Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

Mig vantar endilega að komast í ávaxtaflugur, vitiði um einhvern sem getur reddað mér? Ég vil ekki flugur sem geta flogið, bara flightless koma til greina.

Endilega láta mig vita :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

Enginn sem þekkir einhvern eða eitthvað svoleiðis? Ég er með lítið eðlugrey sem flæktist með sendingu frá útlöndum, og hún er of lítil til að éta nokkuð annað. Væri leiðinlegt ef þetta grey veslaðist upp og deyr :(
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
unnisiggi
Posts: 270
Joined: 14 Apr 2010, 21:49

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by unnisiggi »

eru mjölormar of stórir hvað er hun lítil og veistu hvaða tegund þetta er hvaðan kom hún
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

unnisiggi wrote:eru mjölormar of stórir hvað er hun lítil og veistu hvaða tegund þetta er hvaðan kom hún
mjölormar eru of stórir. Kom frá florida.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by Agnes Helga »

En svona baby mjölorma? Þeir geta verið ansi litlir :) Ertu buin að kíkja inn á framandi spjallið? Heyra kannski í henni Vigdísi?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

Agnes Helga wrote:En svona baby mjölorma? Þeir geta verið ansi litlir :) Ertu buin að kíkja inn á framandi spjallið? Heyra kannski í henni Vigdísi?
Búinn að kíkja þangað og Vigdís ansar ekki skilaboðunum frá mér :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
unnisiggi
Posts: 270
Joined: 14 Apr 2010, 21:49

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by unnisiggi »

vigdís er að vinna niður í dýralandi kringluni ættir að getað haft uppá heni þar
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by Agnes Helga »

Já, ef þú kæmist líka í samband við eitthverja með mjölorma rækt og fengið þá ponsu litla, ég hef verið stundum að gefa fiskunum mínum þá þegar mjölormarnir eru liggur við vart sjáanlegir. ;)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by ragz »

Veiðiportið niðrá granda er stundum að selja svona lifandi hvítorma sem beitu, spurning hvort þú gætir notað þá?
unnisiggi
Posts: 270
Joined: 14 Apr 2010, 21:49

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by unnisiggi »

það eru að öllum líkindum mjölormar
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by Squinchy »

Hvað er hún í cm ?, endilega koma með mynd af henni :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

Hún er svona 5cm. Þetta er house gecko, verður stærri en þessi er líklega bara ung.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by Vargur »

Ég skildi óvart einhverntíman opna rauðvínsflösku eftir upp á hillu í 2-3 daga og í henni voru nokkrir dropar af rauðvíni.
Flaskan fylltist af ávaxtaflugum, að vísu ekki flightless en ég setti bara tappan á.
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by jrh85 »

tjorvar er með allskonar skordýr í dós. engisprettur og orma.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by Elma »

Vargur wrote:Ég skildi óvart einhverntíman opna rauðvínsflösku eftir upp á hillu í 2-3 daga og í henni voru nokkrir dropar af rauðvíni.
Flaskan fylltist af ávaxtaflugum, að vísu ekki flightless en ég setti bara tappan á.
hahaha, ég var einmitt að hugsa um þetta,
þegar ég sá titilinn á þræðinum!!
eww.... :lol:
nasty!!
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

Ég get alveg náð þessum sem fljúga, en það er vonlaust að gefa þær, þær bara fljúga í burtu..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
jrh85
Posts: 104
Joined: 04 Aug 2011, 20:24
Location: Reykjanesbær

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by jrh85 »

Setja þær í frystinn
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

jrh85 wrote:Setja þær í frystinn
jamm það er hægt að redda sér með því, en ekki alveg optimal lausn :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by ulli »

Af vængja þær bara?

Hefuru prófað að búta niður smá maðka.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

ulli wrote:Af vængja þær bara?

Hefuru prófað að búta niður smá maðka.
Veistu hvað ávaxtaflugur eru litlar? Pointið með ávaxtaflugum sem fljúga ekki er að þær fjölga sér og geta ekki flogið áfram. Þá ertu með þægilega fæðu óháð árstíð osfrv.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by ulli »

Varla er þetta svona lítið Kvikindy?
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by Sibbi »

Hvernig væri að koma með myndir af eðlunni?
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by animal »

Mér finnst undarlegt ef að 5 cm gekkó ræður ekki við litla mjölorma. Annar er bara að fara út og týna blaðlýs eða útí Gróttu og finna þar þangflugur.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: Ávaxtaflugur - Hvar get ég fengið starter?

Post by keli »

Hann ræður líklega við litla mjölorma, maður hefur bara venjulega lítið um stærðina að segja með ormana :)

Annars er ég að hugsa um að gefa geckoinn ef einhver vill. Gott heimili og allt það.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply