Page 31 of 32

Posted: 10 Dec 2009, 17:39
by Andri Pogo
mikill missir á mánudaginn... Tigerinn drapst :cry:
Hann fékk ljótt sár um helgina, gerði tvö stór vatnsskipti sunnudag og mánudag og saltaði en þetta hefur farið eitthvað illa með hann því hann drapst um kvöldið.

Image

Image

Image

Leiðinlegt að missa aðalfiskinn í búrinu en þá er spurning að nota tækifærið og breyta aðeins til, láta kannski albino pangasiusinn og chönnuna og bæta við haplochromis durgum með polypterusunum og clown knife

Posted: 10 Dec 2009, 17:55
by lilja karen
Samhryggist með missinn ! virkilega flottur fiskur! :? :)

Posted: 10 Dec 2009, 18:19
by Gudmundur
Þetta er eins og bitfar og hefði þetta verið á einhverjum öðrum fisk hefði ég haft þennan grunaðann

Posted: 10 Dec 2009, 18:38
by keli
Já ég er sammála, manni finnst líklegast að einhver annar fiskur hafi gert þetta.

Posted: 10 Dec 2009, 18:40
by Elma
Einmitt að hugsa það sama, lítur út eins og bitfar. Leiðinlegt að missa svona flottan fisk.

Posted: 10 Dec 2009, 18:50
by ulli
keli wrote:Já ég er sammála, manni finnst líklegast að einhver annar fiskur hafi gert þetta.
snakehead?

Posted: 10 Dec 2009, 19:12
by Guðjón B
þetta lítur út fyrr að vea frekar sárt (hafa fiska tilfinningar fyrir sársauka (jú er það ekki))

já og það hlítur líka að vera sárt fyrir þig að missa hann :(

Posted: 10 Dec 2009, 19:26
by Jakob
ulli wrote:
keli wrote:Já ég er sammála, manni finnst líklegast að einhver annar fiskur hafi gert þetta.
snakehead?
Leiðinlegt að heyra Andri.
Ég styð það sem aðrir segja, lítur út eins og bitfar og ég hefði chönnuna stórgrunaða.

Posted: 10 Dec 2009, 21:17
by Andri Pogo
Mikið rétt, channan hefur bitið hann, Polypterusarnir eru ekki í aðstöðu til að bíta hann svona ofanfrá en Channan er oft fyrir ofan Tigerinn.

Ekki að ástæðulausu sem það er ekki mælt með chönnum með öðrum fiskum en þessi tegund er nú samt í rólegri kantinum og hefur aldrei sýnt neina svona hegðun áður.

Posted: 10 Dec 2009, 22:17
by Gremlin
Leiðinlegt að heyra þetta enda var þetta stórfenglegur fiskur og fallegur.

Posted: 13 Dec 2009, 14:38
by Andri Pogo
eitthvað kannast ég við fyrstu myndina í þessari auglýsingu :mrgreen:

Image

Posted: 13 Dec 2009, 15:24
by Guðjón B
góður :D

Posted: 13 Dec 2009, 16:34
by Jakob
Ég tók eftir þessu áðan. Þú fékkst mitt atkvæði.

Posted: 13 Dec 2009, 18:17
by Gudmundur
Síkliðan wrote:Ég tók eftir þessu áðan. Þú fékkst mitt atkvæði.
Fannst þér hans mynd best eða var það íslendingurinn sem kaus ?

Posted: 13 Dec 2009, 18:37
by Jakob
Næst besta myndin fannst mér, bassarnir 2 að berjast um fæðuna fannst mér best, var með aðeins betri fókus t.d. en sjónarhornið ekki nógu gott svo að ég gaf Andra atkvæði.

Posted: 14 Dec 2009, 19:57
by Andri Pogo
Seinni endlicheri fór í búrið í fyrradag, ég var víst búinn að lofa að tæma grow-out búrið fyrir jól :)

sá er aðeins minni en þetta virðist ganga.

félagarnir:
Image


íbúalistinn í dag:
1x Pangasius hypothalamus Albino
1x Clown Knife / Chitala chitala
1x Channa Pulchra
2x Polypterus Palmas palmas
4x Polypterus Palmas polli
5x Polypterus Ornatipinnis
2x Polypterus Endlicheri endlicheri
1x Polypterus Bichir lapradei
1x Polypterus Retropinnis
1x Polypterus Delhezi
2x Polypterus Senegalus
6x Ropefish / Erpetoichthys calabaricus

hugsa að ég láti albino pangasiusinn og chönnuna ef rétt verð og heimili fæst *hinthint*
og prófi að setja nokkrar stórar malawi síkliður með Polypterus safninu, búrið er nefnilega ansi tómlegt að sjá þrátt fyrir fjölda fiska.

Posted: 15 Dec 2009, 02:17
by audun
er þetta ekki tryggingamál? þvílík leiðindi ég er einmitt að missa 30 cm óskar bara núna.

Posted: 23 Jan 2010, 18:49
by botnfiskurinn
Hvað er stæðsti polypterusinn orðinn stór hjá þér?

Posted: 23 Jan 2010, 22:52
by Andri Pogo
38-40cm og líka miklu þykkari en allir hinir.
ætli þeir sem á eftir koma séu ekki um og yfir 30cm

Posted: 24 Jan 2010, 00:57
by Andri Pogo
ákvað að smella nokkrum af þeim stóra að gamni, stálpaður Senegalus er þarna með til viðmiðunar

Image

fullvaxinn Senegalus að synda þarna hjá:
Image

Image

það er þó ekki eintóm sæla að hafa þá svona stóra, það hafa þrír litlir Polypterusar horfið á síðustu vikum, albino senegalus sem var að vísu full lítill og báðir Endlicheri en annar þeirra var orðinn jafnstór og senegalusinn á myndunum fyrir ofan og breiðari þannig að það kom mér mikið á óvart að hann hafi horfið en senegalusinn hefur verið þarna í marga mánuði óáreittur.

Posted: 24 Jan 2010, 01:39
by Jakob
Leiðinlegt með Endlicheri. Ef að þú verður hræddur um Retropinnis sendiru mér bara ep. :wink:

Posted: 24 Jan 2010, 13:02
by botnfiskurinn
Ég sem hélt að minn væri eitthvað að nálgast þinn, en hann er ekki nema 30cm :D

Posted: 24 Jan 2010, 22:59
by Andri Pogo
jæja alltof langt síðan ég fór í myndavélagírinn... tók nokkrar áðan þegar ég var að klára vatnsskipti, afsaka loftbólurnar sem fljóta um eins og ryk á sumum myndunum.
Allar myndir teknar án flass en ég skrúfaði T5 lýsinguna í botn fyrir myndatöku (er venjulega með lýsinguna á 30-40% styrk)

Retropinnis:
Image

Image

Malawi gaur sem ég fékk í Hobbyherbergi Vargs um helgina, veit ekki hvaða tegund þó, ætla að bæta við fleiri KK Malawi utaka:
Image

Stór Ornatipinnis, ekki sá stærsti þó:
Image

Image

8)
Image

Minnsti en elsti Ornatipinnis-inn minn, lenti í slysi þegar hann var pinkupons og hefur stækkað extrahægt síðan þá. Liturinn er líka frekar sérstakur miðað við venjulega:
Image

Image

Image

stóri:
Image

15cm Senegalus kk, kannski til sölu:
Image

Stærri Senegalus:
Image

og 30cm albino Pangasiusinn að lokum:
Image

Posted: 25 Jan 2010, 02:23
by Jakob
Æðislegar myndir eins og vanalega.
Mér finnst Retropinnis samt toppurinn í safninu hjá þér.
Er Lapradei ekkert að stækka hjá þér?

Posted: 25 Jan 2010, 09:36
by Andri Pogo
ekkert af viti nei, þeir geta farið að stækka svo löturhægt eftir að þeir ná t.d. 30cm

Posted: 28 Jan 2010, 18:17
by Andri Pogo
Delhezi alltaf flottur:
Image

Posted: 02 Feb 2010, 22:29
by Andri Pogo
ég hef verið að fækka aðeins í búrinu hjá mér og ástæðan fyrir því datt í hús í kvöld...

2 stk Polypterus Endlicheri Congicus, sem mig hefur langað í lengi, en þetta er stærsta Polypterus tegundin en villtir ná þeir allt að 100cm að lengd!
Þeir voru aðeins minni en ég hélt en sá minni mældist 32cm og sá stærri 35cm, þeir eru því ekki stærstu Polypterusarnir í búrinu að lengd en þykktin á þeim stærri er svakaleg! og þeir eiga nóg eftir..
Þeir ættu að ná 55-60cm í búrum og jafnvel meira ef eintökin og aðstæður eru góðar.

Tók auðvitað nokkrar myndir :oops:

Image

sá stærri:
Image

Image

Image

og sá minni:
Image

Image

og ein mynd af þeim stærri í búrinu, litlaus eftir flutningana:
Image

Posted: 02 Feb 2010, 22:57
by keli
Næs, hvar fékkstu þessa?

Posted: 02 Feb 2010, 23:14
by Andri Pogo
Þetta eru þeir sem Hlynur var með.

Posted: 02 Feb 2010, 23:34
by Jakob
Flottir!! :góður:
Hvernig eru kynin á þeim?