Þar sem að java mosi getur fest sig við allan andsk.... datt mér í hug hvort hægt væri að fela dælubálknið með svoleiðis það er að segja setja nælonsokk utanum dæluna og taka frá inntakinu og binda svo bara javamosann í sokkinn. hvað er hann lengi að festa sig?
hvernig líst ykkur á þessa hugmynd?
ef einhverjir aðrir hafa reynt þetta væri rosalega fínt að fá ráð frá þeim .
Gallinn við nælonsokka er að þeir stíflast svo djöfulli fljótt... Dælan yrði fljót að verða gagnlaus með þessari lausn. Fólk er yfirleitt í því að stafla grjóti og rótum í kringum dælurnar svo þær sjáist ekki...
já en að vera ekki með sokkinn yfir inntakinu, dælan má nefnilega ekki fara í kaf þetta er einhver tetra dæla sem er opin að ofan og má því ekki fara í kaf þannig að mín hugmynd var að smeygja sokknum upp á dæluna (hún er risastór og skera svo bara frá inntakinu
Ég held að þetta sé alveg framkvæmanlegt ef þú þarft ekki að vera að taka dæluna sjálafa upp úr búrinu.
Ég held samt að það sé betra að nota fínt net frekar en nælonsokk.
En ef þú pússar bara dæluboxið með grófum sandpappír, crazy gluea-r svo nokkra búta af java mosa við boxið, mosinn ætti þá að dreifa úr sér með tímanum.