Er það bara ég....

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Er það bara ég....

Post by siggi86 »

eða er MIKLU minna að gerast á þessari síðu núna er hérna áður.... ég man að ef ég auglýsti eftir fisk gefins þá fékk ég oftast 100fiska.. núna fæ ég ekki einu sinni gúbbý... HVAÐ ER AÐ GERAST?
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

siggi86 wrote:eða er MIKLU minna að gerast á þessari síðu núna er hérna áður.... ég man að ef ég auglýsti eftir fisk gefins þá fékk ég oftast 100fiska.. núna fæ ég ekki einu sinni gúbbý... HVAÐ ER AÐ GERAST?
Byrjar bara hægt eftir sumarfríin.
Já þetta er SVAKALEGT að fólk skuli ekki hópast um þig til að gefa þér fiska :rofl:
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Alí.Kórall
Posts: 131
Joined: 02 Jul 2012, 16:35
Location: Garðabær

Re: Er það bara ég....

Post by Alí.Kórall »

pínu hægt.
mbkv,
Brynjólfur
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Sibbi wrote:
siggi86 wrote:eða er MIKLU minna að gerast á þessari síðu núna er hérna áður.... ég man að ef ég auglýsti eftir fisk gefins þá fékk ég oftast 100fiska.. núna fæ ég ekki einu sinni gúbbý... HVAÐ ER AÐ GERAST?
Já þetta er SVAKALEGT að fólk skuli ekki hópast um þig til að gefa þér fiska :rofl:

HAHAH þú veist hvað ég meina..... enginn að selja fiska og ekkert...! ég er með 3búr og öll nánast tóm... og næsta gæludýra verslun er Dýrarríkið AKUREYRI... HUGSAÐU þér... ég er betur settur með að veiða mér fiska á höfninni og reyna að halda í þeim lífinu í ferskvatni en að kaupa fiska þar...
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

Er ekki einmitt gæludýrabúð með fiska á Akureyri, fór þarna tvisvar um, eða þrisvar í sumar og ætlaði að kíkja í einhverja svona búð, en fann ekki, lagði nú ekki mikið í leitina
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: Er það bara ég....

Post by Squinchy »

Þetta er bara sumar tíminn og enginn heima hjá sér :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Er það bara ég....

Post by keli »

Jámm spjallið er venjulega rólegt á sumrin.. Svo kippist þetta rólega í gang þegar það haustar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Vona það... glatað að gera þráð og fá EKKERT feed back :D
Nielsen
Posts: 218
Joined: 11 Mar 2010, 21:34

Re: Er það bara ég....

Post by Nielsen »

siggi86 wrote:
Sibbi wrote:
siggi86 wrote:eða er MIKLU minna að gerast á þessari síðu núna er hérna áður.... ég man að ef ég auglýsti eftir fisk gefins þá fékk ég oftast 100fiska.. núna fæ ég ekki einu sinni gúbbý... HVAÐ ER AÐ GERAST?
Já þetta er SVAKALEGT að fólk skuli ekki hópast um þig til að gefa þér fiska :rofl:

HAHAH þú veist hvað ég meina..... enginn að selja fiska og ekkert...! ég er með 3búr og öll nánast tóm... og næsta gæludýra verslun er Dýrarríkið AKUREYRI... HUGSAÐU þér... ég er betur settur með að veiða mér fiska á höfninni og reyna að halda í þeim lífinu í ferskvatni en að kaupa fiska þar...
en hvað með gullfiskatjörnina við hitaveituna? :wink:
Stefán F. B. Nielsen
Selfossi
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

gullfiskar eru ekki það skemmtilegir :) Er núna með bleikju í búri :)
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

siggi86 wrote:gullfiskar eru ekki það skemmtilegir :) Er núna með bleikju í búri :)
:góður:
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Nielsen
Posts: 218
Joined: 11 Mar 2010, 21:34

Re: Er það bara ég....

Post by Nielsen »

siggi86 wrote:gullfiskar eru ekki það skemmtilegir :) Er núna með bleikju í búri :)
hvernig er það að virka?
Stefán F. B. Nielsen
Selfossi
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Virkar bara vel... vatnsskipti á 3daga fresti... Ætla að reyna að skella inn mynd og videoi á eftir :) Mikið Loft ef galdurinn :)
nubbi
Posts: 10
Joined: 03 Oct 2012, 08:39

Re: Er það bara ég....

Post by nubbi »

samála ég er bara að reyna að finna út hver á pirrana fisk? á einhver
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

Gaman að fylgjast með þessu, næst er bara að para og koma á fjölgun :lol:
Eeeeen hvernig náðir þú silungnum?

Já, svo ertu með eitt og eitt Convikt seiði :lol:

Það verður gaman að fylgjast með hverenig gengur.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Ég lagði net síðustu helgi og vitlaði það bara nokkrum tímum seinna og þar var þessi litla bleikja í. ég skipti mér nú ekki af henni þar sem að hún var ekki beint mat fiskur. Svo ég tók bara netið uppúr og keyrði heim með bleikjuna ennþá í netinu og huskyinn hjá vini mínum var búinn að bíta í hana og svona, svo kem ég heim og tek hana úr netinu og hún byrjaði að iða... ég skellti henni í eldhúsvaskinn með vatni í... þar braggaðist hún og var orðin góð eftir 10-15min og svo ákvað ég að setja hana í búr :D heheh viti menn... It's alive!

Ég er að vinna í bleikju eldi og þeir voru að tala um að hún gæti verið svona 2-3ára.... þær vaxa svo hægt í náttúrunni....
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

:góður:
Alveg magnað hún hefur verið án vatns í margar 10 mínútur, eða einhverjar alla vega,, alveg magnað.
Verður gaman að sjá þróunina á bleikju "eldinu" hjá þér 8)
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
sso
Posts: 24
Joined: 02 Jun 2012, 22:29

Re: Er það bara ég....

Post by sso »

hvað er hitastigið á vatninu hjá bleikjunni? og úr hvaða vatni kom hún? (spekulera í hita mismuninum.)
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Vatnið sem þær koma úr er 4°C.... vatnið sem ég er með er heitast 9°C en kaldast 3°C

http://www.youtube.com/watch?v=BLYEh80i ... ature=plcp

Bætti 2stk við það :D hehehe troðið!
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

Já! komin með þrjá, Þú verður kominn með tjörn bráðlega :P hvernig kælir þú búrið niður.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

kæli það ekkert.... skipti bara um reglulega og þá er það mjög kalt og svo tekur það smá tíma að hitna í of heitt... bleikjan þolir MJÖG rokkandi hita EN í mjög háu hitastigi þá má ekki mikið gerast svo hún drepist
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Kíkti í búrið í morgun og viti menn.... HROGN! :) Myndir í kvöld, og ein orðin frekar slöpp
Nielsen
Posts: 218
Joined: 11 Mar 2010, 21:34

Re: Er það bara ég....

Post by Nielsen »

hvar er myndin??
Stefán F. B. Nielsen
Selfossi
ibbman
Posts: 271
Joined: 26 Jan 2009, 19:02

Re: Er það bara ég....

Post by ibbman »

Image
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

takk ívar :)
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Er það bara ég....

Post by Sibbi »

Magnað :góður: , þú leifir okkur að fylgjast mreð þessu.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

þetta var allt ófrjógað svo það drapst allt... þarf bara rétt 2tíma til að drepast...
Nielsen
Posts: 218
Joined: 11 Mar 2010, 21:34

Re: Er það bara ég....

Post by Nielsen »

þú þarft að finna þér frjóan hæng ;)
Stefán F. B. Nielsen
Selfossi
User avatar
siggi86
Posts: 639
Joined: 27 Mar 2008, 19:39
Location: Húsavík

Re: Er það bara ég....

Post by siggi86 »

Gæti gert það í vinnunni... vinn í bleikjueldi... er bara ekki alveg að nenna því :) Meira mál en að segja það, má ekki koma ljós á hrogin annars verða þau vanskaplingar og blablabla... helst að vera alltaf 4°C og svona... þetta var bara smá mission :) Kannski ég reyni aftur með stærra búri :)
Post Reply