Fiskar í útrýmingahættu

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Fiskar í útrýmingahættu

Post by Vargur »

Það eru því miður margar tegundir dýra ekki lengur til og í hættu á að deyja út. Ég hef aðeins verið að skoða fiska sem eru í útrýmingahættu og eru flestar tegundir sem eru í útrýmingahættu að deyja út af mannavöldum á einn eða annan hátt. Mengun er stærsta ástæðan.
Margar tegundir eru útdauðar í náttúrunni en eru þó sem betur fer enn til sem búrfiskar eða í dýragörðum.
Ég var að skoða lista yfir tegundir sem eru útdauðar í náttúrunni en hann er gríðarlegur, þegar ég rendi í fljótheitum yfir listan rakst ég á eitt nafn sem ég kannaðist við, Epalzeorhynchus bicolor, betur þekktur sem rauðsporður eða eldhali.

Image

Þessi algengi fiskur sem er til í öllum gæludýraverslunum og fjölmörgum fiskabúrum er talinn útdauður í náttúrunni og er einungis ræktaður í dag.
Magnað !

Hér er hægt að fræðast um dýr í útrýmingahættu, http://www.iucnredlist.org/
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

ég á einn svona, hefði aldrei dottið í hug að þeir væru útrýmdir í náttúrunni, þeir eru helvíti grimmir á meðan að þeir eru að stækka en þegar að þeir eru komnir á aldur þá fara þeir að róast að verða voðalega indælir
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Fiskar í útrýmingahættu

Post by keli »

http://en.wikipedia.org/wiki/Red-tailed_black_shark
The species is endemic to Thailand, and was described by Hugh M. Smith in 1931 as being 'not uncommon' in Bueng Boraphet and the streams which lead from it, and as being found in the Menam Chao Phaya as far south as Bangkok.[1] A 1934 expedition reported catching a specimen in the Silom canal.[2] As of 2011 it is only known at a single location in the Chao Phraya basin, and has Critically Endangered status on the IUCN Red List.[3] From 1996 until 2011 it was believed to be Extinct in the Wild. There is no evidence that collection for the aquarium trade is responsible for the species' decline, and it is more likely that construction of dams and draining of swamps that took place during the 1970s resulted in their decline.[3]
Það fundust nokkrir í leiðangri í fyrra, þannig að þeir eru ekki alveg útdauðir enn - En næstum.


Veit að þetta er 5 ára gamall þráður, en það er í lagi að bæta við þegar maður finnur eitthvað nýtt :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Kubbur
Posts: 100
Joined: 09 Oct 2006, 13:28
Location: Reykjanesbær
Contact:

Re: Fiskar í útrýmingahættu

Post by Kubbur »

það eru líka til fjölmörg dæmi um að dýr hafi stökkbreyst til að lifa af, td er þorskur í hudson fljótinu í bandaríkjunum sem lifir af 100x pcp eitrun vegna þess að hann hefur þurft að lifa í því, hann safnar eitrinu upp í fituvefjum og verður því sjálfur eitraður, aðrir fiskar hafa lært að éta hann ekki
eftir að eitruð frosktegund barst af mannavöldum til mexico hafa höfuð ákveðinna snáka minnkað það mikið að þeir geta ekki étið eitruðu froskana
fiðrildi hafa breytt um lit og munstur við það að búa nálægt iðnaðarreykhöfum svo þau falli betur inn í reykinn

það eru til fullt af svona dæmum
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Re: Fiskar í útrýmingahættu

Post by Gudmundur »

Kubbur wrote:það eru líka til fjölmörg dæmi um að dýr hafi stökkbreyst til að lifa af, td er þorskur í hudson fljótinu í bandaríkjunum sem lifir af 100x pcp eitrun vegna þess að hann hefur þurft að lifa í því, hann safnar eitrinu upp í fituvefjum og verður því sjálfur eitraður, aðrir fiskar hafa lært að éta hann ekki
eftir að eitruð frosktegund barst af mannavöldum til mexico hafa höfuð ákveðinna snáka minnkað það mikið að þeir geta ekki étið eitruðu froskana
fiðrildi hafa breytt um lit og munstur við það að búa nálægt iðnaðarreykhöfum svo þau falli betur inn í reykinn

það eru til fullt af svona dæmum
Reyndar er það svo að engir tveir einstaklingar eru eins í lífríkinu og þess vegna koma upp svokallaðar stökkbreytingar sem eru ekkert annað en náttúruval td. í sambandi við froskana og snákana þá hafa þeir snákar sem voru með stærra höfuð náð að éta froskana og drepist en hinir ekki og þess vegna lifa þeir áfram og fjölga sér og stofninn verður hausminni að miklum meirihluta
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Kubbur
Posts: 100
Joined: 09 Oct 2006, 13:28
Location: Reykjanesbær
Contact:

Re: Fiskar í útrýmingahættu

Post by Kubbur »

Nákvæmlega, það er annaðhvort að breytast eða drepast, ekki það að maðurinn eigi að leika sér að menga
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Fiskar í útrýmingahættu

Post by keli »

Kubbur wrote:Nákvæmlega, það er annaðhvort að breytast eða drepast, ekki það að maðurinn eigi að leika sér að menga
Þegar svona hlutir gerast á stuttum tíma þá er ekkert sem breytist - það er bara þannig að þeir einstaklingar sem eru betur aðlagaðir að aðstæðum (eru t.d. með minna höfuð) lifa, en hinir ekki. Það gerir það að verkum að stofninn þróast í þá átt. Ekki endilega stökkbreytingar sem valda breytingunni, heldur bara breyting á aðstæðum sem sumir henta betur í.

Sjá:
http://en.wikipedia.org/wiki/Natural_selection

Til ýmis skemmtileg testcase um þetta; t.d. var einhversstaðar þannig að girt voru af 4 stór hólf í eyðimörk, í eitt hólfið voru settar svartar mýs sem sjást vel á eyðimerkursandinum, annað hólfið brúnar mýs (svipaðar sandinum), enn annað hólfið blanda og svo autt hólf sem var control group. Það varð þannig að svörtu mýsnar dóu (næstum) út, en brúnu náðu að fjölga sér.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Fiskar í útrýmingahættu

Post by ulli »

keli wrote:
Kubbur wrote:Nákvæmlega, það er annaðhvort að breytast eða drepast, ekki það að maðurinn eigi að leika sér að menga
Þegar svona hlutir gerast á stuttum tíma þá er ekkert sem breytist - það er bara þannig að þeir einstaklingar sem eru betur aðlagaðir að aðstæðum (eru t.d. með minna höfuð) lifa, en hinir ekki. Það gerir það að verkum að stofninn þróast í þá átt. Ekki endilega stökkbreytingar sem valda breytingunni, heldur bara breyting á aðstæðum sem sumir henta betur í.

Sjá:
http://en.wikipedia.org/wiki/Natural_selection

Til ýmis skemmtileg testcase um þetta; t.d. var einhversstaðar þannig að girt voru af 4 stór hólf í eyðimörk, í eitt hólfið voru settar svartar mýs sem sjást vel á eyðimerkursandinum, annað hólfið brúnar mýs (svipaðar sandinum), enn annað hólfið blanda og svo autt hólf sem var control group. Það varð þannig að svörtu mýsnar dóu (næstum) út, en brúnu náðu að fjölga sér.
Reyndar eru nú dæmi um annað.

Í Ástralíu var flutt inn slatti af Cane Toad til að sporna við skordýra plágu.Það virkaði ágjætlega en svo kom annað mál þegar það varð nú allt í einu of fjölgun af Cane toads.
Cane toads eru gefa eitraðan vökva úr húð sinni þegar þær verða fyrir árás og er það banvænt fyrir flest allt sem gæti dottið í hug að éta þær.Slaungur krókudílar aðrar eðlur og fuglar.
Sumir slaungu stofnar hafa minkað svakalega eftir að þeir fluttu inn Cane toads en nú í dag er að koma í ljós að sumar slaungur eru byrjaðar að fá ónæmi fyrir eitrinu.

Teknar voru slaungur sem hofðu deilt svipuðum slóðum með Körtonum og svo aðrar slaungur sem höfðu aldrei komist í návist þeirra nátturlega sömu tegund af snákum.
Þeim var svo gefið Cane toads og sá hópur sem hafði deilt svæði með Körtonum kom mikið betur út í dánartíðni.Man nú ekki prósenturnar en þetta var áhugavert þar sem það er minna en 100 ár síðan Körtunnar voru fluttar inn.
Post Reply