Nýtt fiskabúr komið í hús!

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Image

Fann loksins rétta búrið fyrir heimilið :mrgreen:
Fékk þetta líka fína 200L búr hjá Vargi : http://petshop.is/details/aqualife-200?category_id=15 (reyndar ekki rétt mynd þarna á síðunni).
Þetta er svakalega flott búr, mjög hrifinn af lokinu :)
Það vaggar reyndar svakalega á gólfinu, annað búr sem var þarna gerði það ekki, líklega eitthvað misræmi í plasttöppum/undirstöðum sem fylgdu með, þarf kannski að rífa þá af og skella filttöppum undir í staðinn.

Ég vildi helst sleppa því að hafa tunnudælu, það er séns að ég færi búrið á annan stað seinna og þar væru tunnudæluslöngurnar svolítið fyrir.
Mér datt í hug að nota bara Juwel dælukassa í staðinn og Hlynur reddaði mér kassa úr 400L Juwel búri. :góður:
Filteringin ætti að vera feikinóg fyrir þetta litla búr.
Langaði bara að deila gleðinni, gaman að vera kominn aftur með búr á heimilið.
Áhuginn er búinn að liggja í dvala síðan ég seldi 720L búrið fyrir tæpu ári.

Næst á dagskrá er að líma Juwel dælukassann í búrið og finna innihald.
Þeir sem þekkja mig vita að ég er með valkvíða á háu stigi svo það er ekkert 100% ákveðið með innihald búrsins.
Þetta er þó ekki stórt búr og bíður ekki uppá hvað sem er, svo Malawi mbunur eru ofarlega á lista yfir fiska sem hægt er að skella í og hafa bara, ekki hægt að vera endalaust að skipta um eða bæta í svona minni búr.
Aðalhausverkurinn er að finna rétta bakgrunninn (plakat helst), möl og steina/rætur/skraut...
Allar hugmyndir velkomnar, ég stefni á að koma vatni í búrið í næstu viku.

Hérna er búrið svo á sínum stað, Juwel kassinn sést þarna í horninu.
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Jakob »

Glæsilegt, það verður gaman að sjá útkomuna.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by prien »

Til lukku.
Annars verður þú kominn í 700+ fljótlega...heldur þú ekki? 8)
500l - 720l.
botnfiskurinn
Posts: 218
Joined: 23 Jan 2009, 09:18
Location: RVK

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by botnfiskurinn »

Velkominn aftur!

Ég segi svartan bakgrunn og þína útfærslu af rótum, gróðri og einhverja(r) tegund(ir) af snakehead :D
400L Juwel Polypterus+
160L Polypterus uppeldi
User avatar
casmak
Posts: 75
Joined: 03 May 2011, 09:24
Location: Hafnarfjörður

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by casmak »

ég myndi alltaf taka svartan bakgrunn, ég er búin að prófa bæði að sprauta með svörtu spray og rúlla með málningu og spray kemur mun betur út, ég notaði svart glans og er mjög sáttur með það.
4x200l Rekki.
180l ónotað
Canon EOS 500D EF-S 18-55mm

viewtopic.php?f=2&t=12580
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by keli »

Svartur bakgrunnur kemur mjög vel út, en ég veit ekki hvort ég myndi tíma að mála svona búr...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
igol89
Posts: 381
Joined: 12 Dec 2010, 04:13
Location: Álftanes

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by igol89 »

double tape og svartur ruslapoki og svo bara strekkja :)
Logi


________________________________________________-
240L að tæmast 180L tómt, 120L tómt, 30L rækjur
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Inga Þóran »

ég segi að það eigi að vera svartur bakgrunnur, svartur sandur og malawi síklíður....er það ekki bara ákveðið ;)

eða frontósur? :wub:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by keli »

Inga Þóran wrote:ég segi að það eigi að vera svartur bakgrunnur, svartur sandur og malawi síklíður....er það ekki bara ákveðið ;)

eða frontósur? :wub:
Of lítið búr fyrir frontur :) Eða amk í minni kantinum. Þær stækka samt mjög hægt þannig að það dugir í einhver ár.

Ég átti einusinni frontur en gafst upp á þeim. Frekar fælnir fiskar (amk þeir sem ég átti) og lítið gaman af (fannst mér).
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Eiki
Posts: 257
Joined: 21 Nov 2008, 11:57
Location: Selfoss

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Eiki »

keli wrote:
Inga Þóran wrote:ég segi að það eigi að vera svartur bakgrunnur, svartur sandur og malawi síklíður....er það ekki bara ákveðið ;)

eða frontósur? :wub:
Of lítið búr fyrir frontur :) Eða amk í minni kantinum. Þær stækka samt mjög hægt þannig að það dugir í einhver ár.

Ég átti einusinni frontur en gafst upp á þeim. Frekar fælnir fiskar (amk þeir sem ég átti) og lítið gaman af (fannst mér).
Mjög flott búr, sammála að það sé í minna lagi fyrir frontur, Kannast ekki við þessa fælni í frontonum sem Keli talar um, mínar eru það ekki.
Þið hljótið að finna eitthvað skemmtilegt í búrið.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Fór lokins í gær í smá leiðangur til að koma búrinu af stað, kominn tími til!
Keypti 25kg af möl hjá BM Vallá, þurfti að kaupa nýjan dælubotn í Juwel dæluhausinn, hinn botninn var orðinn slitinn og það víbraði skuggalega í dælunni. Keypti svo svartan/bláan bakgrunn sem ég ætla að sjá til með hvort ég nota. Svarta hliðin er í notkun eins og er.
Þarf svo að skipta út þessum perum sem komu með búrinu, ein gróðurpera og ein fjólublá daylight.
Ætla að hafa 2x venjulega daylight perur (hvítar).

Svo er bara að finna fiska í búrið, nokkrar hugmyndir í gangi. Kemur líklega í ljós í vikunni :mrgreen:
Image

vatnið er annars bara gruggugt útaf nýju mölinni.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
bine
Posts: 72
Joined: 15 Jan 2008, 13:13

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by bine »

Hvar fékkstu svartan/bláan bakgrunn?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Dýraríkinu Holtagörðum, var búinn að fara á nokkra staði, greinilega skortur á plakötum á landinu :)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
igol89
Posts: 381
Joined: 12 Dec 2010, 04:13
Location: Álftanes

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by igol89 »

Hvað hafðiru hugsað þér að hafa í búrinu Andri?... Eða ertu ekki búinn að ákveða það eins og er?
Logi


________________________________________________-
240L að tæmast 180L tómt, 120L tómt, 30L rækjur
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Ekkert ákveðið nei, líklegast síkliður (segir Inga) :)
Sá Paratilapia polleni í búð í gær, það er freistandi en spurning hvort svona svartir fiskar njóti sín með dökka möl og dökkan bakgrunn.
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by ulli »

Andri Pogo wrote:Ekkert ákveðið nei, líklegast síkliður (segir Inga) :)
Sá Paratilapia polleni í búð í gær, það er freistandi en spurning hvort svona svartir fiskar njóti sín með dökka möl og dökkan bakgrunn.

Æðislega Fallegir fiskar.
Svört möl er must fyrir þá.
verða heldur ekki of stórir.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by keli »

Polleni verða nú stórir, um 30cm... Eru bara lengi að stækka. Gætu alveg gengið í þessu búri, en þeir eru helvíti leiðinlegir við hvorn annan, líklegt að maður endi bara með 1stk.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by ulli »

það er nú talað um almost 30cm annars má búast við 25cm eftir eithver ár.
Þeir eru böggarar dauðans en þetta eru fiskar sem réttlæta það að vera einir í búri eða pari.

manni finst 30cm ekkert svo stórt leingur :mrgreen:
http://en.wikipedia.org/wiki/Paratilapia_polleni
http://www.youtube.com/watch?v=rhqxlCBh ... re=related
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by keli »

30cm er svolítið stórt þegar maður er að tala um 200l búr :) Sleppur samt alveg, þessvegna 2stk.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Squinchy »

Hvað með discus og corydoras
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by ulli »

Ekkert að frétta?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

hehe neee ekki enn :) á eftir að koma mér út í búð og tékka á þessu betur.
Skellti 2 gullfiskum í um daginn til að koma smá flóru af stað, þarf að fara að drífa mig að skipte þeim út.
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by ulli »

Um að gera :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Skellti mér á 2 polleni!
Það voru 2 í búðinni búnir að "para sig saman" og voru að fara ansi illa með hina polleni-ana í búrinu.
Þeir voru þeir einu sem sýndu lit, voru orðnir töluvert stærri en allir hinir og voru búnir að tæta vel í hina.
Vona svo bara að þetta sé par fyrst þau voru að para sig svona saman í að stjórna búrinu :)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Nóg pláss fyrir þá í bili
Image

enn mjög stressaðir báðir og litirnir eiga eftir að verða margfalt betri :)
Image
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by ulli »

flotttir :góður:
Og Verða bara flottari.
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Sibbi »

ulli wrote:flotttir :góður:
Og Verða bara flottari.

Til hamingju með afmælið :góður:
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Jakob »

Flott! Verður gaman að sjá Polleni-ana stækka!
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by Andri Pogo »

Aðeins betri litir komnir í þá, en ennþá feimnir og missa strax litinn ef ég er nálægt búrinu.

Image
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Nýtt fiskabúr komið í hús!

Post by ulli »

Rosa felugjarnir meðan þeir eru litlir.
Post Reply