasius, framtíðar skrímsli.

Image
Þór, eigandi staðarinns við búrið.

Image
Í búrinu er Fluval tunnudæla af stærstu sort.

Image
Image
Óskarar.

Image
Fínt að fá sér kaldan og horfa á búrið.
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

Drottinn minn sæll :)
aldeilis flott Koi-tjörn! :shock:

..og fiskabúrin eru virkilega fín ;)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Sá líka að Vargurinn var í Fréttablaðinu í morgun :wink:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jamm ég sá hann einmitt í fréttablaðinu... og verslunin var skemmtilega vitlaust stafsett :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

keli wrote:Jamm ég sá hann einmitt í fréttablaðinu... og verslunin var skemmtilega vitlaust stafsett :)
Svaka skemmtilega... :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég var að lesa aftur greinina sem birtist í Víkurfréttum um daginn, skondið að sú grein hjá litlu blaði er miklu betur unnin en grein Fréttablaðsins.
Fréttablaðsgreinin kom upprunalega til vegna skrifa minna í þennan þráð, þ.e. blaðamaðurinn rakst á þráðinn og hafði samband, hann var þó einungis í sambandi símleiðis og kom aldrei sjálfur á staðinn.

Til samanburðar má lesa greinina úr Víkurfréttum hér
http://vikurfrettir.is/tolublad/704/sid ... fault.aspx
Reyndar frekar pirrandi hvað blaðamaðurinn þar virðist vera að reyna að lengja greinina með lýsingaorðum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Vargurinn var að setja upp fiskabúr á elliheimilinu Grund, búrið er 240 lítra og í því eru nokkrar Malawi sikliður. Búrið er staðsett á alzheimer deild sem þarna er og var gjöf frá einum aðstandenda.

Image

Image

Ég hef heyrt í fréttum að ansi dökk mynd er dregin upp af dvalar og hjúkrunarheimilum, skortur á starfsfólki og þrengsli. Ekki varð ég var við annað en góða hluti þarna, starfsfólk einstaklega alúðlegt og heimilismenn virtust almennt hressir og allir á staðnum einstaklega vingjarnlegir og áhugasamir um búrið, bæði starfsfólk og heimilismenn.
Slikur er áhuginn að ekki er ólíklegt að fleiri búr verði sett upp á staðnum.
Rut
Posts: 69
Joined: 11 Nov 2006, 13:38

Post by Rut »

Frábært! Þetta mætti sko gera á fleiri hjúkrunardeildum, hefur pottþétt góð áhrif á bæði starfs- og heimilismenn.
Gaman að heyra svona jákvætt talað um elliheimili, ég er sammála þér að umræðan er oft neikvæð og hrikalega ósanngjörn. Þessi þrengslamál hafa sem betur fer (fyrir alla aðila málsins, heimilismenn og starfsfólk) stórbatnað á síðustu árum og mín reynsla er sú að starfsfólki þykir mjög vænt um skjólstæðinga sína og sinnir þeim vel.
indjaninn
Posts: 2
Joined: 29 Mar 2007, 00:20

Post by indjaninn »

hvað kostar hreinsibúnaður sirka í 10000 lítra tjörn.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Fer allt eftir tjörninni.

Svo myndi ég mæla með að stofna nýjan þráð frekar en að pósta einhverju ótengdu þráðnum sem þú póstar í :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Tók sunnudagsbíltúr í dag til Keflavíkur og þjónustaði í leiðinni eitt búr.
Búrið er frekar lítið en þó smekklegt búr á veitingastaðnum Thai-Keflavík. Í búrinu eru nokkrir smærri fiskar, sverðdragarapar, 4 kardinálar, glersuga, 2 skalar, 2 bala hákarlar og gullfallegur Long-fin Pangasius, framtíðar skrímsli sem á eftir að vaxa upp úr búrinu.

Hér eru einhverjar slappar myndir en frekar bjart var og búrið er opið í gegn þannig það myndaðist fremur illa.

Image
Heildarmynd af búrinu.

Image
Pangasius á fullu.

Image
Annar bala durgurinn.

Ég hvet mannskapinn til að líta við á þessum fallega og mjög svo snyrtilega stað. Þarna má fá frábæran mat á hóflegu verði og ekki spillir fyrir að geta litið á Pangasiusinn meðan borðað er.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

ég´er sökker fyrir bala

þessi þráður er frábær
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já mjög gaman að sjá búr á svona opinberum stöðum. Ertu að sjá um e-ð mörg búr?

...mig langar svo í long fin :cry:
-Andri
695-4495

Image
Post Reply