Búrið hennar Rós / jíbbí jeij, loksins

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Búrið hennar Rós / jíbbí jeij, loksins

Post by Rós »

Daginn verið fólkið.

Í gær keyptum við 3 nýja á heimilið, sem sagt 3 gúbbý fiska, sem ég sýndi myndband af á gotfiskum þar sem einn dó bara næstum í beinni.
En ég fór í dag og fékk aðra í staðinn fyrir hana og sá þarna risa kuðungasnigil, eða sem sagt eplasnigil. Og við bara nældum okkur í han líka.
Tók mun lengri tíma í dag að setja fiskinn ofan í bara til að vera alveg viss um að hún þyldi vatnið og gerði bara eins með snigilinn, sem virtist bara fíla sig í pokanum.
Eina sem ég veit um þennan snigil er að hann þrífur búrið.. fékk ekki meir en það. Og ég spurði einni hvað hann borðaði, bara það sem hann finnur eða er eitthvað spes sem hann vill?
ekki fékk ég neitt svalandi svar þar sem aðilinn sagði í öðru hvoru orði "ekki viss EN" lýst aldrei vel á þannig starfsmenn.
En snigillinn virtist lítast vel á búrið í fyrstu en svo bara kemst hann ekki upp glerið. endaði með því að hann fór út í eitt hornið í fílu. Bara hreyfir sig ekki, hélt í smá stund að hann væri dauður og potaði í hann og hann er á lífi... veit eitthver hvað skildi vera að? Hann er frekar stór. Er að fara að setja kartöflu ofan í um leið og hún er tilbúin, kannski hressist hann við það.
Skilst á sníkjudýrasniglunum að þeim finnst það gott...veit ekki með þennan epla snigil.

Ef það er eitthvað gott að vita um hann þá myndi ég gjarnan fá að vita það.

Btw, gúbbí karlinn og kerlingin sem komu í gær líða vel, karlinn reynir við allt sem hreyfist og gamli karlinn alveg sama um það, og nýja kerlingin er voða mikið í ræktinni(synda á móti dælunni) og önnur gamla kerlingin er eitthvað smá abbó út í hana, en er farin að slaka á. Nýjast gúbbý kerlingin sem kom klukkan 15: something líður bara mjög vel, og er rosalega frek hehe, alveg veit hvernig hún á að hegða sér þarna.

Já og eitt sem ég vildi spyrja um hana, við völdum hana með voða stórann sporð, dökkblár með aðeins ljósari bláann á sporðinum, svo þegar við vorum á leiðinni heim og loks komin ofan í búrið þá var hún rosalega stressuð... ég efast þetta en ætla samt að spyrja... ekki getur liturinn fölnað á þessum tíma? Finnst sporðurinn bara ekki með eins sterkann lit, karlinn minn segir að ljósið sé bara að þessu... hvað finnst ykkur.

(kræst hvað ég spyr alltaf að miklu :oops: )
Last edited by Rós on 12 Mar 2008, 13:58, edited 14 times in total.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Eplasnigillinn étur bara það sem til fellur og dauðir fiskar eru ofarlega á matseðlinum. Þú getur sett smá fiskbita í búrið næst þegar þú ert með soðningu gæskan.

Það gæti verið gott fyrir þig að hafa einn sér þráð fyrir búrið þitt, bæði til að spyrja í, birta myndir og segja frá.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eplasniglar éta það sem til fellur, þörung og matarleyfar og ef þú ert bara með 1 stk þarf ekkert að gefa þeim sérstaklega. Annars eru fiskbitar, rækjur, botntöflur, gúrka osf. það sem þeir éta.

Það er algengt að fiskar missi litinn þegar þeir stressast, liturinn verður eðlilegur þegar þeir róast.
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Það gæti verið gott fyrir þig að hafa einn sér þráð fyrir búrið þitt, bæði til að spyrja í, birta myndir og segja frá.
Mig grunaði að það væri þannig vinna inn á þessari síðu :wink:


En ég fylgist þá bara með kerlingunni, vona að hún fái litinn aftur.
Setti litla kartöflu og splitaði í tvennt og setti ofan í, fiskarnir eru í himnaríki akkurat núna. Var alltaf planið að setja þetta ofan í til að ná þessum sniglum sem eiga ekkert að vera þarna.
En heyriði sko þessi snigill er í fínustu hehe, bara aldrei átt eplasnígil og gott að vita eitthvað um greyið, ein ryksugan er eitthvað að baða greyið og snígillinn snéri sér í burtu frá kartöflunni og farin að skoða sig um.

En vitið eitthvað afhverju hún kemst ekki á glerið? hún var efst uppi á glerinu í dýrabúðinni þannig að hún á alveg geta haldið sér?

Ætla að fara taka video um leið og hún er full af batterí og monta mig smá.


Finnst alveg ótrúlegt að þegar ég var unglingur og upp að 20 var ég með fiska, gullfiska en hafði ekkert rosa mikinn áhuga, stundum með gúbbí, en var bara með þetta þarna, svo gaf ég frænku minni fiskana því ég fékk bara nóg, svo allt í einu spratt þessi áhugi hjá mér.

Er bara næstum hætt að horfa á snjónvarpið, pæli svo mikið í fiskunum!! :roll:
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

já bíddu nú við, dauðir fiskar... þannig að ef fiskur deyr, bara leyfa eplinu að éta það?? skiptir mig engu máli svo sem. En er það þá ekki í lagi? Nema kannski ef fiskurinn er huge, en stærðstu fiskarnir eru auðvitað gúbbíarnir.


Og vil líka spyrja um Fiðrildafisk sem ég uppgötvaði í gær.


Geta þeir verið með gúbbí? og hinum fiskunum sem ég á, neon og svona... langar í þannig í sumar í stærra búrið ef þeir eru friðsamir.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Snigillin kemst örugglega alveg upp á glerið, hann hefur sennilega bara engan áhuga á að fara þangað núna. :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Rós wrote:Og vil líka spyrja um Fiðrildafisk sem ég uppgötvaði í gær.
Er þetta afrískur fiðrildafiskur sem er við yfirborðið eða fiðrildasíkliða?
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Sem eru við yfirborðið, ótrúlega flottir að mínu mati, karlinn hélt að þeir væru bara á hvolfi jafnvel bara dauðir :P

Mig grunar að þeir meiga ekki vera hjá fiskunum mínum því þeir eru í búri við hliðina á óskörum og fiska sem ekki er beint hægt að hafa hjá öðrum fiskum. Ekki í sama búri, bara hliðina.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þeir éta minni fiska og er ótrúlega stór á þeim kjafturinn.
Þá geta þeir líka nartað í ugga og sporða á öðrum fiskum.
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

oooh auðvitað.

Jæja þá fari þeir af óskalistanum mínum.


Hef svo sem áhuga á fleiri fiskategundum þannig að þetta er ekki svo mikill missir :)

Gólar karlinn "PÍRANA"....hann er ágætur þessi maður minn.


Hlakka bara svo óendalega til að fá þetta hornbúr, verð bara að bíða þar til í sumar. Wish I didn't have to :panna:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Pirana er bara fyrir börn. :D
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

hahahaha "sooo? My inner child needs entertainment"

hahaha djöfull fannst mér þetta fyndið. :lol:
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Jæja smá myndband af búrinu mínu... held ég hafi gert þetta rétt með hvernig ég setti það hér inn.

Image
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

http://brs.blog.is/blog/rosin/entry/426957

:) þurftir að gera url en ekki img :)
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

nei oh auðvitað gerði ég þetta ekki rétt... oooh þarf að læra þetta betur

Let's see...

http://brs.blog.is/blog/rosin/entry/426957/
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Takk Inga Þóran...fattaði það þarna á endanum :oops: þetta kemur allt saman


En segið mér hvað ykkur finnst, ég er rosalega hrifin af gúbbíkörlunum, sérstaklega þessum nýja sem er með dökka sporðinn.. Verst ég get ekki tekið svona flottar myndir eins og svo margir hérna inni, þá gæti ég sýnt ykkur þau betur...einn daginn...einn daginn 8)
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Jæja ég ætlaði að vera rosa flott í þessu eins og þið, að taka myndir af búrinu og sýna breytingar.... en já..ég er svo mikill kjáni eitthvað.

Jæja í keypti þó nýjann gróður í dag því gúbbýarnir voru að éta allan gróður.
Er samt að gefa þeim grænan mat þannig að þetta re bara eitthvað bull í einum gúbbýfisk.

en ég ætla að sýna myndirnir og þið skiljið afhverju ég er kjáni..

Image

Þarna ætti að sjást hjá rótinni gamli gróðurinn, úttættur og ljótur, sést ekki rosa vel ég veit, kann ekkert að taka myndir nema af fólki

Image

Þarna er enginn gróður...en kjáninn ég... það er ALVEG eins mynd af sama gróðrinum fyrir aftan þannig að það sést ekkert að það er "enginn" gróður. oooh hvað ég er vitlaus!!

Image

Þarna er nýji gróðurinn, ekki eins feimilslegur og líka með þykkari blöð :)
Ég er allavega mjög ánægð :D


btw...ekki viss um að þessar myndir hafa komið inn...þarf að læra á þetta allt saman betur.
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

btw. í seinustu myndinni sést rosa vel í karlgúbbíinn með flotta sporðinn...minnir mig FIRE hehe hanner svo flottur... what do you think??
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þetta er allt i lagi þvi ef maður klikkar á myndirnar þá verða þær stærri.
Flott búr :-)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Takk. ég er alveg rosalega ánægð með þetta búr.

Var með búr sem unglingur og fannst ömurlegt hvað það var alltaf skítugt og leiðinlegt. núna hugsa ég svo vel um þetta búr að ég elska það barasta.
Og Alltaf að finna nýjar leiðir til að gera það flottara... Sem mun vera það í sumar með einn Bardagafisk í!!


jiiii hvað ég er að deyja...ooooh ég veit ég segi þetta í hverju legg sem ég set inn , en halló hvað mér hlakkar til.

fæ hornbúr, allir fiskar þangað og þetta eina búra með rótinni og öllu semer í með einn fisk. eitthvern flottann bardagafisk, hlakka til að finna The Perfect One :lol:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú talar um að þig langi í stærra búr, er ekki góð byrjun að byrja á að fylla þetta af vatni ? :)
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Ef ég fylli búrið, getur þá ekki peran sprungið?
Dælan nær ekki að láta vatnið gára almennilega er það?
Og má hitarinn fara lengra í kaf heldur en línan á hitaranum segir til um?

Það er ástæðan fyrir að ég fylli ekki :wink:
en ef ekkert kemur fyrir peruna, mælirinn má fara í kaf, og dælan nær að láta vatnið gára.
Þá skal ég alveg setja meira vatn. Yrði líka þá mun flottara og smekklegra. :-)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú hækkar dæluna og hitarann, og svo lengi sem peran sé ekki í vatninu, þá er það í lagi.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

er ekki þessi lína á hitaranum lágmarks vatnshæð? s.s. vatnið má vel fara yfir allan hitarann en ekki undir línuna.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Andri Pogo wrote:er ekki þessi lína á hitaranum lágmarks vatnshæð? s.s. vatnið má vel fara yfir allan hitarann en ekki undir línuna.
Það eru reyndar til hitarar sem má ekki setja í bólakaf... Þeir eru reyndar orðnir eitthvað sjaldséðir núna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Þetta er nú glærnýr hitari sem fylgdi búrinu, hef séð myndir hérna á þessari síðu þar sem hitarinn fer í bólakaf.
en ekki verið viss hvort það megi þar sem það er eitthver viðmiðunarlína.
en dælan er svo stór að hún kemst ekki mikið hærri en hún er núna.
en ég skal samt prófa þetta þegar ég kem heim eftir vinnu, verður gaman að sjá hvað er hægt að gera.

Alltaf gaman að læra meira af ykkur fiskafólki :fiskur:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er með svona hitara og hann er á kafi, virkar fínt.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég á svona hitara sem að er á bólakafi og alltílagi með það :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

línan segir til um að hann verði að vera amk þetta mikið í vatni. Bólakaf er í lagi :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

núúú í bólakaf, þá hef ég eitthvað lesið leiðbeiningarnar vitlaust. :oops:

Sýni ykkur mynd í kvöld hvað ég er dugleg að reyna að hlusta á ykkur :lol:
Post Reply