Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
gassir
Posts: 16
Joined: 16 Jul 2008, 23:09

Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by gassir »

Hæhæ

Hvað segir fólkið með eitt mál þannig er að ég er að setja upp í fyrsta sinn fiskabúr en ég hef heyrt að annað hvort nota menn volgt vatn þá heitt og kallt saman eða setja bara kallt vatn í þetta er ekki sjávarbúr heldur lítið 25 lítra búr verð sennilega með gúbbý og salamontrur :) ef ég hef nafnið rétt :)) á ég að blanda volgt og setja í búrið eða bara kallt hvað segir fólkið :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by Vargur »

Blanda heitt og kalt í réttu hitastigi.
gassir
Posts: 16
Joined: 16 Jul 2008, 23:09

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by gassir »

Já ok var í fiskabúð í dag og hann sagði alls ekki heitt og kalt saman bara kalt hmmm
User avatar
elliÖ
Posts: 231
Joined: 26 Feb 2010, 00:11
Location: Reykjarvík

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by elliÖ »

þú gertu alveg treyst því að það er í lagi að blanda saman heitt og kalt í rétt hitastig
Elvar
Aquastabil 530L diskusar
130L japanis endler
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by Andri Pogo »

gassir wrote:Já ok var í fiskabúð í dag og hann sagði alls ekki heitt og kalt saman bara kalt hmmm
viðkomandi ætti þá ekki að vinna í fiskabúð :)
-Andri
695-4495

Image
gassir
Posts: 16
Joined: 16 Jul 2008, 23:09

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by gassir »

Ok heheh takk fyrir þetta en hvað er rétt hitastig :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by Andri Pogo »

24-26° er fínt
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by Vargur »

Hvaða búð var þetta eiginlega ?
gassir
Posts: 16
Joined: 16 Jul 2008, 23:09

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by gassir »

Stórhöfða :) en hann hefur örugglega meint að ég hafi átt að láta það standa einhvern tíma
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by keli »

Algjör óþarfi að láta vatnið standa. Bara láta renna í búrið. Mikilvægast er að vatnið sé svipað heitt og það sem er fyrir í búrinu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
ellixx
Posts: 565
Joined: 02 Mar 2010, 12:42
Location: Hafnarfjörður

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by ellixx »

er ekki verið mað meina að hann sé að setja vatn í búrið í firsta skiptið núna og þá á það að standa í nokkra daga til að ná flórunni upp.
eða er ég að miskilja ?
en í vatnaskiptum þegar á að skipta um 30-50% af vatninu þá blanda ég alltaf heitu og köldu saman til að fá 25° heitt vatn sem fer beint í búrið .
kveðja
ellixx
180 lítra juwel.
54 lítra mp. til sölu
30 lítra tetra. gaf brósa :)
1200 lítra rekki. hættur ....... selt ,hent
Canon EOS 500D
Sigma 18-200.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by Squinchy »

Eflaust einhvað mismæli orðið, við notum alltaf blöndu af heitu og köldu vatni í búrin, svo er góður kostur að leyfa vatninu að standa í búrinu yfir nótt
Kv. Jökull
Dyralif.is
adidas
Posts: 24
Joined: 17 Mar 2011, 00:47

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by adidas »

Má maður setja hitaveitu vatn úr krananum í búrin? Var nefnilega sagt það einu sinni.....
Ég hef alltaf hitað vatn í hraðsuðukatlinum og blandað vel saman við kalt vatn. Er ég að gera þessa vinnu að algjöru óþarfa?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by Vargur »

Það er að sjálfsögðu í lagi að nota heitt vatn úr krananum í fiskabúr, ég hreinlega skil ekki af hverju maður er að fá þessa spurningu aftur og aftur. Er virkilega einhver sem seigir að þetta sé ekki í lagi !?

Búrin hjá mér eru um 10.000 lítrar og ef ég hitaði vatnið fyrir vatnskipti þá gerði ég sennilega ekkert annað allan daginn.
adidas
Posts: 24
Joined: 17 Mar 2011, 00:47

Re: Vatn í fiskabúr alveg nýr :)

Post by adidas »

Vargur wrote:Það er að sjálfsögðu í lagi að nota heitt vatn úr krananum í fiskabúr, ég hreinlega skil ekki af hverju maður er að fá þessa spurningu aftur og aftur. Er virkilega einhver sem seigir að þetta sé ekki í lagi !?

Búrin hjá mér eru um 10.000 lítrar og ef ég hitaði vatnið fyrir vatnskipti þá gerði ég sennilega ekkert annað allan daginn.

Hahaha já nú líður mér eins og algjörum aula. Mér var sagt þetta af fleirum en einum aðila, þar á meðal í dýrabúð.
Jæja, allavega er ég mjög fegin að heyra þetta og get loksins hætt að hita vatnið í hraðsuðukatlinum :D
Liggur við að ég hlakki núna til að skipta um vatn í búrunum :lol:
Post Reply