Nýtt búr

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sven er ekkert fyrir flottar plöntur, hann vill helst druslulegustu plönturnar í búðinni eða þá bara 2 cm afleggjara. Svo breytir hann þessu í verðlaunaplöntur. :)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

hehe, alveg rétt, bestu kaupin eru í mestu druslunum :)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

jæja smá update, plönturnar taka mis vel við sér,
miðað við nýja vöxtinn á þessari plöntu, þá er þetta alls ekki Ludwigia repens eins og ég hélt í fyrstu, mögulega einhver Hygrophila tegund.
Image

Image

óþekkta plantan vinstra megin hefur ekki mikið breyst, nema e.t.v. safnað smá þörungi, þessi hægra megin er ný, en líka óþekkt.
Image

Svo nældi ég mér í 2 zebra nerite snigla, til að auka nú smá við fánuna í búrinu. Spurning hvað væntanlegar YoYo bótíur gera við þá? Ætli þær éti þá?
Image
Tommi
Posts: 50
Joined: 16 May 2007, 10:16
Location: Grindavík

Post by Tommi »

Þetta lofar góðu. Það verður gaman að fylgjast með þessu hjá þér.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Gaman að sjá þig hér Tommi, ertu annars með gróurbúr í gangi ennþá?
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, það hlaut að koma að því, orðinn var við þörung, ekki skrýtið með rúmlega 100W lýsingu í gangi yfir búrinu, og alls ekki nóg ag plöntum til að halda í við þörunginn. Er þó lítið farinn að setja næringu í búrið, aðallega smá kalk, matarsóta og epsom salt til að reyna að ná hörkunni eitthvað smá upp í vatninu og hækka sýrustigið eitthvað smá, sem er 5,9 núna, aðeins of lágt.
Ég flýtti því kaupunum á SAE og náði í 5 slíka, pínulitla og fjöruga.
tók í leiðinni eitt búnt af Egeriu densu, sem ég ætla þó ekki að hafa í búrinu nema þangað til að allur þörungavandi verður úr sögunnu.
SAE-arnir sjást þarna á litlu rótinnu, vel hreyfðir eins og alltaf.

Image

Á sama tíma var ég svo heppinn að finna Ceratophyllum demersum sem er hin besta planta til að berjast við þörung og með fallegri plöntum til þess brúks, hún fær örugglega að lifa lengur í búrinu en egerian.

Image

Setti svo þettar merkilegu spírur í mölina hjá mér sem hafði sprottið upp út mölinni eftir að hún var í geymslu á meðan ég flutti, þegar ég opnaði balann sem sandurinn var í, og skildi hann eftir opinn í smá tíma, þá komu þessar spírur upp úr. Ég setti þær í vatn og leyfði þeim að teygja aðiens úr sér, og skellti þeim í búrið núna til að sjá hvað þær gera. Hef ekki hugmynd um hvað þetta er. Áður en ég tók búrið niður var ég samt með mikið af glossostigmu sem er ekki ólík þessum gaurum, mér þykir þó ólíklegt að þetta sé glossostigma, þar sem að það er einstaklega viðkvæm planta, en það væri þó óvæntur glaðningur.

Image

Munduð þið halda að YoYo bótíur muni éta zebra neríturnar? Höndla þeir svo stóra snigla?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sven wrote:Munduð þið halda að YoYo bótíur muni éta zebra neríturnar? Höndla þeir svo stóra snigla?
Mér finnst það afar líklegt, já :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

hvar náðir þú þér í SAE?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Dýragarðurinn á SAE og Otoa
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
barri
Posts: 91
Joined: 07 Jan 2007, 15:10
Location: Þorlákshöfn

Post by barri »

Þarf að kíkja þangað.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gaman að þessum spírum, fínt að fá svona óvæntan glaðning bara úr rótarleifum í mölinni.
Tommi
Posts: 50
Joined: 16 May 2007, 10:16
Location: Grindavík

Post by Tommi »

Sven wrote:Gaman að sjá þig hér Tommi, ertu annars með gróurbúr í gangi ennþá?
Já sömuleiðs. Ég er ennþá með sama 240L búrið. Það er orðið ansi langt síðan ég setti myndir af því á netið síðast. Ég þarf að fara að henda inn nokkrum myndum.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þetta lítur nú bara út fyrir að vera venjulegur arfi þetta dæmi sem kom upp úr balanum :lol:
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég allavegana er nokkuð viss um að þetta sé því miður ekki glossostigma, örugglega einhver arfi sem drepst fljótlega.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Nema þetta sé stökkbreyttur vatna-arfi :wink: þá ertu komin með illgresi í gróðurbúrið þitt :lol:
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Það er nú þegar illgresi í búrinu, Egeria densa!
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

"epsom salt til að reyna að ná hörkunni eitthvað smá upp"

hvar kaupir þú svona salt og hvað mikið magn notar þú ? Ég er með aðeins vandræði með hörkunni i vatninu, sem mér langar að hæka út fra CO2 áburðirgjöf.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Sæll Stephan, ég hef pantað þetta að utan, epsom salt er í raun bara magnesíum súlfat (MgSO4)
til að hækka hörkuna, þarf að bæta við alla þá þætti sem byggja upp hörku, líka gott að bæta við smá kalki (sem er nær ekkert af í vatni á Íslandi) og líka matarsóta.
Í 210 búrið mitt nota ég (þegar það er fullplantað) á viku hverri við 50% vatnsskipti til að hækka hörkuna á vatninu.

1 1/2 tsk Cacl2 (kalk)
1 tsk matarsóda
1 tsk epsom salt

Ég hef pantað allar næringarvörurnar sem ég nota af netinu þar sem öll þessi efnir eru margfalt dýrari hérlendis. T.d kostar 250gr af KNO3 1500 kall í skólavörubúðinni, efni sem kostar um 100 kall erlendis.
Hér er síðan sem ég hef pantað af
http://www.aquariumfertilizer.com/

Hér er linkur á síðu með upplýsingar um EI (estimative index) gróðurnæringarpælingar
http://www.barrreport.com/estimative-in ... -kits.html
Hér
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

takk fyrir svarið, láta koma það með næstu heimsókn frá sviss, end nov :D
Ég fann lika þetta með estimative index - for að google á þýska netinu og koma þar á mjög goða siða yfir fiskabúrplöntur og saman grein , bara i þyska :)
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Epsom salt fæst í 250 gr staukum í apótekum og 25 kg pokum í Garðheimum, kílóverðið í Garðheimum er ansi mikið hagstæðara. Það er svo hægt að nota Epsom salt í ýmislegt annað en fiskabúr t.d. er Epsomsalt aðal undirstaðan í baðsöltum fyrir mannfólk og gerir húðinni virkilega gott.
Hér má lesa sér til um undraefnið Epsom salt:
http://en.wikipedia.org/wiki/Magnesium_sulfate
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Flott, ég vil samt leggja áherslu á að það er alls ekki sniðugt að nota bara epsom salt til að hækka hörkuna og sleppa kalki. Þetta verður að haldast nokkurnveginn í hendur þar sem að það er mjög lítið kalk í vatninu hérlendis, Gh er að mestu samansett úr kalki, magnesíum og natríum. Kalkið stendur fyrir rúmlega 50% af hörkunni en magnesíum fyrir um 25% Því er ekki gott að hafa of mikið magnesíum (úr epsom) og of lítið af kalki.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, ég hef lent í nokkru basli með að leysa kolsýruna nógu vel upp í vatnið og er ekki að ná nógu háu koslýrustigi í vatnið. Ég þarf því að breyta reactornum smá til að koma í veg fyrir að það byggist upp co2 efst í honum sem dregur úr virkni reactorsins.

Image

Ég fer að fiffa þetta þegar ég fæ fiskadótsendinguna mína sem inniheldur m.a. slöngur á dæluna þannig að ég get tengt framhjá reactornum á meðan breytingum stendur.
Þangað til, nota ég krakkpípuna eins og ég kalla hana, hún leysir ágætlega upp co2 með því að brjóta loftbólurnar upp í ótal örfínar loftbólur sem leysast mun auðveldar upp í vatnið heldur en færri stærri loftbólur sem stíga mun hraðar til yfirborðsins.
Image

Af plöntum er það að frétta að Ceratophyllum-in vex alveg fáránlega hratt, eins og má sjá.
Image

Óþekktu plönturnar tvær eru farnar að taka við sér og vonandi styttist í að maður geti farið að sjá hvað þetta er. Sú sem er lengst til vinstri virðist hinsvegar vera dauð, allavegana hefur ekkert nýtt vaxið á henni.
Image

Yfirlit yfir búrið í lokin. Svo get ég vonandi losað mig við Egeriuna þegar pðlöntusendingin mín kemur, þá ætti að fara komast eitthvað jafnvægi á þetta. Get ég farið að gefa eitthvað af næringu, aukið ljósið og svo vonandi kolsýrumálin komin á hreint á sviðupuðum tíma.
Image
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Þær hafa tekið smá kipp hjá þér flestar plönturnar. Lítur bara helvíti
skemmtilega út. Held að flestum hafi dugað að sjá póstinn einu sinni samt :) hehe ;)
Tommi
Posts: 50
Joined: 16 May 2007, 10:16
Location: Grindavík

Post by Tommi »

Mér finnst uppröðunin á steinunum og rótunum vera flott hjá þér. Það verður gaman að sjá hvernig búrið lítur út þegar gróðurinn hefur vaxið meira.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

hehe, úbbs, kanski að vargurinn kippi þessu í liðinn, ég virðist ekki geta eytt öðrum póstinum út.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sven wrote:hehe, úbbs, kanski að vargurinn kippi þessu í liðinn, ég virðist ekki geta eytt öðrum póstinum út.
komið. vargur hvað? :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

takk, flott, það er líka miklu skemmtilegra að horfa á dönsku píuna hjá þér!
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

þetta litur helvitið flott út :)
Ertu lika með "kulum" i reaktorinn ?
Image
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Sven wrote:takk, flott, það er líka miklu skemmtilegra að horfa á dönsku píuna hjá þér!
Mér sýnist hún vera með enska fánann, sú danska :!:
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Ég veit svo sem ekkert um þessi CO2 kerfi. En á myndinni hjá þér Sven kemur vatn inn að ofan og fer út að neðan. Mér fyndist að vatnið ætti að fara inn að neðan og út að ofan, til þess að losna við uppsafnað CO2. Er það ekki möguleiki í þessu kerfi :?:
Post Reply