Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Geir94 »

Hæ allir,

Ég tók eftir því í dag að gullfiskurinn minn er kominn með einhverja sýkingu á búkin á sér, og ég hef ekki hugmynd um hvernig sýking þetta gæti verið. Mér datt í hug sveppasýking eða eitthvað skylt því, en svo er líka skrítið að það er eins og það sé einhver svipuð sýking á ugganum á honum. Þar sem hluti af ugganum vantar. Það væri mjög gott að fá hjálp frá ykkur, en ég sendi myndir sem að eru hér sem þið getið skoðað og litið á. En sárið sjálft á búknum er mun hvítara en sést á myndinni og er frekar rifið og gróft að sjá :( endilega hjálpið :)

[img][IMG]http://i52.tinypic.com/j636zd.jpg[/img][/img]

[img][IMG]http://i53.tinypic.com/hvnw5z.jpg[/img][/img]

Ef þessar myndir virkuðu ekki að þá eru linkarnir hér:

http://tinypic.com/view.php?pic=j636zd&s=7

http://tinypic.com/view.php?pic=hvnw5z&s=7
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Agnes Helga »

Oft hjálpa upplýsingar til um aðstöðu fisksins, t.d. stærð búrs, hvernig vatnaskiptum er háttað, fóðrun og svona. Annars er ég ekki viss með þetta sár, vonandi getur eitthver hjálpað þér.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Geir94 »

Þetta er sár vegna sýkingu náttúrulega, en búrið er 120l og ég skipti um vatn á 2 vikna fresti, sirka 20%
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Geir94 »

Agnes Helga wrote:Oft hjálpa upplýsingar til um aðstöðu fisksins, t.d. stærð búrs, hvernig vatnaskiptum er háttað, fóðrun og svona. Annars er ég ekki viss með þetta sár, vonandi getur eitthver hjálpað þér.
Takk btw fyrir að minna mig á hehe, maður gleymir alltaf að gefa mikilvægustu upplýsingarnar þegar að maður er með áhyggjur hehe
Ási
Posts: 423
Joined: 15 Nov 2010, 13:43
Location: mosó

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Ási »

ef það er sýking í fisk eða fiskum þá er best að skifta oft um vatn kannski 2-3 í viku og hafa það sirka 50-70% í viku
400l búr sem á eftir að verða monster búr og
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Agnes Helga »

Finnst 20% mjög lítil vatnskipti, frekar að hafa það 40-60% á 2ja vikna fresti eða einu sinni í viku
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Vargur »

Þetta lítur ekki út fyrir að vera sýking, frekar sár eftir áras. Eru aðrir fiskar í búrinu ?
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by pjakkur007 »

ég kom í hús um daginn þar sem var fiskur sem var svona útlýtandi og það eina sem ég fann að var að það var svæsin nitrit mengunn í búrinu og fiskurinn virtist hafa gert sér þetta sjálfur þ e s hann virtist taka mikla spretti í búrinu og reina að synda utaní hluti til að klóra sér eða eitthvað...
þar hafði vatnsskiptum verið þannig háttað að skipt var um 20-25% vatn á 2 viknafresti sem hefði kanski verið allt í lagi ef ekki hefði verið gefið alltof mikið í búrið því þegar ég ryksugaði mölina þá varð vatnið dökk brúnt í suguni og á 3 mánuðum var búið að gefa nærri fullan 500 ml stauk af fiskafóðri fyrir 2 gullfiska
User avatar
jonsighvatsson
Posts: 185
Joined: 24 Jun 2010, 12:06

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by jonsighvatsson »

Best að láta kallin í 20lítra tunnu með loftdælu og láta 3grömm per liter af grófu kötlusalti ofaní hægt og rólega á 3 daga tímaskala. Og lyfja vatnið með tetra General tonic.

Veit að þetta hljómar nazty en þetta hefur reddað öllu veseni hjá mér í stóra gullfiskabúrinu . Bara taktu tillit til hversu slappur hann er og bæta saltinu við hægt og rólega , klára það process á 3 dögum. Svo einhverntíman í millitíðinni sem þú hefur ekki verið ný búinn að bæta salti að lyfja kallin upp með general tonic.

Hann gæti þurft að vera 3 vikur í tunnuni , passaðu að skipta um 2lítra á dag og helst láta loftdælu ofaní með loftstein. Og gott væri að láta eitthvað ofaní sem hann getur falið sig til að minnka allt stress.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Hjálp með að greina sýkingu :( !!!!

Post by Elma »

Það er ekki gott að salta og lyfja á sama tíma.

Myndi gera annað hvort, en saltið er best og náttúrulegasta lausnin við vandamálum.
Halda vatninu góðu og salta, þá fær hann ekki sýkingu eða fungus í sárið.

Vil samt minna á að salt eyðileggur gróður.
og það þarf að passa að salta ekki of mikið,
heldur fara eftir leiðbeiningunum hér á síðunni.

Söltun
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply