160 lítra Malawi búr

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

160 lítra Malawi búr

Post by Höddi »

Ég er með 160 lítra búr og í því eru

3 Sokolofi
3 Acei
3 M. estherae OB
2 Ryksugur
2 Þörungaætur

Hvað er ráðlagt að hafa marga fiska í svona búri?
Get ég bætt við mig síklíðum?
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Post by Atli »

Ég myndi ekki vera bæta mikið við það sem fyrir er. Ég er sjálfur með 400L Malavi búr og í því eru Malaví og Tanganika siklíður ég held um það bil 30 stykki og um 8 tegundir í það heila fyrir utan 2 stóra gibba. Þetta fer rosalega mikið eftir því hvort þú ætlir að reyna rækta eitthvað undan þeim eða vera bara með svona "stofubúr" sem á bara að vera fyrir ánægjuna.

Ef ég væri þú þá myndi ég í mesta lagi bæta við 3-5 siklíðum í viðbót og hellst að það séu þá M. estherae OB eða Ps. Socolofi. Acei eru torfu fiskar og eru forvitnir en skemmtilegir í svona blönduð hópbúr. Þú getur sjálfsagt haft um 15-18 fiska í búrinu ef að aðstæður í búrinu eru góðar en ég mæli með að þú farir ekki mikið yfir 18 stk. - Annað er bara CHAOS!

Það væri gaman ef að þú gætir sent myndir af búrinu á spjallið!
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Þetta er nú bara svona stofubúr hjá mér. En mig langar rosalega í yellow lab (heita þeir það ekki annars) alveg skær gulir? Eða er ekki sniðugt að hafa of margar tegundir saman?

En ég set inn nokkrar myndir fyrir ykkur, myndavélin mín er ekki nógu góð svo þið afsakið myndgæðin. :D (Eða ég ekki nógu klár að taka myndir)

Image
Image
Þessi er flottur
Image
Þessi ásamt einum sokolofi eru stærstir en sjáiði hvað hann er feitur :shock:
Image
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Post by Atli »

Já mig minnir að ég hafi séð þetta búr hjá þér áður og ég verð að segja að þetta er bara hið laglegasta búr. Þar sem að búrið þitt er meira á lengdina en hæðina þá hugsa ég að það sé í lagi að vera með 1-2 tegundir í viðbót eða ca. 6-8 fiska í viðbót.

Passaðu þig bara á þessu grjóti sem er í búrinu hjá þér, ef að það verða áflog í búrinu eða slagsmál þá gæti farið svo að fiskanir slasi sig á þessum "hraunmolum" sem þú ert með.

Haltu bara áfram að vera áhugasamur og gera búrið fallegra. - Hefurðu hugsað útí að vera með einhvern gróður í búrinu og þá hellst lifandi?
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
User avatar
Atli
Posts: 225
Joined: 18 Dec 2006, 05:57
Location: Reykjavík

Post by Atli »

Höddi wrote:Þetta er nú bara svona stofubúr hjá mér. En mig langar rosalega í yellow lab (heita þeir það ekki annars) alveg skær gulir? Eða er ekki sniðugt að hafa of margar tegundir saman?
Það er svosem ekkert að því að hafa margar tegundir saman, bara að búrið sé uppsett með nógu mörgum felustöðum / hellum / sprungur svo að fiskarnir geti varið sig! - Einnig svo að seiðinn sem gætu komist á legg ef að því verður hjá þér
Heilaþveginn af fiskum - Blessaður af vatni
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég persónulega mundi ekki hika við það að dúndra nokkrum Yellow Lab í búrið hjá þér
Ég er nokkuð viss um að búrið verði mun líflegra hjá þér við vikið
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

4-6 fiskar í viðbót ætti að vera í lagi, Y. lab er fínasta viðbót í búrið.
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Eru til Yellow lab í Fiskabúr.is?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Yellow lab eru búnir í bili, kanski er til 1-2 st.
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Atli wrote: - Hefurðu hugsað útí að vera með einhvern gróður í búrinu og þá hellst lifandi?
Hef ekki spáð í það ennþá, en hver veit nema mér detti það í hug þegar ég verð búin að redda mér yellow lab :)
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

ég sá allaveganna 2 stykki Y.Lab í Dýragarðinum, gæti verið að fiskó sé líka með einhverja
helgi1111
Posts: 72
Joined: 11 Oct 2006, 09:16

Post by helgi1111 »

þú ætir að fá þér svona 4-5 Yellow lab það er rosa flot
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Já Yellow Lab eru bara snilldar fiskar gullfallegir og í rólegri kantinum af malawi síklíðunum. Þeir fá topp meðmæli frá mér !!
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Jæja búinn að bæta við fimm Yellow lab seiðum sem Vargur seldi mér (takk fyrir það :wink: ) Og gerði smá breytingar í búrinu.

Set inn eina mynd

Image
ZX-6RR
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Huggulegt búr.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Takk fyrir það :wink:

En annars er allt gott að frétta og nýbúarnir (yellow lab) dafna vel með hinum þeir þurfa að hafa fyrir því að borða vegna þess hvað þeir eru litlir, þegar þeir hafa komið auga á góðan mola þá kemur einhver stór og frekur og borðar hann fyrir framan þá. En þeir ná samt einhverju (ég fylgist með því).

Svo er stóri feiti Acei að leggja einn af sinni tegund í einelti, hann hangir alltaf utaní öðrum Acei og þegar þessi kemur nálægt þá upphefst mikill eltingaleikur á milli þeirra tveggja sem lýkur þannig sá feiti hefur rekið hann útí horn og þá dólar hann sér til baka til félaga síns (sem hinn má ekki koma nálægt)

En nóg í bili, meira seinna
ZX-6RR
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Jæja þar sem allir hér elska myndir þá verð ég að koma með nokkrar nýjar.

Magnað hjá mér að ná öllum 5 Yellow lab á einni mynd, þeir eru svo mikið á ferðinni um allt búrið.
Image

Image

Þessi mynd heppnaðist bara nokkuð vel
Image

Svo er það þessi, hann er algjör gunga, er alltaf inní sínum helli og kemur bara út til að borða og er alveg svakalega stressaður (er alveg röndóttur) svo fer hann aftur í hellinn.
Image

og ein í viðbót
Image
ZX-6RR
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvaða tegund er hann af þessi hellisbúi ?
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Hann er Sokolofi. Ég náði að hrekja hann úr hellinum til að ná mynd af honum, en það gekk ekki mjög vel því hann synti þá bara beint á næsta felustað. En ég náði einni þar sem hann hélt að ég sæi hann ekki :lol:

Image
ZX-6RR
Post Reply