Andri Pogo - hin búrin mín

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

128l: 2x Walking Catfish, 5x Ropefish, 1x frontosa.
30l: Polypterus Senegalus
Þetta stendur samt í fyrirsögninni :)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ropefiskarnir eru í pössun og fara beint í 400l þegar þeir koma aftur :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Áður en þetta fer í vitleysu minni ég á að þetta er þráðurinn hans Andra.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

takk fyrir það Ásta :wink:

En annars eru tvær tegundir í malawi búrinu sem ég veit ekki nánari deili á, þannig að ég tók nokkrar myndir af þeim. Svo skoðaði ég hina frábæru síðu Fiskabúrs.is og held að ég hafi fundið réttar tegundir.

Fyrstir eru þessir, sem ég held að séu Saulosi, hvað haldið þið?
Image

Image
_____

Svo eru það þessir, sem ég held að séu Pseudotropheus flavus.
Sýnist þetta vera sama tegund en keypti þá þó ekki á sama tíma, þeir eru amk að slá sér eitthvað saman. Þeir hafa alltaf verið mjög litdaufir, líklega vegna Afra & Demansoni karlanna sem eru í flottum litum?
En þegar ég fór að horfa á karlinn hrista sig varð hann ansi flottur.

Karlinn:
Image

léleg mynd en hérna sjást litirnir betur:
Image

og kerla:
Image
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Efstu gætu verið saulosi en líka ungir johannii.
Miðjan er örugglega flavus en kerlan neðs er líklega afra, gæti verið kerla þess sem sést í bakgrunninum á efstu myndinni.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ok takk fyrir það, ég keypti neðstu kerluna einmitt í von um að það væri Afra kerla :)

Er það ekki annars þannig með malawi að karlar eru litmeiri? Væri eitthvað sem mælti gegn því að vera að mestu eða alveg með karla?
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er eimmitt sniðugt að vera bara með karla, þá er búrið litmeira og oftast friðsamara.
Ef þú ert með nokkrar kerlur með þá er oft tómt vesen.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Tók efsta rekkabúrið aðeins í gegn í dag, bætti við hellingsmöl og plantaði svolítið.
Bætti við langtíma plöntunæringu sem misheppnaðist hrikalega, maður á að setja þessar töflur undir mölina en þegar ég gerði það og hellti mölinni ofaná (enn með smá vatn í búrinu) leystust gróðurtöflurnar upp og búrið var brúnt og er enn gruggugt og brúnt duft yfir öllu :?
Þetta á s.s. að gera áður en maður setur vatn í búrið...

Færði nálafiskinn og hujeturnar í 720L búrið til reynslu og allt í góðu með það.
Chönnurnar voru nefnilega búnar að húka í felum síðan þær komu í búrið en eftir að ég færði hina í 720L fóru þær strax að synda um allt.
Náði mynd af annari þeirra:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

tvö video af salamöndrunni síðan um daginn

Hérna er hún að sækja sér loft gegnum nasirnar:
Image

Og hérna að smakka froskinn sem ég gaf henni um daginn, froskurinn slapp í lokin og drapst nokkrum mínútum seinna vegna meiðsla :?
Ekki fyrir viðkvæma:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Magnað að sjá hana svolgra loftið.

Hefur þú prófað að láta hana bíta þig? Svona rétt til að finna hverst fast hún getur :P
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jæja, it's official, þetta er hundljótt helvítis kvikindi :D
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Ásta wrote:Magnað að sjá hana svolgra loftið.

Hefur þú prófað að láta hana bíta þig? Svona rétt til að finna hverst fast hún getur :P
nei reyndar ekki, en mér heyrst þú vera spennt fyrir því þannig ég ætla að bjóða þér að láta hendina hjá henni :)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hehe, sama og þegið :wink:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er víst ekkert grín að vera bitinn af henni. Hún er með beittar tennur og getur bitið illa.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hvaða tegund af chönnu er á myndinni :?:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:Hvaða tegund af chönnu er á myndinni :?:
Parachanna Obscura.

Kemur fram annarsstaðar í þræðinum líka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

það bættust við þrjár eins chönnur í dag og voru þær settar með hinum chönnunum..
þegar ég átti leið framhjá ganginum í dag þá lá ein channan á gólfinu..ég var ansi lengi að fatta að þetta væri channan..því dóttirin öskraði mamma það er kúkur á gólfinu-leit þannig út reyndar.
en channan var enn lifandi og fór aftur í búrið sitt..magnað hvað þessir fiskar reyna að sleppa :D það var smá rifa á búrinu..
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

:lol: :lol: Þú hefur haldið í byrjun að prinsessan hafi lætt einum út..

Gott að þér tókst að bjarga skepnunni. Fer ekki að verða svolítið crowded í búrinu?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hehe nei ætli þær hafi ekki haldið að um kanínukúk væri að ræða :P

en búrið er nú barasta hálftómt, állinn er í mölinni og lætur ekki sjá sig, fiðrildafiskurinn og upsidedown synodontisarnir hreyfa sig ekki og chönnurnar eru bara pinkulítil grey enn sem komið er :)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

5 chönnur er ansi ríflegt í þetta búr.. Sérstaklega þegar þær fara að drepa hvor aðra, sem gerist um leið og ein vex aðeins meira en hinar :) Hvar fenguði þær annars og á hvað?

Ég átti obscuruna sem var einusinni í fiskabúr, gummi var bara að "passa" hana fyrir mig á meðan ég bjó í danmörku :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þetta búr er ekki ekki einu sinni nóg fyrir eina, þær fá stærra búr þegar þörf er á :)
Ég ákvað að prófa fimm til að ath hvort ég fái par, ef svo er, drepur parið líklega hina þegar að hrygningu kemur.
Það verður þó ekki nærri strax því þær fara ekki að hrygna fyrr en við um 25cm stærð.
En jú svo er auðvitað hættan á að þetta endi sem ein, en það verður bara að koma í ljós, stundum er hægt að hafa nokkrar svona saman.
Þessar komu úr Dýraríkinu og kostuðu klink, tók 6 samtals en ein var líklegast étin af nálafiskinum/hujetum áður en ég færði þá, gæti þó hafa sloppið og leynist einhverstaðar undir rekkanum.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Eru til einhverjar myndir af þinni sem var í Fiskabúr Keli ?
Gummi sagði mér frá henni en ég sá hana aldrei þar.
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Image
http://fiskabur.is/myndir_vefur/verslun ... _grein.htm

Þetta var helvíti skemmtileg skepna, blés sig út og stangaði glerið ef hún var í fúlu skapi.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Vargur wrote:Þetta var helvíti skemmtileg skepna, blés sig út og stangaði glerið ef hún var í fúlu skapi.
Þegar ég var með hana þá prófaði ég einusinni að setja gullfisk ofaná glerið sem var ofaná búrinu... Channana gjörsamlega trylltist og stökk á glerið og allan fjandann :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já þetta eru greinilega þrælskemmtileg kvikindi :)

Image

Image


og salamandran var hress áðan:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Ekki byrjar sambúðin vel hjá þeim litlu :o
sá þetta í morgun þegar ég vaknaði, sem betur fer slapp sú stærri lifandi frá þessu, hin var ekki svo heppin.

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Æ, æ, ekki gott ..... en ferlega flottar myndir samt.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

gott að hafa þá alltaf feita svo snona skéi ekki.ég gerði það allavega
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Andri Pogo wrote:Ekki byrjar sambúðin vel hjá þeim litlu :o
sá þetta í morgun þegar ég vaknaði, sem betur fer slapp sú stærri lifandi frá þessu, hin var ekki svo heppin.

I hate to say I told you so... But I did :D
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hehe já það er víst :mrgreen:
-Andri
695-4495

Image
Post Reply