1/2 tonn

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Lenti í þessu með mína unglinga á sínum tíma

Þetta er algengt vandamál meðal frontosa þar sem þetta eru djúpvatns fiskar þá koma þeir ekki oft nálægt lofti til að gleypa, nema þá í fiskabúrum

Það sem er hægt að nota til að reyna lækna þetta eru Grænar baunir og Epsonsalt

Ef það sýnir ekki árangur er loka úrræði að taka nál og tæma loftið, leiðbeiningar að því finnur þú á Youtube
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er mjög góð grein um þetta hér http://www.cyphos.com/forums/showthread.php?t=15649
Þið gætuð þurft að vera með aðgang til að sjá þetta.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég fór í Fiskó í dag "bara til að skoða" en kom auðvitað heim með poka og í honum var Altolamprologus compressiceps, gold head, sem er flottur og verður enn flottari þegar hann stækkar.
Ég var nú bara að fatta núna að ég var bjáni að hafa ekki tekið báða sem til voru, vill til að það er ekki langt fyrir mig að fara.

Þarna sá ég talsvert magn af Tropheus, það er nú meira hvað ég er alltaf veik fyrir þeim og það kemur að því að ég eignast góðan hóp.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Var komið eitthvað nýtt í fiskó?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég held ekki, það voru til þessir hefðbundnu fiskar.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Post by Eiki »

Til hamingju með þá, mjög flottir fiskar. Alltaf verið veikur fyrir compressiceps og Calvus.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Takk, þeir eru æði.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Til hamingju með þá. Á ekki að setja inn mynd fyrir okkur hin?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þegar ég nenni.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hrmppfff... ég fann litla kút fljótandi við yfirborðið áðan og steindauðan í þokkabót. Hann var án áverka svo líklegast hefur hann bara drepist úr hræðslu við fronturnar.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Fúlt :?


Ætlaru að fá þér annan?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Já, ég fæ mér aftur, kannski ekki alveg strax.
Er jafnvel að spá í losa mig við fronturnar :shock:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Ásta wrote:Já, ég fæ mér aftur, kannski ekki alveg strax.
Er jafnvel að spá í losa mig við fronturnar :shock:
ásta ertu klikk?? stóru fronturnar?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þetta er bara til umhugsunar.... ennþá...

Ég veit ekkert hvað ég vil núna.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég veit það, nýtt búr :D
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég þarf þá að losna við kallinn, eru einhverjar verslanir sem taka notaða kalla upp í búr?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Ásta wrote:Ég þarf þá að losna við kallinn, eru einhverjar verslanir sem taka notaða kalla upp í búr?
er hann ekki úrbræddur ? búið að þjöstnast á honum árum saman
færð varla meira en 2 ltr gullfiska kúlu fyrir hann :P
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Jú, gjörsamlega útbræddur og misnotaður :P
Það er samt hægt að senda hann út í búð (alla vega með miða).
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

hahaha hvernig þið talið um greyið kallinn :lol:

ásta...frekar nýtt búr í staðinn fyrir að losna við fronturnar....
því búrið þitt er eitt það flottasta sko :góður:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Æ takk Inga :)

Ég ætla að sofa á þessu í einhvern tíma
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Sá í gærkvöldi að ein hrygnan er komin með seiði.
Hugsanlega mun ég strippa hana en nenni samt eiginlega ekki að fara að hugsa um ungviði.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Post by Eiki »

Tókstu seiðin ??
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég ætlaði taka þau daginn eftir að ég póstaði seinast en fann 5 stk. dauð í búrinu :( þau voru orðin 2 cm og kviðpokalaus þannig að kerlan hefur verið búin að hafa þau í nokkurn tíma.
Ég hef ekki hugmynd um að hverju þau drápust, kannski hefur vatnið ekki verið nógu gott :?:

Ég fylgist betur með núna.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er fátt að ske í þessu búri þessa dagana.
Ég hef verið í svolitlu brasi með að fá þá til að éta, þeir taka þó oftast við nýjum fiski og rækju. Blóðormar svínvirka líka.
Hef verið svolítið með cichlid sticks.. eitthvað svoleiðis, þessa hefðbundnu brúnu stauta sem fást í öllum búðum en þeir eru ekki að virka nógu vel. Fronturnar koma ekkert mjög mikið upp til að éta og þessir stautar molna bara niður á of fljótum tíma.
Prófaði um daginn grænar kúlur frá Ocean Nutrition sem eru ágætar nema þær sökkva ekki, a.m.k. ekki strax. Kosturinn við þær er þó að þær geta legið í vatninu í sólarhring eða lengur án þess að fara í sundur og subba búrið. Ef ég hreyfi vatnið svolítið eftir að þær eru orðnar "legnar" fara þær stundum niður og eru étnar með bestu lyst.
Nú er ég með grænfóður frá Ocean Nutrition, flögur sem sökkva hratt og vel og eru étnar strax líkt og grænfóðrið frá Tetra sem hefur virkað vel.

Svo var ég svo óheppin að ljósið í búrinu gaf sig en á móti þvílíkt heppin að ég fékk það bætt. Svo nú er ég komin með T5, High Lite Blue og eina High Lite Day. Ég er enn að venjast ljósinu.

Er búin að vera ótrúlega löt við að taka fiskamyndir í sumar, eins og að skipta um vatn :P
Stendur allt til bóta.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

fleiri en þú latir í vatnsskiptum! fiskarnir eru farnir að fara á botninn og þeyta upp skítnum og horfa síðan ásökunaraugum á mig! ég er með bæði diskusa og gullfiska granules, sökkva rólega og haldast heillegir á botninum. er þetta kannski of smátt fyrir þína?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi amk hafa grænfóðrið sem algjört spari, það getur farið illa í fronturnar.

Það eru til einhverjar koi pillur sem sökkva rólega í dýragarðinum sem gætu hentað. Annars hef ég oft verið í þessum vandræðum líka, að finna mat sem sekkur. Ef þú vilt þá geturðu fengið massivore pellets smakk hjá mér. Þær sökkva hratt og eru frekar djúsí, það éta allir fiskar þær hjá mér, amk sem þær komast uppí.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hélt að grænfóðrið væri svo gott fyrir þá :oops:

Það virðist ekkert vera of smátt fyrir fronturnar þar sem þær ryksuga botninn í matarleit, kannski ég prófi þetta Guðrún.

Keli, ég væri til í að fá smá smakk.... til í að prófa allt sem sekkur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Post by Eiki »

Gef mínum frontum aðalega TetraPrima og New life spectrum(sökkvandi),þær dafna bara mjög vel á því.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þær eru eitthvað að hressast hjá mér og eru orðnar gráðugri, eru meira að segja farnar að koma aftur upp þegar ég kem að búrinu með mat.
Ég sá í seinustu viku að það er ein hrygna með hrogn, ég ætla að fylgjast vel með og reyna að strippa þegar að því kemur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Ásta wrote:ég ætla að fylgjast vel með og reyna að strippa þegar að því kemur..
:shock:

Er fólk nú farið að strippa fyrir fiskana sína til að reyna að koma þeim til?
Post Reply