**Elmu búr**

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

alveg magnað! tók eftir því áðan að það eru komin a.m.k 20 guppy seiði hjá mér i 60L búrinu :D en i þvi eru tveir fullorðnir kk multi color og restin eru ungfiskar, ég bjóst alls ekki við þvi að þessi guppy kvk hjá mér væri ólétt, , hun er mjög ung (finnst mér) varla komin með liti í sig , ég kallaði þetta Nicole Kidman óléttu, því það sást ekkert á henni :lol:

ég taldi þrjú molly seiði hjá mér en býst alveg við fleirum, örugglega einhver í felum. gef þeir artemíu og foreldrunum líka og það er étið með bestu lyst.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

eplasnigla kvk , fannst dauð í 100L búrinu hjá mér i morgun, eða öllu heldur fann ég tóma skelina. hún var veidd upp úr, þrifin og þurrkuð og stendur nú sem skraut við fiskabúrið.
hef ekki tekið eftir þvi hvort eitthvað hefur skriðið út úr eplasnigla eggjunum, ætli það hafi ekki misfarist allt hjá þeim og eplasnigla mamman tilvonandi orðið þunglynd og dáið bara. hún var mikið prýði í búrinu mínu og alltaf gaman að sjá þau "hjónin" saman, skríðandi út um allt eða fara "út að borða" saman, þá gúrku, sem var sett með góðri samvisku , reglulega í búrið hjá þeim.

annars gengur bara vel með 100L búrið, fyrir utan smávegis sýkingu í einum fisknum, en það virðist vera að hjaðna, skipti um 60L áðan og setti smá salt í búrið. vonandi fer sýkingin :? kem kannski með myndir fljótlega.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Alltaf leiðinlegt að missa flottar skeppnur úr búrunum hjá sér.
Krúttleg "út að borða" sagan :)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hehe takk Brynja :)

en fleiri sorgarfréttir :(

Brúska kvk lést í nótt :cry: af sárum sínum. hún var komin með einhver sár á bakið, ég saltaði og skipti um vatn og saltaði meira en hún dó. :(

ég helt i gærkvöldi að hún og herra Brúski væru í hrygningar hugleiðingum, því ég sá þau saman undir rótinni og höfðu það kózý. þau voru aldrei saman, nema þarna um kvöldið. fann hana svo draughvíta upp á rótinni í morgun og ég veiddi hana upp úr og fór með hana í póstulínið, og sturtaði niður með trega i hjarta..

þetta er leiðinlegt þvi að ancisturnar minar eru i miklu uppáhaldi hjá mér :(
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

ohh leiðinlegt! :?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já ekkert smá, en leit er hafin af nyrri brúska kerlingu fyrir herra brúska :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

fleiri dánarfregnir, Snilli dó. (eplasnigillinn) :cry:

sá Mollyana "Geraða" áðan, fyrsta skiptið sem ég horfi á þá geraða, og horfa á kk stynga "pindlinum" í hana, hehe

jæja verð að rjúka,
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Lindared wrote:fleiri dánarfregnir, Snilli dó. (eplasnigillinn) :cry:

sá Mollyana "Geraða" áðan, fyrsta skiptið sem ég horfi á þá geraða, og horfa á kk stynga "pindlinum" í hana, hehe

jæja verð að rjúka,
perri!
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

keli wrote:
Lindared wrote:fleiri dánarfregnir, Snilli dó. (eplasnigillinn) :cry:

sá Mollyana "Geraða" áðan, fyrsta skiptið sem ég horfi á þá geraða, og horfa á kk stynga "pindlinum" í hana, hehe

jæja verð að rjúka,
perri!
haha :lol:

:oops:

var nú samt ekkert með snakk og pepsi með, á meðan. bara sá þetta gerast á meðan ég var að horfa á fiskana. en já, viðurkenni það, ég er perri, múhahhaa :twisted: 8) :lol:

gerði vatnaskipti áðan í 100L búrinu og 60L búrinu niðri vinnu, tók c.a 40L úr stærra búrinu og kannski 20l úr minna búrinu. sá í sextíu lítrunum að það hafa orðið hugsanleg fjölgun hjá gúppíunum, sá nokkur minni seiði en hin vaxa með hraða ljóssins, nokkur komin með liti.

en fréttir af mollyunum, kerlan eignaðist sex seiði í fyrradag, þau voru öll ljós á litin, eitt er alveg hvítt, finnst það voða gaman því að kvk og kk eru bæði svört, þá eru níu mollyseiði hjá mér i 100L búrinu. eitt svart, eitt svart og hvítt og sjö hvít/grá. :D
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

smá fréttir af mollyunum, kk mollyarnir eru komnir með nýtt "leiktæki" yngsta molly kvk á hug þeirra allann,og þeir elta hana ut um allt. held að þrjú molly seiði hafi látist hjá mér, eru bara sex eftir, fjögur hvít og tvö svört.

fleiri og mun spennandi fiskafréttir: eignaðist mínu fyrstu OSCAR-a í gær *hoppar um af gleði* :D fékk þá frá ástinni minni *takk :wink: * hann á einn og ég á einn:)

þeir heita Mojito og Lemmi :) :wub:

tek myndir af þeim við tækifæri :D
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Lindared wrote: fleiri og mun spennandi fiskafréttir: eignaðist mínu fyrstu OSCAR-a í gær *hoppar um af gleði* :D fékk þá frá ástinni minni *takk :wink: * hann á einn og ég á einn:)

þeir heita Mojito og Lemmi :) :wub:
oooo en rómó :)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hehe,já mér finnst það :-)

þetta eru glæsileg eintök af Lemon Oscar. þvílíkt sætir :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

Post by eyrunl »

vá búrið er geeeeðveikt!!! en ef allir fiskarnir eru eitthvað að deyja hjá þér gæti verið sýking... ég held ég hafi látið þig fá bakteríudrepandi lyf en ef þú ætlar að nota það þá myndi ég fjarlægja plönturnar lyfir skemmir þær :) gangi þér rosa vel með nýju fiskana og flotta búrið!! ;)
Eyrún Linda
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

takk Eyrún :wink: hefur bara einn fiskur dáið, brúska gamla og gömlu eplasniglarnir. svo var ég með neon tetrur og cardinála í bland, og ég held að cardinálarnir hafi drepið neon tetrurnar, allavega dóu þær á undarlegan hátt, en allir cardinálarnir eru á lífi. einhver klíku morð í gangi? :roll:
en já ég er virkilega hrifin af búrinu :-)

:edit: það eru sjö molly seiði í búrinu, ekki sex eins og ég hélt. eitt er alveg svart, tvö eru svört m. hvítan kvið, 3 eru gráleit og eitt er alveg hvítt. svo eru tvær kvk væntanlegar með seiði fljótlega, hlakka til.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

jæja komin með annað búr, það er 96L búr. það kom í staðinn fyrir 56L búrið í vinnunni hjá mér, en í því eru eftirfarandi íbúar:

7x neon tetrur (fleiri væntanlegar)
2x ancistrur (báðar kk) kerling óskast :)
6x guppy (2x kvk og 4x kk)
og óteljandi mörg guppy seiði

búrið er voða tómlegt eins og það er en mjög flott (myndir koma fljótlega)

það sem mér langar að bæta seinna í búrið er rummy nose tetra og kannski einhverjir barbar eða aðrir líflegir fiskar .

finnst þessir svo flottir:
Barbus schuberti
Nematobrycon palmeri
Hyphessobrycon pulchripinnis
Barbus tetrazona
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvar ert þú að vinna sem þú getur haft fiskabúr?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

bílasölu :D

en herna eru fleiri fiskar sem mig langar mikið í:

Tetrur
Inpaichthys kerri
Hyphessobrycon herbertaxelrodi
Phenacogrammus interruptus
Hyphessobrycon erythrozonus


Barbar
Barbus hulstaerti
Triganostigma heteromorpha
Puntius rhomboocellatus


killifiskar
Aplocheilus lineatus
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

myndir frá nýja 96L búrinu :D

brúski, alsæll upp á nýja húsinu sínu, aka kókoshneta
Image

sá rauði, kemur úr minni rækt, rosalega fallegur
Image

sá rauði, aftur
Image

bróðir hans Rauða, þessi er gulur með rauðu
Image

neon tetrurnar
Image

og búrið :)
Image
Last edited by Elma on 29 Aug 2008, 18:45, edited 1 time in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Flottir gúbbarnir þínir.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

takk ásta :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vá búrið er mjög flott, rótin falleg og gróðrinum er raðað vel upp :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Flott hjá þér búrið og sérstaklega tekur maður eftir því hvað kókoshnetan er vel söguð :-)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

takk takk:)
pípó wrote: og sérstaklega tekur maður eftir því hvað kókoshnetan er vel söguð :-)
já pípó, eins og atvinnumaður hafi gert það :wink:
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það komu fjórir skalar í nýja búrið. það eru mjög líklega þrír kvk og einn kk. tveir þeirra eru búnir að parast og eru í augnablikinu á fullu að hrygna á valesneríurnar! þarf að losna við hina tvo skalana, því þeir eru ekki í uppáhaldi hjá parinu :( en það er svaka gaman að fylgjast með parinu hrygna, þau eru nú ekkert svaka hittin á plönturnar :)

var að fá Black Ghost í búrið :wub: frá kærastanum, takk elskan mín :knús1: er svo ánægð með hann, skalarnir eru það kannski ekki í augnablikinu :roll: en hann heldur sig undir rótinni, litla dúllan :)

ef einhvern langar í tvo skala, þá látið mig vita í ep :)
Last edited by Elma on 08 Sep 2008, 20:58, edited 3 times in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Black Ghost :)

Image
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

flottur black ghost! svo gaman að fylgjast með þeim :) til lukku með hann :!:
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

takk 8)

black ghost er í miklu uppáhaldi, einn uppáhalds fiskurinn minn!
þeir eru svo flottir! minn er um 10cm. :)

er komin með second thought um skallana, er ekki að fíla hvað þeir taka mikið pláss, og gupparnir og neon tetrurnar eru sk#thræddir við þá. eru bara í felum í gróðrinum, svo var stóri skallinn að bögga black ghost og eg var ekki ánægð með það :? , svo að skallarnir fá að fjúka á næstu misserum!
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

eignaðist sætan kk kribba í gær. hann er ekkert mikið fyrir að sýna sig svo herra Kribbi og Black Ghost eru voða miklir vinir nuna undir rótinni. skallarnir tóku honum ekki fagnandi en sýndu honum mikin áhuga. þeir þykjast eiga búrið :? en kribbin fannst líka kokoshnetan voða þægileg og var inn i henni í langan tíma áðan.

fékk lika tvær ancistrur, eina kk og eina kvk, þá eru fjórar ancistrur í búrinu.

Black Ghostinn minn er yfir sig hrifinn af rækjum og tekur þeim fagnandi á matmálstíma og syndir með rækjubita í munninum fram og til baka, voða ánægður :)


íbúarnir í 96L búrinu eru þá:

4x Neon tetrur
4x Ancistrur 1 kvk og 3 kk
3x guppy kk
1x Skalla par
1x Kribbi kk
1x Black Ghost
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

bættust við nokkrar tetrur í búrið. komst að því að ég er ekki með black phantom tetrur, heldur Black Widow tetrur

6 x Gymnocorymbus ternetzi
2 x Moenkhausia pittieri

rosalega skemmtilegir fiskar :)
Last edited by Elma on 08 Oct 2008, 09:38, edited 1 time in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

skalla parið hryngdi aftur, en gerðu sér síðan kavíarveislu. vona að þetta heppnist einhvern tima hjá þeim. hvernig er það, ef egg eru frjó hvernig eru þau á litinn? hef séð þau bæði glær og hvít.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply