Gúbbí got

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Gúbbí got

Post by Fiasko »

Er einhvernveginn hægt að sjá það á Gúbbíkerlingum áður en þær fara í got?

Er með eina kerlingu sem ég er búinn að setja í gotbúr. Hún er búinn að vera þar í 3 daga, ég er bara að spegúlera hvort ég hafi sett hana of snemma í gotbúrið.
Hvort það væru einhver einkenni sem fólk færi eftir áður en þær eru settar í gotbúrin?


Kveðja
Fiasko
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Ég náði einni á réttum tíma, hún var farin að fela sig og halda sig mikið á botninum inn í gróðrinum, alveg að springa náttúrulega, ég setti hana í gotbúrið seinnipartinn, seiðin voru komin daginn eftir.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

þetta er mjög mismunandi hun getur haldið seiðunum inni ser ef hun er stressuð i nokkra daga .. það er mesta trixið að fylgjast vel með henni og sja hvenar hun fer að fela sig... en ef þú missir af því ætturu ekki að hafa miklar áhyggjur ef þú ert með slatta af felustöðum þá ná þau að halda ser fra þvi að vera etin, ótrulegt hvað þau eru seig i þvi !! ... svo dundar maður ser bara við það að veiða þau upp :P ..
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Post by siggi86 »

Getur maður ekki kreist þetta útúr þeim?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

siggi86 wrote:Getur maður ekki kreist þetta útúr þeim?
nei
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Post by siggi86 »

Hefur einhver prófað? :)
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

það fer rosalega illa með fiskinn að kreista hann. smáir fiskar ein og guppy eru með rosalega viðkvæman hrygg og geta lamast við það eitt að halda þeim föstum til að kreista þá. ef þeir eru kreistir geta inniflin hæglega komið út í staðinn fyrir seiðin og þeir fá marbletti ( hef séð gúbbýkerlingu sem var kreist það sáust á henni marblettir (blóð í vöðvum) og fleira :æla:) einnig getur verið að seiðin séu ekki tilbúin og eru frekar creepy þegar þau fæðast þannig. líta út eins og kúlur með augu og hala neðan á eða þess vegna ennþá bara græn glær egg komu nokkur þannig í fyrsta gotinu hjá mér.
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
gunnikef
Posts: 281
Joined: 01 Mar 2008, 10:42
Location: keflavik

.

Post by gunnikef »

já eg hef prufað það hun dó og meiri hlutinn að seiðunum 7 voru á lifi af 27
gunni
Post Reply