Uppsetning á 20 l. besta aðferð til að það cykli sig?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Guðný Linda
Posts: 20
Joined: 03 Oct 2011, 13:39

Uppsetning á 20 l. besta aðferð til að það cykli sig?

Post by Guðný Linda »

Sæl öll

Ég er að fara að setja upp 20l. búr í eldhúsinu. Er eitthvert vit í að taka vatn og eða kreista úr dælusvampinum úr 54 l. búrinu sem er búið að vera í gangi lengi allt í góðu gengi þar og setja í 20 l. búrið. Svo er líka spurningin á ég að setja einhverja fiska í það fljótlega eða á ég að bíða í einhverjar vikur? Ef það er lagi að setja í það fiska hvaða teg. þá? Hugmyndin er að hafa 2-3 guppykarla í því. Er bara pínu hrædd um að þeir þoli ekki að fara í nýuppsett búr. Hef lent á guppykörlum sem hafa verið viðkvæmir. Eru nokkuð til einhverjir ofurlitlir "ryksugufiskar" eins og miniútgáfur af corydoras sem geta verið í svona litlu búri? Væri kanski best að vera með rækjur eða eplasnigla í staðinn fyrir botnfiskana, þessi lítrafjöldi setur manni óhjákvæmilega miklar skorður í fiskavali. :)

Kv. Guðný
p.s. ég er ekki að tala um að taka eingöngu vatn úr hinu búrinu heldur, bara að hluta til.
unnisiggi
Posts: 270
Joined: 14 Apr 2010, 21:49

Re: Uppsetning á 20 l. besta aðferð til að það cykli sig?

Post by unnisiggi »

ég myndi ekki vera að taka vatn úr hinu búrinu gerir í raun voðalega lítið best að setja nýtt vatn og 1-2 litla gullfiska í 2-3 vikur ef þú vilt vera alveg örugg og best er að vera með notaða dælu að mínu mati
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Uppsetning á 20 l. besta aðferð til að það cykli sig?

Post by Sibbi »

Code: Select all

Er eitthvert vit í að taka vatn og eða kreista úr dælusvampinum úr 54 l. búrinu sem er búið að vera í gangi lengi allt í góðu gengi þar og setja í 20 l. búrið
Færðu frekar dæluna í heilu lagi yfir í nokkra daga, og settu aðra, eða loft í hitt búrið á meðan.

Guppy mundi ég nú telja lakasta fiskinn í nýuppsett búr, af þessum sem þú nefnir.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Guðný Linda
Posts: 20
Joined: 03 Oct 2011, 13:39

Re: Uppsetning á 20 l. besta aðferð til að það cykli sig?

Post by Guðný Linda »

Takk fyrir þetta strákar. Ég færi þá dæluna á milli í smá tíma.

Kv. Guðný.
Post Reply