***Búrin mín - BRYNJA ***

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Vá hvað þessi Nigaraguense er flottur hjá þér í "eftir" myndinni. Og ótrúlega falleg myndin sjálf ;)
jæajæa
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

já ég vona að hann verði alltaf svona sterkur í litum.. hann er alveg mín uppáhalds síkliða hvað útlitið varðar.. hann er lika voða skemmtilegur, alls ekki feiminn.

skelli inn fleiri myndum af honum til gamans :)

Image
Image
Image

kyssulegur :)
Image
big red
Posts: 29
Joined: 08 Feb 2008, 22:38

Post by big red »

User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Flottur gyllti liturinn í honum :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Svaðalega er hann flottur.

.... og ég held það séu til fleiri svona glersugur í Fiskó :D Hann er alveg hættur að vera feiminn.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þetta er náttúrulega bara geggjað búr :D
Til hamingju með Salvini :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Síkliðan wrote:Þetta er náttúrulega bara geggjað búr :D
Til hamingju með Salvini :D
Takk takk.. Þetta er orðið svolítið "fullorðins" eftir að við losuðum okkur við gullfiskana. :wink:
Ásta wrote:Svaðalega er hann flottur.

.... og ég held það séu til fleiri svona glersugur í Fiskó :D Hann er alveg hættur að vera feiminn.
Já það er allavega til ein.. en er hún ekki rándýr..? ég þorði ekki að spyrja um verð :shock:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Fullt verð er 14.800.- en ef þú brosir blítt og lætur sjást í brjóstaskoruna hljóta þeir að gefa 10% afslátt :lol:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ásta prakkari!.. er það svona sem þú færð afslætti? :lol:
En þetta er rétt, maður á að flagga því sem maður hefur til að komast áfram í lífinu... hahahahah :P
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Þetta er að verða svaðalega glæsilegt hjá þér - ykkur - og alltaf gaman þegar maður er orðinn sáttur.
Þá er það bara þolinmæðin sem dugar á restina :wink:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Takk takk Jeg :)
Já þetta er orðið svo spennandi.. verst að mig langar í annað 400L... :?


Það er allt gott að frétta af búrunum 2 hjá okkur...

Síðasta talning á Convictseiðunum í 400L var um 15 og þau eru orðin nokkuð stór og "mannaleg" :)

Við fjölskyldan vorum á flandri í dag og þegar við komum heim þá blasti við okkur ný hrúga af seiðum, Convictarnir röndóttu í litla búrinu voru búin að hrygna þessu svaka stóði af seiðum.. Svo að það er nóg að gera í barna uppeldinu á þessu heimili.

Ég var að velta einu fyrir mér..
Það var einhver að tala um að Convictar þyrftu að hafa óvini/aðra fiska til að vera gott par og góðir foreldrar..
Haldiði að það gangi ekki upp hjá mér að vera með 2 pör af Convictum í litla búrinu og enga aðra fiska?
Myndi samt sennilega hafa Ancistruna og Bótíuna áfram..

Ég vil taka það fram að ég vil fá ráð frá fólkinu sem er með reynslu af þessum gaurum, sorry hvað ég er leiðinleg. :)
big red
Posts: 29
Joined: 08 Feb 2008, 22:38

Post by big red »

jú það ætti að gánga bara gera bæli fyrir pörin í sitt hvorn endan og hafa eithvað stein eða rót í miðjuni til að skipta
góð og ekki góð pör þeir eru kallaðir rottur fiska heimsins myndu hrigna í kaffi bolla
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Aðeins að uppdate-a talninguna..
hin var ekki alveg rétt.

íbúar 400 lítra búrsins:

Síkliðurnar:
1 hvítur Convict kk + 1 röndótt Convict kvk
Þau eru mjög virk í hrigningum og eru með lítinn hóp seiða núna.
4 Oscar
2 Geophagus brasiliensis / Brassi,
1 Jack Dempsey,
2 Temporalis / súkkulaði síkliður
2 Red Terror
1 Salvini
1 Nigaraguense

Svo hinir fiskarnir:
1 synodontus,
1 Gibbi,
1 Ancistra


125 lítrarnir:

2 Convict pör í sitthvorum litnum,
röndótta parið er búið að hrygna helling,
2 Severum
4 Nigaraguense
1 Jack Dempsey
4 Herotilapia multispinosa / regnbogasíkliður

Svo eru tvær vinnukonur
1 Botia og 1 Ancistra
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Var að tékka á því hverslags hetja ég er og það kom í ljós að ég er...
Supergirl
Image

Lean, muscular and feminine.
Honest and a defender of the innocent.


Alveg hreint lýsing á mér! Sérstakega þetta með sakleysið!!!! :)
Sjáið bara stúlkukindina.. Sakleysið uppmálað!!!!
Image


En að fiskunum...
Er búin að vera að dunda mér við myndatökur síðustu daga... fer að henda þeim hérna inn.

Ég er að spá í að fara að færa eitthvað af fiskum úr litla búrinu í stóra tankinn.. held að nokkrir þeirra séu orðinir stærri en stærstu munnarnir. :shock:


Kv. Brynja Super-innosent-girl
:wink:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

[quote="Brynja]Sakleysið uppmálað!!!![/quote]
Over my dead body :roll:
Einhverntímann gerði ég þetta próf og endaði sem Cat Women... purrrrr
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ásta... þar er þér rétt lýst.. algjör villiköttur! grrrr...

En ég saklausa Súperstelpan tók mig til og færði næstum alla aðra fiska en Convict parið úr 125L búrinu yfir í djúpu laugina.

Þetta er eftr í 125L:
-Ancistra
-Bótía
-Convictparið hrygnandi, (herra Hitler og hans frú )
-Ræfils Jack Dempsey
( er að vona að þau láti hann í friði og hætti að eltast við hann )
Ég ætla að sjá hvernig hann plummar sig þarna með þeim í smá stund.. sé svo hvað ég geri með hann,
Hvort ég gefi hann eða hendi honum í hitt líka og sé hvort hann bjargar sér þar.

Convict parið í 125L afrekaði það að drepa hvíta Convict karlinn og á ég þá orðið staka litla hvíta kerlu sem er komin yfir í 400L.
Mér finnst eins og KK í stóra búrinu hafi litið smá hýru auga til hennar litlu minnar... kerlan hans eltist við hana litlu og skammar en KK er bara svona að skoða hana og syndir fallega á eftir henni.
Æskudýrkun sýnist mér á þeim bænum.
Sjáum hvað getist.. kannski er kk alveg til í að yngja aðeins upp og skila þessari gömlu með seiðin.
össs össs... :?

Þannig að staða á 400L er svona..

Síkliðurnar:
1 hvítur Convict kk + 1 röndótt Convict kvk með nokkur seiði
+ 1 stök hvít kvk (viðhald hvíta karlsins)
4 Oscar
2 Geophagus brasiliensis / Brassi,
1 Jack Dempsey,
2 Temporalis / súkkulaði síkliður
2 Red Terror
1 Salvini
1 stór + 4 litlir Nigaraguense
1 stór + 2 litlir Severum
4 Herotilapia multispinosa / regnbogasíkliður

Hinir fiskarnir:
1 synodontus,
1 Gibbi,
1 Ancistra

ofsalega langar mig í annað 400L til að geta skipt liðinu í 2 góða hópa... en kannski að ég kaupi svoleiðis þegar ég verð stór.. :lol:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Alltaf langar manni í annað búr :o sama hvursu stórt og mikið maður hefur.

Það verður fróðlegt að sjá hvort nokkur verði étinn í 400 lítrunum.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

já það er spennandi... nokkrir nigaraguense gætu alveg passað upp í óskarana.. en þeir eru svo seinfærir greyjin að ég efst að þeir nái þeim stuttu.

EN mér finnst óneytanlega búrið fallegra með svona mörgum fiskum.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Langaði að halda smá tölu um hverja tegund fyrir sig sem ég á..
og langar að byrja á Red Terror

Ég lít á þennan þráð minn sem hálfgerða fiskadagbók/blogg..
Finnst svo gott að geta skoðað aftur í tíman hvað og hvenær
hvað gerist í búrunum. Einnig langar mig að afla mér upplýsinga
sem mér finnst nytsamlegar fyrir mig og aðra sem hafa áhuga og
setja þær hérna inn.

RED TERROR

Image
Image

latnesk nöfn:Heros Festae, Nandopis Festae, Cichlasoma Festae, Amphilophus Festae
nöfn í daglegu tali:Red Terror, Festa's Cichlid

Uppruni: Mið Ameríka

Stærð:
í náttúrunni: kk=50cm kvk=30cm,
í búrum bæði kyn um 38cm

vatnsskilyrði: 25 - 29gráður og pH: 6 - 8

Það sem mér finnst skemmtilegt við þessa fiska er að þeir eru aldrei eins á litinn, þeir virðast breita lit eftir skapi.
Stundum alveg brúnir, stundum marglitir stundum alveg röndóttir svartir og appelsínugulir.
Þeir eru ofsalega skemmtilegir og friðsamir, allavega í mínu búri.

myndir af mínum ungu fiskum, um 7cm.
Image
Image
Image

Til að sjá fleiri myndir af mínum fiskum þá skoðið þið þessa síðu...
http://fiskar.barnaland.is/album/589498

Upplýsingar eru teknar af þessari síðu:
http://www.worldcichlids.com/fotm/novem ... error.html
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Litli Jack Dempseyinn er kominn í djúpulaugina... :D

Hann fékk ekki frið í grunnu lauginni svo að ég færði hann bara, hann getur falið sig þar og jafnað sig.

Svo að hann er hættur við að leita sér að öðru heimili.
Sorry Jakob!

hérna var hann nýkominn í grunnu.. á engar myndir af honum nýlega.
Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég er bara mjög ánægður að hann sé lifandi :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Já ég veit ekki betur.. :)
Hann er allavega búinn að finna sér ofsalega góðan felustað í djúpu...
Hann á eftir að spjara sig litla hreistrið mitt :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

:góður:
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Það fór því miður illa fyrir litla greyjinu... hann endaði sem laugardagsnammi.
Image
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

obbosí :?
er að fikta mig áfram;)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Mér datt það í hug :roll:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ég vildi frekar setja hann þarna ofaní en að vera að svekkja einhvern með því að gefa hann, láta fólk keyra bæjinn endilangann eftir einum fiski.. sem myndi enda dauður.
Bensín/olía er ekki gefins í dag..

Jack Sparrow var orðin ansi slappur... og ég er ekki viss um að hann hefði þolað fluttning.

Þetta var fínt laugardagsnammi fyrir Pál Oscar :wink:

Þýðir ekkert að grenja þetta!
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Börnin mín stór og smá.... í 400L


Image

Image

Image
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

og smá hópmyndir... ég bankaði í lokið og þá koma allir með dillandi sporða og heimta mat.. svo sætir þessir kjánar!

Image

Image

Image

Image

Image

Image
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

smá meira fyrst ég er byrjuð..

langaði að sýna ykkur hvað þessar bollur hafa stækkað á ekki löngum tíma!!

FYRIR...
Image
Image

EFTIR....

Image
Image
Post Reply